Anna Jas skrifaði:
Klopt het dat voor het vest model Forest Mist maat S slechts 450 gram Alpaca Bouclé benodigd is, terwijl voor trui model Outlander ( 71 / 36) 550 gram garen nodig is? Hoe kan dit?
15.10.2018 - 13:20
Bauer Jennifer skrifaði:
Bonjour je suis débutante et je ne sais pas si c'est adapté?
16.03.2018 - 11:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bauer, lisez attentivement les explications, consultez nos vidéos pour comprendre les différentes techniques et n'hésitez pas à poser vos questions ici si besoin. Votre magasin saura également vous apporter toute assistance complémentaire. Bon tricot!
16.03.2018 - 14:14
Forest Mist#forestmistjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með sjalkraga, klauf í hliðum og skáhallandi öxl úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MÁL: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of löng þegar hún er mátuð. ÚRTAKA (á við um hliðar): Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið 5. og 6. lykkju frá kanti (= í skiptingunni á milli 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og þar sem stykkið skarast í sléttprjóni) slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaðar slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 49 og 59 cm M: 50 og 60 cm L: 51 og 61 cm XL: 52 og 62 cm XXL: 53 og 63 cm XXXL: 54 og 64 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 110-116-124-132-140-150 lykkjur á hringprjón 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25 cm – lesið MÆLING, fitjið upp 1 lykkju í lok 2 næstu umferða (klaufin endar hér) = 112-118-126-134-142-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 30 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 50 cm = 108-114-122-130-138-148 lykkjur. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-75 cm fellið af 4-5-7-9-10-12 lykkjur í byrjun 2 næstu umferðar fyrir handveg = 100-104-108-112-118-124 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Þegar stykkið mælist 82-85-88-91-94-96 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli: Setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð frá handveg í hvorri hlið þannig (prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 11-12-13-14-15-16 lykkjur á þráð 2 sinnum, síðan 19-19-18-18-18-19 lykkjur á þráð 1 sinni. Þegar allar lykkjur á öxl hafa verið settar á þráð eru 18-18-20-20-22-22 lykkjur eftir fyrir hálsmál mitt á bakstykki. Fellið þessar lykkjur af fyrir hálsmál. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af/settar á þráð og stykkið mælist ca 85-88-91-94-97-99 cm (mælt efst á öxl og niður). Setjið til baka lykkjur af þræði á annarri öxlinni á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – ATH. Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem lykkjur eru settar á þráð, takið upp hlekkinn á milli 2 lykkja og prjónið hann snúinn slétt saman við næstu lykkju á prjóni. Fellið af. Til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Endurtakið á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 73-76-82-86-92-97 lykkjur á hringprjón 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (= 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í byrjun á umferð frá réttu og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í lok umferðar frá hlið). Þegar stykkið mælist 25 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar frá réttu (klauf endar hér) = 74-77-83-87-93-98 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 30 cm er fækkað um 1 lykkju í hlið eins og á bakstykki (= 1 lykkja færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 50 cm = 72-75-81-85-91-96 lykkjur. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-75 cm fellið af 4-5-7-9-10-12 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu (= í hlið) fyrir handveg = 68-70-74-76-81-84 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist 82-85-88-91-94-96 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl: Setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð frá handveg þannig (prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 11-12-13-14-15-16 lykkjur á þráð 2 sinnum, síðan 19-19-18-18-18-19 lykkjur á þráð 1 sinni = 27-27-30-30-33-33 lykkjur eftir fyrir kraga. Stykkið mælist ca 85-88-91-94-97-99 cm (mælt efst á öxl). Haldið nú áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni yfir 27-27-30-30-33-33 lykkjur fyrir kraga og prjónið stuttar umferðir svo að kraginn leggist fallega. Byrjið frá röngu og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið 9-9-10-10-11-11 lykkjur, herðið á þræði, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið til baka. UMFERÐ 4: Prjónið 18-18-20-20-22-22 lykkjur, herðið á þræði, snúið. UMFERÐ 5: Prjónið til baka. UMFERÐ 6: Prjónið allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 7: Prjónið til baka. UMFERÐ 8: Prjónið allar lykkjur Endurtakið umferð 1-8 þar til kraginn mælist ca 6-6-6-6-7-7 cm þar sem hann er stystur (= meðfram hlið við öxl/handveg). Fellið laust af. Setjið til baka lykkjur af þræði á öxl á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – ATH. Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem lykkjurnar eru settar á þráð, takið upp hlekkinn á milli 2 lykkja og prjónið hann snúinn slétt saman við næstu lykkju á prjóni. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 73-76-82-86-92-97 lykkjur á hringprjón 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (= 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið í byrjun umferðar frá réttu og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í lok umferðar frá réttu). Þegar stykkið mælist 25 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu umferðar frá röngu (klauf endar hér) = 74-77-83-87-93-98 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 30 cm er fækkað um 1 lykkju í hlið eins og á hægra framstykki (= 1 lykkja færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 50 cm = 72-75-81-85-91-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-75 cm fellið af 4-5-7-9-10-12 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu (= í hlið) fyrir handveg = 68-70-74-76-81-84 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist 82-85-88-91-94-96 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl. Setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl í byrjun á hverri umferð frá handveg þannig (prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð): Setjið 11-12-13-14-15-16 lykkjur á þráð 2 sinnum, síðan 19-19-18-18-18-19 lykkjur á þráð 1 sinni = 27-27-30-30-33-33 lykkjur eftir fyrir kraga. Stykkið mælist ca 85-88-91-94-97-99 cm (mælt efst á öxl). Haldið nú áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni yfir 27-27-30-30-33-33 lykkjur fyrir kraga og prjónið stuttar umferðir svo að kraginn leggist fallega. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið 9-9-10-10-11-11 lykkjur, herðið á þræði, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið til baka. UMFERÐ 4: Prjónið 18-18-20-20-22-22 lykkjur, herðið á þræði, snúið. UMFERÐ 5: Prjónið til baka. UMFERÐ 6: Prjónið allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 7: Prjónið til baka. UMFERÐ 8: Prjónið allar lykkjur Endurtakið umferð 1-8 þar til kraginn mælist ca 6-6-6-6-7-7 cm þar sem hann er stystur (= meðfram hlið við öxl/handveg). Fellið laust af. Setjið til baka lykkjur af þræði á öxl á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – ATH. Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem lykkjurnar eru settar á þráð, takið upp hlekkinn á milli 2 lykkja og prjónið hann snúinn slétt saman við næstu lykkju á prjóni. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 34-36-38-40-40-42 lykkjur á hringprjón 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7-7-11-7-11-9 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-3-3-2-2 cm millibili alls 9-9-10-11-12-13 sinnum = 52-54-58-62-64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur í 2-3-4-5-6-7 cm frá prjónamerki (stykkið mælist nú ca 45-45-45-44-44-43 cm). Fellið af 5 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki – prjónamerki í hvorri hlið á ermi eiga að mæta ystu lykkju sem felld var af fyrir handveg á fram- og bakstykki. Saumið auminn undir ermum og hliðarsauma kant í kant í ystu lykkjubogana, en endið við lykkjuna sem fitjuð var upp eftir 25 cm á fram- og bakstykki (= klauf). Saumið saman affellingarkantinn á 2 stykkjunum fyrir kraga og saumið allan kragann við hálsmál á bakstykki. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í vinstri kant að framan ca 4 cm inn frá kanti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestmistjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.