Guro wrote:
Hei Jeg har strikket ferdig bærestykket og har delt opp ermer og bol. Men hvordan snur jeg arbeidet og fortsetter på vrangen uten å måtte bryte tråden? Jeg fant ingen video med dette
08.08.2023 - 21:03DROPS Design answered:
Hei Guro, Du vrenger arbeidet helt og strikker neste omgangen rett, men i motsatt retning (så du trenger ikke å klippe tråden). Når du er ferdig med første omgangen er det kanskje lurt å plukke opp tråden mellom siste masken og første masken på neste omgang, slik at du ikke får et hull der du snudde. Håper dette hjelper og god fornøyelse!
10.08.2023 - 06:48Guro Ortiz-Fuglesteg wrote:
Hei, Hvor mye av garnet beregnes til strukturdelen øverst på denne genseren? Jeg vurderer å strikke den tofarget i str. M eller L.
15.05.2023 - 09:30DROPS Design answered:
Hei Guro. Det har vi ikke oversikten over. Vi veier et plagg kun når det er ferdig strikket og sammenligner det med de nøstene vi har brukt.mvh DROPS Design
15.05.2023 - 12:48Lucas Gontijo wrote:
Hi! I've got two questions about diagram A3. First, which row should I start increasing? In the first or in the second? Since the diagram doesn't have the black dots that signal the increases, I felt that this was not so clear in the instructions. On the other diagrams, it's always in the odd rows. I wonder if it's the same with A3. Also, once I've done the row in which A3 has been increased, I feel that the A3 diagram doesn't tell me what I should do with these increases in the next row.
27.12.2022 - 05:59DROPS Design answered:
Dear Mr Gontijo, the stitches in A.3 are the raglan lines, this means you will increase before A.3 (as shown in A.2 for example) or after A.3 (as shown in A.4 or A.5) - this means that you just have to follow the diagrams, and when they are done in height, just continue increasing as shown in A.2, A.4 and A.5 (= before A.3 and after A.3). Happy knitting!
02.01.2023 - 09:48Susanne wrote:
Hallo, Sie scheiben, dass man für den Rumpf die Arbeit auch wenden kann, sodass die Rückseite nach außen zeigt und man so glatt rechts stricken kann. Aber das gibt doch an der Wendestelle ein Loch. Wie vermeiden Sie das? Vielen Dank.
19.07.2022 - 15:26DROPS Design answered:
Liebe Susanne, das können Sie mit einer sog. "Doppelmasche" verstecken, oder mit einem Umschlag, wie mit verkürzten Reihen (siehe Video). Viel Spaß beim stricken!
01.08.2022 - 10:48Sallis wrote:
Hei, ohjeen neuletiheydeksi on merkitty 10 s, 20 krs. Ohjeessa käytetään kahta eri kokoa olevia puikkoja. Onko ilmoitettu tiheys ajateltu olevan pienemmille vai suuremmille puikoille?
08.10.2020 - 16:45DROPS Design answered:
Neuletiheys on tarkoitettu puikoille nro 5,5.
19.10.2020 - 17:36Carla wrote:
Hola. No entiendo cuantos aumentos se deben hacer una vez se termino en vertical A2,A4 y A5 para la talla S. Y una vez se terminan los aumentos donde queda A3? Los puntos de A3 van todos en ña manga o quedan alfunos en delantero y espalda? Quisiera saber porque tuve que destejer y no se como continuar. Gracias
26.05.2020 - 21:50DROPS Design answered:
Hola Carla! Cuando se hayan trabajado A.2, A.4 y A.5 1 vez en vertical, continuar con los aumentos cada 2ª vuelta (aumentar a cada lado de A.3 en total 14 veces) = 212 puntos. No importa donde esta A.3 ahora. Despues mira como dividir para las mangas y el cuerpo. Buen trabajo!
20.11.2020 - 13:37Matteo wrote:
Io ho fatto questo modello con il vostro filato Paris Denim... ho sempre 16 maglie in 10 cm... ma la lavorazione non torna...sono a 304 maglie ma non sono arrivato nemmeno a 20cm di sprone.. dove sbaglio?
08.04.2020 - 00:36DROPS Design answered:
Buongiorno Matteo, il campione indicato prevede 16 maglie in larghezza ma 20 ferri in altezza: la sua tensione è corretta anche in verticale? Quale taglia sta lavorando? Buon lavoro!
