Mari Iris skrifaði:
Hei, dette er en veldig fin modell, men dessverre er oppskriften ovenfra og ned og veldig lang og tungvint. Dette måtte det da være mye greierer å ta nedenfra og opp!? Jeg skjønner ikke hvorfor dere nå har så mange oppskrifter ovenfra og ned; det blir tungt og krøkkete å strikke ermene på den måten. Men dette virket spesielt knotete!
19.02.2018 - 16:21
Amy skrifaði:
Wow. You used my name suggestion. Thank you!
05.02.2018 - 23:05
Nia skrifaði:
Nøj, hvor jeg glæder mig til opskriften kommer. Kan næsten ikke vente. Skal lave én i både Vin og Petrol....
31.01.2018 - 14:38
Laura Jensen skrifaði:
These patterns would make an effective flared skirt. Looking forward to seeing the pattern.
26.01.2018 - 19:17
Iris skrifaði:
Genau das, was ich suche! Freue mich schon auf die Anleitung.
18.01.2018 - 14:51
Desirée Forsman Strömner skrifaði:
Jättesöt, kan jag tänka mej att sticka!
14.01.2018 - 18:20
Riccarda skrifaði:
Bellissimo, non vedo l'ora di farlo ed indossarlo!
06.01.2018 - 14:41
Broňa skrifaði:
Krásný model. Už se nemoho dočkat návodu.
30.12.2017 - 21:11
Beti skrifaði:
Einfach traumhaft.
26.12.2017 - 19:13
Agneta Fihn skrifaði:
Jag älskar rosa, mönster och jag älskar att sticka så jag tycker modellen ska få heta AGNETA
14.12.2017 - 19:44
Lydia#lydiacardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og öldumynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Muskat.
DROPS 188-24 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.5 og A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 4 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan á hægra framstykki mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 7 næstu með ca 7-7-7-7-7½-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Hvor öxl er prjónuð fyrst hvor fyrir sig, áður en stykkið er sett saman. Ermar eru prjónaðar fyrst fram og til baka á hringprjón síðan í hring á sokkaprjón, ofan frá og niður. BAKSTYKKI: Prjónið fyrst 2 axlir, fitjið upp lykkjur fyrir hálsmál, axlirnar eru settar saman og síðan er prjónað fram og til baka niður að handvegi. VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að handveg). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 (= 10 lykkjur) yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd), endið með 5-0-9-4-3-8 lykkjur sléttprjón (= að hálsi). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2 cm er stykkið lagt til hliðar og hægri öxl er prjónuð (stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu). HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= að handveg), prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (= frá hálsmáli): Prjónið 6-1-10-5-4-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm, stillið af mál með vinstri öxl, nú eiga að hafa verið prjónaðar jafn margar umferðir og á vinstri öxl (þ.e.a.s. síðasta umferð er prjónuð frá réttu), fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli á milli hægri öxl og vinstri öxl frá röngu þannig: Prjónið yfir hægri öxl þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru, fitjið upp 39-39-41-41-43-43 nýjar lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir vinstri öxl þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. BERUSTYKKI AÐ AFTAN: = 73-83-83-93-93-103 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu 70-80-80-90-90-100 lykkjur (= 7-8-8-9-9-10 sinnum á breidd), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 14-15-15-16-13-14 cm. Aukið nú um 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING – fyrir handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umferð frá réttu (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út alls 4-4-6-6-11-11 sinnum = 81-91-95-105-115-125 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fitjið upp 5-4-6-6-8-9 lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu og 6-5-7-7-9-10 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 92-100-108-118-132-144 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (= frá handveg) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 5-0-9-4-3-8 lykkjur sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 3 sinnum og 15-15-16-16-17-17 lykkjur 1 sinni = 42-47-47-52-52-57 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur, A.3 (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 15-16-16-17-14-15 cm (stillið af mál með bakstykki og að næsta umferð sé frá réttu, nú eru eftir 8-8-12-12-22-22 umferðir þar til stykkið er sett saman) aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð frá réttu. Aukið svona út alls 4-4-6-6-11-11 sinnum = 46-51-53-58-63-68 lykkjur. Fitjið síðan upp 5-4-6-6-8-9 lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu = 51-55-59-64-71-77 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm. Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= að handveg), prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (= frá hálsi): Prjónið 6-1-10-5-4-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 3 sinnum og 15-15-16-16-17-17 lykkjur 1 sinni = 42-47-47-52-52-57 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 0-1-1-0-0-1 lykkja, A.4 (= 6 lykkjur) yfir næstu 6-0-0-6-6-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur (= 3-4-4-4-4-5 sinnum á breidd), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 14-15-15-16-13-14 cm (stillið af mál með bakstykki og að næsta umferð sé frá réttu, nú eru eftir 10-10-14-14-24-24 umferðir þar til stykkið er sett saman) aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok hverrar umferðar frá réttu. Aukið svona út alls 4-4-6-6-11-11 sinnum = 46-51-53-58-63-68 lykkjur. Fitjið síðan upp 6-5-7-7-9-10 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 52-56-60-65-72-78 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú öll stykkin saman frá réttu þannig: Prjónið fyrst yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 0-1-1-0-0-1 lykkja, A.4 yfir næstu 6-0-0-6-6-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur, 11-10-14-14-21-22 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki. Prjónið síðan yfir bakstykki þannig: Prjónið 10-9-13-13-20-21 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 70-80-80-90-90-100 lykkjur eins og áður (= 7-8-8-9-9-10 sinnum á breidd), 11-10-14-14-21-22 lykkjur sléttprjón. Prjónið síðan yfir hægra framstykki þannig: Setjið 1 prjónamerki, prjónið 10-9-13-13-20-21 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur, A.3 yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Nú eru 195-211-227-247-275-299 lykkjur í umferð og alls 21-19-27-27-41-43 lykkjur sléttprjón á milli framstykkja og bakstykkis. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-3-3-2-9 cm millibili alls 6-5-4-4-6-2 sinnum = 171-191-211-231-251-291 lykkjur. Þegar úrtöku er lokið eru eftir 9-9-19-19-29-39 lykkjur sléttprjón á milli framstykkja og bakstykkis. Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm frá prjónamerki, stillið af að endað sé með heilli mynstureiningu af A.2, prjónið áfram frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a (= 1 lykkja) yfir næstu 0-1-1-0-0-1 lykkju, A.6a yfir næstu 6-0-0-6-6-0 lykkjur, prjónið A.7a yfir næstu 150-180-200-210-230-280 lykkjur (= 15-18-20-21-23-28 mynstureiningar á breidd), A.8a (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Aukið út um lykkjur í A.6a til A.8a. Þegar A.5a til A.8a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 267-299-331-363-395-459 lykkjur í umferð. Prjónið A.5b yfir A.5a, A.6b yfir A.6a, A.7b yfir A.7a og A.8b yfir A.8a. Þegar allar lykkjur í A.6b til A.8b hafa verið auknar út til 347-353-371-407-443-459 lykkjur í umferð. Þegar eftir eru 4 umferðir í A.5b til A.8b er skipt yfir á hringprjón 3,5. Í síðustu umferð í A.5b til A.8b er fellt af þannig: Fellið af 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, fellið af A.5b til A.8b eins og útskýrt er í mynsturteikningu, fellið af síðustu 5 kantlykkjur að framan, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls ca 62-64-66-68-70-72 cm. ERMI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, síðan er ermin prjónuð í hring á stokkaprjóna til loka. Fitjið upp 23-25-27-31-33-37 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1-1-2-5-4-3 sinnum, 2 lykkjur 7-8-6-1-1-0 sinnum, 1 lykkja 4-3-5-7-9-14 sinnum og 2-2-3-3-5-7 lykkjur 1 sinni = 69-73-79-85-89-97 lykkjur (stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-13 cm). Þegar ermakúpan hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á sokkaprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-16 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 9-11-14-12-14-18 sinnum = 51-51-51-61-61-61 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-35-36-35-36-35 cm prjónið A.2 yfir allar lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju (þ.e.a.s. A.2 er prjónað alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd) = 50-50-50-60-60-60 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er skipt yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónaðar 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist ca 44-42-43-42-43-42 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 100-124 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Fellið síðan af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lydiacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.