Christiane skrifaði:
Ein wunderschönes Teil. Auch mit der Ersatzwolle. \r\nAuf die 113 Maschen pro Seite kommt man allerdings nur, wenn man auch bei A5 die ersten beiden Umschläge in der vorletzten Reihe weglässt und den letzten Umschlag bei A7 in der vorletzten Reihe.\r\nDann natürlich auch in der letzten Reihe von A5 die ersten beiden Maschen und bei A7 die letzte Masche weglassen.
25.01.2025 - 11:25
Anna skrifaði:
Jag avser, som det står i min fråga, diagram 3, 8 och 9 där antalet maskor enligt rad 21 inte stämmer med rad 22.
13.03.2024 - 17:16
Anna Christina Logren skrifaði:
När jag stickar del 1 får jag inte ihop mönstret på rad 22 (diagram 8 + 3 + 9) utan har en rätmaska för mycket i vardera sidan. Maskantalet på varv 21 stämmer, men om jag sedan stickar varv 22 enligt diagrammen så förskjuts hela mönstret "ett steg åt sidan" - jag har helt enkelt en rätmaska för mycket i varje sida. Är det bara jag som inte ser en grov miss eller borde det minskas ytterligare två maskor totalt på varv 21?
07.03.2024 - 21:37DROPS Design svaraði:
Hej Anna, hur många maskor har du og vilket diagram stickar du? Så skall vi titta på varv 21 och 22 :)
13.03.2024 - 15:35
Rikke skrifaði:
Der er en fejl i diagram A8 og A9, omgang 21. Tæller du det samlede antal masker sammen, så har du to masker for meget. Der burde være angivet to ret sammen i stedet for to ret i starten af omgang 21 i diag. A8 Ligeledes to ret drejet sammen i stedet for 2 ret i slutningen af omgang 21 i diag. A9. Følger du diagrammet, som det er nu, så har du for mange masker på de følgende pinde. Kan se at der er en norsk kvinde, der påpegede samme fejl tilbage i dec '21.
08.09.2023 - 15:38
Anne skrifaði:
Bonjour, je crois qu'il y a une erreur au 21ème rang de A9 et A8. A la fin de ce rang, on obtient 123 mailles et non plus 121. Je pense qu'il manque une réduction (deux mailles ensemble au début de A8) et à la fin de la A9 (Un glissé d'une maille endroit passée ensuite).
25.04.2022 - 18:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, les diagrammes vont se chevaucher sur ce rang, ainsi, lorsque vous tricotez A.8, la dernière maille de ce rang va se tricoter avec les 2 premières mailles du motif suivant (A.3, 1ère partie), et les la dernière maille du dernier A.3 va se tricoter avec les 2 premières mailles de A.9, ainsi le nombre de mailles tombe juste. Bon tricot!
26.04.2022 - 10:14
Vineeta Bhandari skrifaði:
Please can you send me written instructions preferably for knitting on two straight needles. Thank you
21.04.2022 - 05:50
Lily skrifaði:
Når det står at kast skal hoppes over i A.2 og A.4, er det ikke da kast for mye i A.5 og A.7 (de 2 første i A.5 og siste i A.7 er vel feil) for at masketallet skal gå opp? Og, er det feil i A.8 og A.9? Burde det ikke vært 2 r sm istedet for 2 r i starten av A.8, (og tilsvarende 2 sammen i slutten av A.9) i omg 21? Og, burde det ikke noen av 2 vr sm i A.5-A.7 vært bytta ut med rett sammen (slik at det blir mer som i A.10-A.12)?
13.12.2021 - 19:43DROPS Design svaraði:
Hej Lily, vi har ikke hørt at det skal være fejl i opskriften. Hvis du opdager en fejl, så skriv nøjagtig hvor du er i opskriften, hvor mange masker du har og hvilken pind i diagrammet som ikke stemmer. På forhånd tak !
27.01.2022 - 10:16
Jette Krog skrifaði:
Hej Jeg forstår ikke starten på opskriften- der står man skal strikke rundt på strømpepinde - skal der ikke strikkes frem og tilbage? Det jo ikke et rør?
30.07.2021 - 16:29DROPS Design svaraði:
Hej Jette, sjalet er strikket rundt fra midten og ud - se her: TØRKLÆDE: Arbejdet strikkes rundt i firkant på strømpepinde/rundpind med start fra midten af tørklædet. Når firkanten er færdig er bredden på halstørklædet nået, og der lukkes af i 2 af siderne. Derefter fortsættes der frem og tilbage ud mod hver af de 2 andre sider.
06.08.2021 - 14:21
Liz skrifaði:
This pattern is very pretty and I would like to continue making it into a large square and not go back and forth, which graph would be best to follow, I can make adjustments as needed, thank you
31.05.2021 - 07:49DROPS Design svaraði:
Dear Liz, if you like to get a large square, you just have to continue working A.2, A.3 and A.4, increasing the number of A.3 worked between A.2 and A.4 every time you have worked the diagrams in height. Happy knitting!
