Käst Jessica skrifaði:
Hallo nach der Passe habe ich 4 Maschen für den Ärmel und 14 Maschen für das Vorderteil. Zunahmen Ärmel insgesamt 18 je 2 Maschen = 36 + 4 Anfangsmaschen= 40 Maschen. Vorderteil 24 Zunahmen + 14 Anfangsmaschen sind 62 Maschen. Nach den Zunahmen wie folgt stricken 35 Maschen Vorderteil, habe aber laut Berechnung nur 31 Maschen. Dann 48 Maschen Ärmel stilllegen, habe aber nur 40 Maschen. Finde den Fehler nicht. Wenn ich mich an die Zunahmen halte habe ich zu wenige Maschen.
11.02.2018 - 09:20DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Käst, zwischen Ärmel und Vorder- & RÜckenteil haben Sie die 11 Maschen im Muster A.1, so stricken Sie die Maschen für das halbe Rückenteil, und dann die Maschen für die Ärmel stillegen - Beachten Sie, daß Sie die richtige Größe folgen, die beschriebenen Zunahmen für Raglan gehören zu Größe 7/8 und 9/10 aber die 35 M für Vorderteil und 48 M für die Ärmel gehören zu Größe 5/6. Viel Spaß beim stricken!
12.02.2018 - 09:11
Sonja skrifaði:
Hvordan laver jeg denne model om til str 1år? Mvh Sonja
09.11.2017 - 17:03DROPS Design svaraði:
Hei Sonja. Denne genseren har vi bare oppskrift fra 2 år. mvh Drops Design
10.11.2017 - 10:59
Kathy skrifaði:
Hi - once I complete the garter stitch rounds and move to the first round I always have 4 stitches left to the beginning of the next round...what am not doing wrong? Thank you in advance...Kathy
01.11.2017 - 03:31DROPS Design svaraði:
Dear Kathy, make sure you have the correct number of sts on each place/piece, ie: 5-6-7-7-8-8 stitches in stocking stitch (= half back piece), A.1 (= 11 stitches), 4 stitches in stocking stitch (= sleeve), A.1, 10-12-14-14-16-16 stitches in stocking stitch (= front piece), A.1, 4 stitches in stocking stitch (= sleeve), A.1, 5-6-7-7-8-8 stitches in stocking stitch (= half back piece). Happy knitting!
01.11.2017 - 11:38
DETRUISEUX skrifaði:
Bonjour, Pour la tunique , il n'y a pas de diagramme représenté pour faire le modèle, comment fait-on pour réaliser le tricot? Cordialement. Sara Detruiseux
21.10.2017 - 12:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Detruiseux, vous trouverez le diagramme A.1 pour le point ajouré à droite du schéma des mesures, en bas de la page. Bon tricot!
23.10.2017 - 10:02
Tickles#ticklessweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð tunika fyrir börn með laskalínu og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASAKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á UNDAN A.1 (á einungis við um stærð 2 ára): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.1. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR Á EFTIR A.1 (á einungis við um stærð 2 ára): Prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJUR Á UNDAN A.1 (á við um allar stærðir): Prjónið fram að A.1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJUR Á EFTIR A.1 (á við um allar stærðir): Prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan. Prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-76-80-80-84-84 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Karisma. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá miðju að aftan: Prjónið 5-6-7-7-8-8 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), A.1 (= 11 lykkjur), 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 10-12-14-14-16-16 lykkjur sléttprjón (= framstykki), A.1, 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 5-6-7-7-8-8 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH! Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ 2 ÁRA: AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út um 4 lykkjur á bakstykki og 4 lykkjur á framstykki (= 2 lykkjur á undan/eftir A.1): Aukið svona út í annarri hverri umferð 4 sinnum. Aukið út um 2 lykkjur á bakstykki og 2 lykkjur á framstykki (= 1 lykkja á undan/eftir A.1): Aukið svona út í annarri hverri umferð 12 sinnum. AUKIÐ ÚT Á ERMUM ÞANNIG: Aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi (= 1 fastalykkja á undan/eftir A.1): Aukið út í annarri hverri umferð 14 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 1 sinni (= alls 15 sinnum). STÆRÐ 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára: AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur á bakstykki og 2 lykkjur á framstykki (= 1 lykkja á undan/eftir A.1): Aukið svona út í annarri hverri umferð 21-22-24-24-26 sinnum. AUKIÐ ÚT Á ERMUM ÞANNIG: Aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi (= 1 lykkja á undan/eftir A.1): Aukið út í annarri hverri umferð 11-12-12-12-12 sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð 5-5-6-6-7 sinnum (alls 16-17-18-18-19 sinnum). ALLAR STÆRÐIR: Eftir alla útaukningu eru 212-224-236-248-252-264 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður (án útaukninga) þar til stykkið mælist 14-16-16-18-18-19 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-66-70-74-76-80 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 31-33-35-37-38-40 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið mitt í 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-3-3½-4-4½-5½ cm millibili alls 6 sinnum = 160-168-176-184-192-200 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-23-27-29-33-36 cm frá skiptingu eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af með brugðnum lykkjum. Tunikan mælist alls ca 40-44-48-52-56-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-3-3-3½-3½-4 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 36-38-38-40-40-42 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 22-26-30-33-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af með brugðnum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ticklessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.