DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4422.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Children 30-13

#isaksweater

DROPS Design: Mynstur ai-007-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-200-200-250-250 gr litur 03, perlugrár

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-400-400-500-500 gr litur 23, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4422.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 25 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á eftir prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-128-136-144-152-160 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air eða Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= í hlið). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 21-23-25-25-27-29 lykkjur og fækkið jafnframt út um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, prjónið A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 19-19-19-23-23-23 lykkjur sem auknar eru til 20-20-20-24-24-24 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið 21-23-25-25-27-29 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= í hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 59-63-67-71-75-79 lykkjur og fækkið jafnframt um 9-9-9-11-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Nú eru 54-58-62-66-70-74 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og 50-54-58-60-64-68 lykkjur á bakstykki = alls 104-112-120-126-134-142 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: 17-19-21-21-23-25 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.1 (= 20-20-20-24-24-24 lykkjur) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.2 yfir þessar 20-20-20-24-24-24 lykkjur. A.2 er síðan endurtekið. Þegar stykkið mælist 23-26-29-32-35-38 cm fellið af 6 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 44-48-52-54-58-62 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og síðan 1 lykkju 1-1-2-1-1-2 sinnum í hvorri hlið = 38-42-44-48-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-38-42-46-50-54 cm fellið af 16-18-20-22-22-24 miðju lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 10-11-11-12-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-40-44-48-52-56 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 48-52-56-60-64-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og síðan 1 lykkju 1-1-2-1-1-2 sinnum í hvorri hlið = 42-46-48-54-58-60 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 31-34-38-41-45-48 cm. Í næstu umferð eru prjónaðar 10-10-10-12-12-12 lykkjur yfir kaðal við miðju að framan slétt saman 2 og 2 (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur færri). Í næstu umferð eru miðju 9-11-13-14-14-16 lykkjur settar á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 2-2-2-3-3-3 sinnum = 10-11-11-12-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-40-44-48-52-56 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 32-32-34-34-36-36 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air eða Paris.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – lesið LEIÐBEININGAR = 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-4-3½-4½-3½ cm millibili alls 6-7-7-8-8-10 sinnum = 40-42-44-46-48-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-28-32-35-39-42 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið ermakúpu fram og til baka í sléttprjóni jafnframt er fellt af í byrjun hverrar umferðar á hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-2-2-2-2-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkju 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þar til stykkið mælist 29-34-38-42-46-50 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun 2 næstu umferðum og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 30-35-39-43-47-51 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Byrjið við miðju aftan í hnakka og prjónið upp frá réttu ca 40 til 62 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er aukið jafnt út til 54-64-66-70-70-76 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS Children 30-13
Diagram for DROPS Children 30-13

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Sandra skrifaði:

Please can I knit this on ordinary straight neeedles? I have aran weight wool which I've knitted on 4 & 4.5 needles for his sister and want to knit a simple jersey with a cable somewhere for a 2yr old boy . Can you help please?

30.03.2020 - 23:22

DROPS Design svaraði:

Dear Sandra, you will find here how to adapt a pattern into straight needles - this pattern is worked for a tension of 16 sts x 20 rows stocking st = 10 x 10 cm with larger needles, if you have another tension, measurements won't be right - read more about tension here - you should then search for another pattern matching your tension. Happy knitting!

31.03.2020 - 09:55

country flag Tracie Moleta skrifaði:

Hi there, I am knitting for 7 year olds, it would not seem that you have the stitches, can you help please. Thanks heaps

24.02.2020 - 08:14

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Moleta, in size 7 years you start with 144 sts and work as follows after ribbed edge: Knit the first 25 sts decreasing 4 stitches evenly (= 21 sts remain), A.1 (= 23 sts increased to 24 sts on the first round), knit 25 sts decreasing 4 sts evenly (= 21 sts remain), insert 1 marker thread, knit the next 71 sts decreasing 11 sts evenly (=60 sts remain) = a total of 126 sts (=21+24+21 for the front piece + 60 sts for the back piece). Happy knitting!

