Silje skrifaði:
Er det mulig å sende mail til dere med spørsmål? 🙂 Spørsmålet mitt er for langt for kommentarboksen 🙄
04.11.2018 - 21:12DROPS Design svaraði:
Hei Silje. Vi har dessverre ingen mailadresse for dette, men om du skriver spørsmålet ditt over flere spørsmålsbokser på siden vår skal vi lese dem som 1 spørsmål. Det går helt fint
06.11.2018 - 07:49
Susanne skrifaði:
Ang. bærestykke, forstår jeg det så rigtigt, at A.2, A.4 og A.5, kun skal strikkes en gang i højden?
02.10.2018 - 22:11DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Du fortsetter å øke som i diagrammene (hver 2 omgang) til du har økt totalt 14-16-19-21-24-27 ganger (inkludert økningene i A.2, A.4 og A.5). Du strikker altså mønster som i diagrammene til det totale maskeantallet er 212-232-260-280-308-336. God fornøyelse
03.10.2018 - 08:04
Shelley skrifaði:
What is meant by the "marker thread" in the Increase tip? I Have worked the pattern to the end of the diagrams and get those but now I will be working the increases w/o the diagram.
19.08.2018 - 18:32DROPS Design svaraði:
Hi Shelley, The marker threads are inserted in the middle of the stitches cast on under the sleeves - 1 marker thread in each side. You increase 1 stitch on each side of both marker threads as described in the increase tip - 4 stitches increased each time. Happy knitting!
21.08.2018 - 07:49
Nina skrifaði:
Liebes DROPS Design Team, danke für die Beantwortung meiner Frage. Leider funktioniert der von Ihnen angegebene Link nicht. Könnten Sie den bitte neu setzen? Danke!
02.07.2018 - 10:38DROPS Design svaraði:
Liebe Nina, danke für den Hinweis, Link wurde korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
02.07.2018 - 10:47
Nina skrifaði:
Liebes Drops-Design-Team, ich würde dieses Modell gerne stricken, allerdings ohne Muster dafür in Streifen, in unterschiedl.Farben. D.h. ich würde das Muster einfach weglassen. Muss ich dann an der Maschenzahl etwas verändern?
30.06.2018 - 19:00DROPS Design svaraði:
Liebe Nina, je nach Ihrer Maschenprobe können Sie sich auch von ähnlichen (glatt rechts gestrickt) Modellen inspiereren - Z.B hier finden Sie alle Top-down Anleitungen mit 17 M = 10 cm in der Breite. Viel Spaß beim stricken!
02.07.2018 - 09:46Oksana skrifaði:
For sleeve rib it is said: 38-37-36-34-33-31 cm change to double pointed needles size 4.5 mm and work rib (purl 1, 2 stitches in GARTER STITCH – see description above) in the round from the wrong side, AT THE SAME TIME as on the first round you decrease 0-1-1-0-0-1 stitch = 39-42-42-45-45-48 stitches. The final quantity of 39-42-42-45-45-48 doesnt correspond to 38-37-36-34-33-31+ 0-1-1-0-0-1. What do I miss, please?
22.04.2018 - 14:43DROPS Design svaraði:
Dear Oksana, after all dec are done there are 39-43-43-45-45-49 stitches left and you dec depending on the size either 1 or no st: on the first round you decrease 0-1-1-0-0-1 stitch, ie you dec only in 2nd, 3rd and last size = 39-42-42-45-45-48 sts. Happy knitting!
23.04.2018 - 09:31
N Bellasalma skrifaði:
The knit/purl etc. diagrams for patterns are blank. In other words, I cannot tell which square should be knit and which should be purl. It is not just for this particular pattern but for all patterns. Can you please help me?
24.02.2018 - 13:23DROPS Design svaraði:
Dear N Bellasalma, the diagrams shows up on our side, so we see no problem, however we will check it. Until the problem solved can you please try to check the diagrams for the different languages? First try the British version. If you see the diagrams, but not the explanations, the empty square means a knit stitch, an X in the square means a purl. Happy crafting!
24.02.2018 - 23:29
Yolanda skrifaði:
Precioso jersey. He probado el convertidor de hilos, es genial muchas gracias.
15.02.2018 - 10:50
Randveig skrifaði:
Når kommer denne ut som gratis oppskrift?
03.02.2018 - 16:08DROPS Design svaraði:
Hej Randveig, det her er opskriften, og det er bare at skrive ud, helt gratis. God fornöjelse!
12.02.2018 - 15:53
Marie skrifaði:
Nyyydeli! Denne vil jeg strikke
20.01.2018 - 01:21
Sweet Pearl#sweetpearlsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa í garðaprjóni með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 187-37 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð í A. og A.5. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 24 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan mynstur frá miðju að aftan þannig: Prjónið svona yfir hálft bakstykki: Prjónið A.1 (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-5-5-5-5-10 lykkjur (= 1-1-1-1-1-2 sinnum á breidd), A.2 (= 1-2-3-4-5-1 lykkjur). Prjónið yfir framstykki þannig: Prjónið A.5 (= 2-3-4-5-1-2 lykkjur), A.1 yfir 10-10-10-10-15-20 lykkjur, A.2 yfir 1-2-3-4-5-1 lykkjur. Prjónið yfir vinstri ermi þannig: Prjónið A.3 yfir 16 lykkjur, A.4 yfir 5 lykkjur, A.3 yfir 16 lykkjur. Prjónið yfir hálft bakstykki þannig: prjónið A.5 yfir 2-3-4-5-1-2 lykkjur og A.1 yfir síðustu 5-5-5-5-10-10 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2, A.4 og A.5 (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.3 = alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum snúnar inn í mynstur, það eiga ekki að myndast göt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Mynstureining A.1 og A.3 er endurtekið á hæðina. Þegar A.2, A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina halda útaukningar áfram í annarri hverri umferð og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður. Aukið út hvoru megin við hvert A.3 alls 14-16-19-21-24-27 sinnum (meðtaldar útaukningar í A.2, A.4 og A.5) = 212-232-260-280-308-336 lykkjur. Haldið síðan áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsi. Nú skiptist stykkið við ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 31-33-36-40-45-51 brugðnar lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 63-67-73-81-91-103 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 32-34-37-41-46-52 lykkjur brugðið (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 142-154-166-182-202-222 lykkjur. Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni, en með rönguna út, þ.e.a.s. snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur frá röngu út. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi (= 71-77-83-91-101-111 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4 cm millibili alls 6-6-7-7-6-6 sinnum = 166-178-194-210-226-246 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er skipt yfir á hringprjón 4,5 og prjónaðar eru 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 43-49-57-59-63-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-10-10-10-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki mitt undir ermi = 51-59-67-69-73-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, þær 8-10-10-10-10-8 nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 5½-4-2½-2-2-2 cm millibili alls 6-8-12-12-14-12 sinnum = 39-43-43-45-45-49 lykkjur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 5 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er prjónað áfram í sléttprjóni frá röngu, þ.e.a.s. snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur frá röngu í hring. Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-31 cm skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) í hring frá röngu, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-1-1-0-0-1 lykkju = 39-42-42-45-45-48 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls 63-64-64-64-65-65 cm frá kanti í hálsmáli. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetpearlsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.