31.05.2021 - 08:16
Martine ANNE CALLE skrifaði:
Bonjour, je vous remercie pour votre réponse Martine
09.03.2021 - 18:30
Hot Coal#hotcoalset |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðum hálsklút og húfu með gatamynstri úr DROPS Lace og DROPS Kid-Silk.
DROPS 183-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Hálsklútur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.13 til A.15. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í ferning á sokkaprjóna/hringprjón með byrjun frá miðju á hálsklút. Þegar ferningurinn hefur verið prjónaður til loka á breiddina þá er hálsklúturinn tilbúinn og fellt er af í tveimur hliðum. Síðan er prjónað áfram fram og til baka út að hvorri af hinum tveimur hliðunum. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjón 3 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat) = 16 lykkjur. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 4 sinnum í umferð – lesið MYNSTUR að ofan. Skiptið yfir á hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka eru 128 lykkjur í umferð. Setjið 4 prjónamerki án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun umferðar, 2. prjónamerki eftir 32 lykkjur, 3. prjónamerki eftir 32 lykkjur og setjið 4. prjónamerkið eftir 32 lykkjur, láið síðan prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) * , prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 60 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 240 lykkjur í umferð). Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 56 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 88 lykkjur á milli prjónamerkja (= 352 lykkjur í umferð). Prjóni nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur til og með 12. umferð (= umferð með ör í mynsturteikningu). Nú eru 102 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 408 lykkjur í umferð). Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * haldið áfram með 13. umferð, umferð í A.2/A.3/A.4 fram að næsta prjónamerki, prjónið A.5 (= 9 lykkjur), A.6 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum), A.7 (= 9 lykkjur), prjónamerki*, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur þar til 2 umferðir eru eftir í mynsturteikningu. Prjónið næstu umferð í mynstri, en hoppið yfir fyrstu 2 uppslætti í A.2 og hoppið yfir síðasta uppslátt í A.4 (sjá stjörnu í mynsturteikningu). Síðasta umferð i mynstri er prjónuð þannig: ATH: Hoppið yfir 2 fyrstu rúður í A.2 og hoppið yfir síðustu rúðu í A.4. Prjónið frá 1. og 2. prjónamerki og setjið 113 lykkjur á þráð (= hluti-1). Prjónið að 3. prjónamerki og setjið 113 lykkjur á þráð (= hlið). Prjónið að 4. prjónamerki og setjið 113 lykkjur á þráð (= hluti-2). Prjónið að 1. prjónamerki = 113 lykkjur í umferð (= hlið). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni hvoru megin við þessar lykkjur í 1½ cm. Fellið laust af – lesið AFFELLING að ofan. Setjið 113 lykkjur frá hinni hliðinni (= frá 2. og 3. prjónamerki) á hringprjón 3. Byrjið frá röngu og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni hvoru megin við þessar lykkjur í 1½ cm. Fellið laust af. Ferningurinn mælist ca 50 cm á breidd og 47 cm á hæð. HLUTI-1: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Setjið 113 lykkjur af hluta 1 á hringprjón 3 og setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið upp 4 lykkjur í kant í garðaprjóni í hlið, prjónið A.8 (= 14 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.9 (= 15 lykkjur) og prjónið upp 4 lykkjur í hlið í garðaprjóni í hlið = 121 lykkjur. Þær 4 lykkjur sem eru í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 47 cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu á hæðina. Prjónið nú mynstur þannig frá réttu: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, A.10 (= 14 lykkjur), A.11 yfir næstu 84 lykkjur (= 6 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.12 (= 15 lykkjur og 4 lykkjur garðaprjón. Þegar mynstureining hefur verið prjónuð til loka á hæðina prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið laust af. Stykkið mælist ca 52 cm. HLUTI-2: Stykkið er prjónað alveg eins og hluti-1. Þ.e.a.s. setjið 113 lykkjur frá hluti-2 á hringprjón 3 og setjið 1 prjónamerki. Byrjið á að prjóna upp lykkjur í hlið í garðaprjóni og prjónið mynstur eins og hluti-1. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í ferning á sokkaprjóna/hringprjón, ofan frá og niður. HÚFA. Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjón 3 með 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat) = 16 lykkjur. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 4 sinnum í umferð – lesið MYNSTUR að ofan. Skiptið yfir á hringprjón þegar nægilega margar lykkjur hafa verið auknar út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka eru 128 lykkjur í umferð. Nú er mynstrið prjónað þannig: Prjónið * A.13 (= 3 lykkjur), A.14 (= 14 lykkjur) og A.15 (= 15 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 168 lykkjur í umferð. Færði byrjun á umferð til um 1 lykkju til vinstri. Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið A.14 yfir allar lykkjur (= 12 mynstureiningar með 14 lykkjum). Prjónið mynsturteikningu til loka 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 46 lykkjur jafnt yfir = 122 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 3 cm og fellið laust af – lesið AFFELLING að ofan. Stykkið mælist ca 24 cm. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hotcoalset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.