24.02.2020 - 10:01

country flag Pietrement Mireille skrifaði:

Ca fait maintenant plus de trente ans que je tricote et je n'ai jamais vu d'explications aussi compliquées, vous embrouillez à souhait les explications; = 1 maille endroit sur l'endroit, envers sur l'envers = 1 maille envers sur l'endroit, endroit sur l'envers c'est du jersey endroit tout simplement, comment voulez-vous que personne débutante si retrouve, malgré mon expérience, j'ai un mal fou à déchiffrer vos explications.

21.09.2019 - 19:35

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Pietrement, si 1 m endroit sur l'endroit, envers sur l'envers correspond à du jersey endroit (= mailles des torsades), 1 m envers sur l'endroit et endroit sur l'envers correspond à du jersey envers (avant et après les torsades), si vous préférez utilisez des termes plus techniques. Bon tricot!

23.09.2019 - 10:18

country flag Sue skrifaði:

I'm finishing this sweater... the shoulder seams were easy, but I'm having trouble making smooth seams for the sleeves because of the sleeve edges. That is, the binding-off that formed the upper curve of the sleeve makes it hard (for me) to create a smooth seam. Any suggestions? videos for this kind of seam?

22.04.2019 - 16:05

DROPS Design svaraði:

Dear Sue, we have added your wish on our todolist - for any further assistance, you are welcome to contact your store, they will help you to sew the different seams. Happy knitting!

06.05.2019 - 15:56

country flag Tonnie Asveld skrifaði:

Ik wil heel graag een trui breien voor een jongen van 8/9jaar en naald nr 6/7 heeft U daar misschien een patroontje voor.

13.03.2019 - 19:17

DROPS Design svaraði:

Dag Tonnie,

Je zou even kunnen kijken bij de kinderpatronen en dan kiezen voor garengroep D of E.

25.03.2019 - 10:16

country flag Rita Heytens skrifaði:

Ik ben een truitje aan het breien, witte boord in ribbels en dan rose . Nu pas gezien dat witte boord van voorpand in een ander wit is gebreid. Jammer genoeg is het pand helemaal af , ik kan perfect de witte boord losmaken , mijn vraag kan ik de witte boord naar onder breien of komt dit niet goed?

24.02.2019 - 17:35

DROPS Design svaraði:

Dag Rita,

Helaas begrijp ik je vraag niet helemaal. Deze trui wordt in 1 kleur parelgrijs gebreid met kabels en tricotsteek. Voor vragen over andere patronen kun je bij het betreffende patroon een vraag stellen.

26.02.2019 - 09:00

country flag Sally Price skrifaði:

5 minutes after writing you to ask about the diagrams.... I finally figured out the system! Sorry for bothering you. Now I understand what I'm doing!!!

17.02.2019 - 23:57

country flag Sally Price skrifaði:

I'm starting to knit cable sweater Isak (the first time I've used a DROPS pattern) and I suddenly realize that I don\'t understand at all how to read/use the references to A-1\ and A-2 diagrams. Can you help me?

17.02.2019 - 23:35

DROPS Design svaraði:

Hi Sally, The diagrams for A.1 and A.2 are at the bottom of the pattern. They are read from bottom right to left and upwards and will give you the cable pattern on the jumper.Both diagrams are worked once in width on the front piece and when you have finished A.1, work A.2 directly above A.1. I hope this helps and happy knitting!

18.02.2019 - 07:57

country flag Rigmor Svensson skrifaði:

Kan man bara få köpa mönster efter som jag har massa garn

04.02.2019 - 18:14

DROPS Design svaraði:

Hei Rigmor, Alle oppskriftene er gratis. Det er bare å åpne oppskriften og skrive ut. God fornøyelse!

05.02.2019 - 08:14

country flag Hankart Myrna skrifaði:

Bonjour je vaudrais le tricoter avec deux aiguilles taille 3 ans et 7 ans \r\nmerci

28.01.2019 - 14:53