08.04.2020 - 08:47Ange wrote:
Bonjour, Pour le sweet pearl, comment puis- je savoir quelle taille tricoter pour homme, je n'arrive pas a me rendre compte s'il est pres du corps ou pas? Si on souhaite le porter au dessus d'une chemise, je me base sur les dimensions de la chemise, en largeur, mais c'est au niveau des cotes, pas du buste. Ou alors j'ai loupe cette mesure. Merci a vous pour la reponse. Merci pour vos modèles. . .
22.03.2020 - 09:41DROPS Design answered:
Bonjour Ange, tout dépend comme Monsieur veut porter ce pull. Mesurez un de ces pulls similaire qui lui va et dont il aime la forme et comparez ces mesures à celles du schéma - plus d'infos ici sur les tailles et les schémas. Bon tricot!
23.03.2020 - 10:02Loli wrote:
Hola, no puedo ver los patrones y diagramas. Un saludo
12.02.2020 - 00:15DROPS Design answered:
Hola Loli, el sitio web está funcionando normalmente ahora. Por favor, intentalo de nuevo.
12.02.2020 - 07:13
Sweet Pearl |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air í garðaprjóni með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 208-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.2 og A.5. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum eða að fella af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og e.t.v. 1 uppslætti á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – kantur í hálsi situr aðeins fastari ef prjónaðar eru 8 umferðir garðaprjón, veljið sjálf. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 24 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan mynstur frá miðju að aftan þannig: Prjónið yfir hálft bakstykki þannig: Prjónið A.1 (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-5-5-5-5-10 lykkjurnar (= 1-1-1-1-1-2 sinnum á breiddina), A.2 (= 1-2-3-4-5-1 lykkjur). Prjónið yfir hægri ermi þannig: Prjónið A.3 (= 16 lykkjur), A.4 (= 5 lykkjur), A.3 yfir 16 lykkjur. Prjónið yfir framstykki þannig: Prjónið A.5 (= 2-3-4-5-1-2 lykkjur), A.1 yfir 10-10-10-10-15-20 lykkjur, A.2 yfir 1-2-3-4-5-1 lykkjur. Prjónið yfir vinstri ermi þannig: Prjónið A.3 yfir 16 lykkjur, A.4 yfir 5 lykkjur, A.3 yfir 16 lykkjur. Prjónið yfir hálft bakstykki þannig: Prjónið A.5 yfir 2-3-4-5-1-2 lykkjur og A.1 yfir síðustu 5-5-5-5-10-10 lykkjum. Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2, A.4 og A.5 (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.3 = alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum snúnar inn í mynstur, það eiga ekki að myndast göt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Mynsturteikning A.1 og A.3 er endurtekið á hæðina. Þegar A.2, A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur útaukningin áfram í annarri hverri umferð og útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður. Aukið út hvoru megin við hvert A.3 alls 14-16-19-21-24-27 sinnum (meðtaldar útaukningar í A.2, A.4 og A.5) = 212-232-260-280-308-336 lykkjur. Haldið síðan áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsi. Nú skiptast ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 31-33-36-40-45-51 lykkjur brugðið (= hálft bakstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 63-67-73-81-91-103 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 32-34-37-41-46-52 lykkjur brugðið (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 142-154-166-182-202-222 lykkjur. Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni, en með rönguna út, þ.e.a.s. snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur frá röngu hringinn. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er skipt yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt jafnframt því sem aukið er út um 10-10-10-20-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð = 152-164-176-202-222-242 lykkjur. Prjónið 4 cm í stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), fellið af – sjá AFFELLING. Stykkið mælist alls 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 43-49-57-59-63-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og taki að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki mitt undir ermi = 51-59-67-69-73-73 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, 8-10-10-10-10-8 nýjar lykkjur undir ermi eru allar prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið síðan lykkjum með 6½-5-3-2,5-2,5-2,5 cm millibili alls 6-8-12-12-14-12 sinnum = 39-43-43-45-45-49 lykkjur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 5 cm frá skiptingu er prjónað áfram í sléttprjóni frá röngu, þ.e.a.s. snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur frá röngu hringinn. Þegar stykkið mælist 46-45-44-42-41-39 cm skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið kant (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) hringinn frá röngu, JAFNFRAMT sem í fyrstu umferð er fækkað um 0-1-1-0-0-1 lykkjur = 39-42-42-45-45-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-50-49-47-46-44 cm frá skiptingu er fellt af – sjá AFFFELLING. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Matteo wrote:
Una XL.. però già dai punti montati per il collo a me era enorme... ho fatto i punti di avvio di una M per poi arrivare alla fine dello sprone con una XL
08.04.2020 - 10:34