Lene Birkely skrifaði:
Hvis jeg skal starte omgangen på bærestykket mellem venstre ærme og rygstykket som opskriften siger passer det ikke med maskeantallet. Umiddelbart sidder omgangsstarten mellem højre ærme og ryggen. Indtagningerne til halskanten sidder underligt skævt placeret, skal de det? Det ville være letter at overskue sammenhængen mellem diagram A2 og A4 hvis de var placeret ved siden af hinanden i henhold til størrelserne, og i den "højde" hvor de bruges i forhold til hinanden.
20.12.2017 - 08:16
Telegram For Her#telegramforhersweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með marglitu mynstri og laskalínu úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki): Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina á 10 cm en sem gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að laga með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni með jöfnu millibili á berustykki. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 272 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 6,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja saman. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). LASKALÍNA: Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.4 þannig: Fækkið um 1 lykkju eftir A.4 þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða í A.4, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan A.4 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.4, prjónið næstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri). Þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur við hvert A.4 og allt 8 lykkjur í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Stykkin eru sett saman og berustykki er prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 272-284-316-328-368-384 lykkjur á hringprjón 3 með litnum svartur Karisma. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 44-44-52-52-56-60 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR = 228-240-264-276-312-324 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þannig: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 113-119-131-137-155-161 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónamerki merkir hliðar á flíkinni. Prjónið síðan A.1 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 38-40-44-46-52-54 mynstureiningar á breiddina) – lesið LEIÐBEININGAR-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a á hæðina. Þegar stykkið mælist 39-41-40-42-41-43 cm, prjónið A.2 yfir A.1. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.2 er næsta umferð í A.2 prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 107-113-125-131-149-155 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 7 lykkjur, prjónið næstu 107-113-125-131-149-155 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Stykkið mælist ca 44-44-44-45-45-45 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjón, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 48-52-56-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-8-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð með litnum svartur, prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.3, prjónið A.1 yfir næstu 42-42-48-48-48-54 lykkjur (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar), endið með 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.3. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a endurtekið. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-14-15-17-19-21 sinnum = 66-72-78-84-90-96 lykkjur. Lykkjur í A.3 og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 38-39-37-37-34-35 cm prjónið A.2 yfir A.1. Þegar aukið hefur verið út um allar lykkjur undir ermi er A.2 prjónað alls 11-12-13-14-15-16 sinnum á breidd. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.3 er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-41-40-38-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 332-356-392-416-464-488 lykkjur. Byrjið umferð í skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis áður en prjónað er áfram. Prjónið þannig: Prjónið A.4 (= 2 lykkjur, byrjið við ör sem merkir þína stærð), haldi áfram með mynstur eins og áður, yfir næstu 103-109-121-127-145-151 lykkjur, A.4 (= bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur (= ermi), A.4, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 103-109-121-127-145-151 lykkjur, A.4 (= framstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 59-65-71-77-83-89 lykkjur (= ermi) – lesið LEIÐBEININGAR-2. Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 26-29-31-33-36-39 sinnum = 124-124-144-152-176-176 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir í svartur. Prjónið 1 umferð með svartur. Berustykkið mælist ca 19-21-23-24-26-28 cm. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka til þess að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmáli alveg eins að framan og að aftan. Prjónið upphækkun í hnakka eða farið áfram í að prjóna kant í hálsmáli ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (þetta merkir byrjun á umferð eftir að upphækkun hefur verið prjónuð). Prjónið að miðju að aftan, setjið 1 prjónamerki. Byrjið frá réttu með litnum svartur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 30-30-34-34-40-40 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-68-68-80-80 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 54-54-61-61-72-72 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-64-64 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-56-56 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan. Klippið frá. Umferðin byrjar nú við prjónamerki, þ.e.a.s. í skiptingu á milli vinstri ermi og bakstykkis. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið * 42-42-52-56-68-68 lykkjur slétt og fækkið um 2-0-8-8-18-16 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 20 lykkjur saman 2 og 2 (= 10 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 100-104-108-116-120-124 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 0-4-8-16-0-4 lykkjur eru eftir, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær lykkjur sem eftir eru = 120-124-128-136-144-148 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffi (þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir hvorri ermi yst í lykkjubogana. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #telegramforhersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.