Valentina skrifaði:
Buonasera, quanto filato serve per fare solo la sciarpa con le nappine ?
11.12.2023 - 22:39DROPS Design svaraði:
Buongiorno Valentina, la quantità di filato necessaria è indicata sulla destra della foto: per la sciarpa sono necessari 150g di DROPS Snow per colore. Buon lavoro!
19.12.2023 - 09:18
Inge Van Parys skrifaði:
Hoeveel bollen wol heb ik nodig voor dit patroon als ik DROPS DAISY UNI COLOUR - MERINO GAREN GD0068-19 MARINEBLAUW wil gebruiken? 1 bol weegt 50gr met een looplengte van 110m Breinaalden om te gebruiken is 4mm Alvast bedankt!
30.09.2023 - 10:35DROPS Design svaraði:
Dag Inge,
DROPS Daisy valt in garencategorie B en als je met 2 draden van Daisy breit kom je uit op ongeveer categorie D, dus nog steeds een andere dikte/stekenverhouding. Je zou de totale looplengte van dit project kunnen nemen en dat keer 2 doen (omdat je bij Daisy met minimaal 2 draden moet breien) en daarna delen. Dit is dan de hoeveelheid looplengte die je voor Daisy nodig zou hebben. Vraag je verkooppunt binnen welke termijn je eventueel overgebleven bollen terug kunt sturen.
03.10.2023 - 06:23
Helga skrifaði:
Hej Hvilken garntype kan man bruge hvis man ikke kan tåle ren uls
25.12.2018 - 12:23DROPS Design svaraði:
Hei Helga. Gjelder dette all-slags ull? kan du feks bruke Alpaca? eller eventuelt ull-blandinger? Dette skjerfet er strikket i Eskimo, som tilhører garngruppe E. Du kan feks erstatte dette med garn fra gruppe C, men da må du strikke med 2 tråder for å få den samme strikkefastheten. Om du vil unngå ull helt kan du bruke Paris eller Bomull-Lin, men da vil skjerfet bli ganske annerledes enn på bildet. Om Alpaca/Alpacablandinger går fint kan du feks bruke Air eller Brushed Alpaca Silk. her har du en oversikt over alle garnene, og de inneholder. God fornøyelse
03.01.2019 - 15:04
Marte skrifaði:
Hei. På bildet av skjerfet ser det ut som at fargene er blå, pastell og lilla, mens i oppskriften står det at det er forskjellige gråfarger. Stemmer det at skjerfet modellen har på seg er strikket i grå garn? Mvh Marte
24.10.2018 - 12:51DROPS Design svaraði:
Hei Marte. Skjerfet på bildet er strikket i de oppgitte fargene, altså lys grå, mørk grå, mellomgrå og ametyst. På noen skjermer kan enkelte av fargene på noen bilder ha et grønnlig skjær, men de er altså grå og ametyst. God fornøyelse.
05.11.2018 - 10:37
So Chill#sochillset |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Prjónuðum hálsklút í perluprjóni og kögri og húfu með röndum í sléttprjóni og perluprjóni úr DROPS Snow.
DROPS 182-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚRTAKA (á við um húfu): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 13. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar 12. og 13. hver lykkja saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 27 lykkjur á prjón 9 með litnum ljós grár Snow. Prjónið rendur þannig: RÖND-1: Prjónið 18 cm með litnum ljós grár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! RÖND-2: Prjónið 18 cm með litnum dökk grár. RÖND-3: Prjónið 18 cm með litnum milligrár. RÖND-4: Prjónið 18 cm með litnum bláfjólublár. Endurtakið þessar 4 rendur 2 sinnum til viðbótar. Fellið af. Stykkið mælist ca 216 cm. KÖGUR: 1 kögur: Klippið 2 þræði af hvorum lit ca 60 cm. Leggið þá saman tvöfalda, þræðið lykkjuna í gegnum lykkju í uppfitjunarkanti. Dragið síðan endana í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið 7 kögur meðfram uppfitjunarkanti og 7 kögur meðfram affellingarkanti. Klippið kögrið til þannig að það verði ca 25 cm að lengd. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið laust upp 52-58 lykkjur á hringprjón 8 með litnum milligrár Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 5-6 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 5-6 cm í sléttprjóni og 5-6 cm í perluprjóni. Haldið áfram í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 18-21 cm er fækkað um 4-2 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – lesið ÚRTAKA að ofan = 48-56 lykkjur. Setjið nú 8 prjónamerki í stykkið með 6-7 lykkja millibili. Í næstu umferð byrjar úrtaka. Fækkið um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki með því að prjóna 2 síðustu lykkjur á undan prjónamerki slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5 sinnum = 16-16 lykkjur. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman = 8-8 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið þráðinn vel. Húfan mælist ca 25-28 cm. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum milligrár og afgang af litnum ljós grár, litnum dökk grár og litnum bláfjólublár ca 10-10 cm að þvermáli og festið dúskinn efst á húfuna. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sochillset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.