Annie Katona skrifaði:
Sur le modèle cosy weekend le diagramme A1 n est pas clair pour moi après les 16 mailles alternant 2 mailles endroit et 2 mailles endroit puis 2 mailles endroit dois je faire 1 maille envers sur endroit et une maille endroit sur envers ou deux mailles envers sur endroit et le rang suivant deux mailles endroit sur envers merci de votre réponse
25.09.2018 - 14:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Katona, vous tricotez 2 m endroit/2 m envers sur les 16 m suivantes (= 8 fois), puis 2 m endroit, puis A.1 (= 25 mailles soit 2 m env, 2 m end, 2 m env, 2 m end, 2 m env, 2 m end, 1 m env, 2 m end, 2 m env, 2 m end, 2 m env, 2 m end, 2 m env), puis 2 m end/2 m env sur les 72 dernières mailles. Comme on tricote en rond, vous tricoterez ces mailles comme elles se présentent sur l'endroit = à l'end ou à l'env sur l'endroit. Bon tricot!
25.09.2018 - 15:52
He skrifaði:
Hei, ønsker å strikke Cozy Weekend / DROPS 181-13 . Den er i et tykt ullgarn (Eskimo) men jeg kunne tenkt meg noe som ikke er så varmt - finnes det noe tilsvarende i et blandingsprodukt typ bomull + noe annet?
14.03.2018 - 20:55DROPS Design svaraði:
Hei He, Hvis du søker på nett sida på oppskrifter og deretter genser får du mange forskjellige mønster som bruker forskjellige garn. Du kunne også bruke en annen type garn med den oppskriften, men da må du regne ut hvor mange masker og pinne størrelse du trenger for å få riktig strikkefasthet God fornøyelse!
15.03.2018 - 08:42
Maija Palkeinen skrifaði:
I’m confused in Cozy Weekend Sweater pattern 181-13 when it says “a.2 (=25 stitches) OVER a.1” Does this mean that after I complete the 6 cm of ribbing that I begin the Cable pattern from A.1 and work up repeating the pattern every 18 rows or do I forget about the a.1 section until I reach the top of the pattern again? Help!
24.02.2018 - 20:44DROPS Design svaraði:
Dear Maia, you start with the A.1 pattern (which is 25 stitches, and it is the ribbing). Then, when the ribbing is about 6 cm, on the 25 stitches of the A.1 pattern, you knit the A.2 pattern (cable) and repeat the rows of the A.2 pattern, no ribbing in between, just the cables. I hope this helps. Happy knitting!
24.02.2018 - 23:15
Fiona Blanke skrifaði:
Hallo, wird der Kragen tatsächlich bei einer Länge von 2cm gelassen, oder ist es ein Tippfehler und es müssen 20cm sein? So sieht es zumindest auf dem Foto aus. Liebe Grüße
28.12.2017 - 08:51DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Blanke, danke für den Hinweis, Kragen wird 12 cm im Rippenmuster gestrickt, Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2018 - 09:10
Anne Grethe skrifaði:
Skøn trøje❤️Har lavet 5 stk. Og er nu i gang med den 6 til mig selv i julerød❤️
27.10.2017 - 15:55
Linda skrifaði:
De omschrijving van de te gebruiken materialen is niet helemaal consistent. Wil je volgens de omschrijving van het patroon breien, dan zijn aan extra naalden nodig: korte rondbreinaald nr. 9 voor hals, breipennen zonder knop nr. 10 voor inbreien mouwen. Breipennen zonder knop nr. 9 zijn dan niet nodig.
12.10.2017 - 10:25
Michelea skrifaði:
Salve non ho mai usato i ferri a doppia punta.non so a cosa servono e come vanno usati.se mi piace un modello,lo evito x questo.come potete aiutarmi?buona giornata
09.10.2017 - 08:14DROPS Design svaraði:
Buongiorno Michela. I ferri a doppia punta spesso vengono usati per lavorare in tondo quando le maglie sono poche. Può sostituirli con dei ferri circolari con cavo corto, oppure se preferisce, può usare ferri circolari con cavo lungo e, quando le maglie sono troppo poche, lavorare con la tecnica del magic loop, descritta nel video sotto. Buon lavoro!
09.10.2017 - 08:39
Bettina Falk skrifaði:
Hallo, findet die Verzopfung in jeder 7. oder in jd. 13 Reihe statt ?? Ich habe gerade eine Denk-blockade :-
06.10.2017 - 15:18DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Falk, die Verzopfung findet in jd 14. Reihe statt, dh nach den letzten 7 Reihen in A.2 + den ersten 6 Reihen in A.2).Viel Spaß beim stricken!
06.10.2017 - 15:48
Hanka skrifaði:
Bílý sen
08.08.2017 - 14:48
Eira skrifaði:
Intresserad av sticka denna, när blir den tillgänglig?:)
21.07.2017 - 20:32
Cozy Weekend#cozyweekendsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og háum kraga úr DROPS Snow. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir handveg og bakstykki og framstykki eru prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Kraginn er prjónaður á stutta hringprjóna í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 99-107-115-123-131-143 lykkjur á hringprjón 9 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig: S-L- XXL-XXXL: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 12-16-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 25 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, yfir þær 60-72-84-92 lykkjur sem eftir eru. M-XL: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 16-20 lykkjur, prjónið A.1 (= 25 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 64-76 lykkjur og endið með 2 lykkjur slétt. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 10. Prjónið 0-0-0-0-0-1 lykkju sléttprjón, umferðin byrjar nú hér, setjið 1 prjónamerki (umferðin hefur nú færst til um 0-0-0-0-0-1 lykkju). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 14-16-18-20-22-25 lykkjur, A.2 (= 25 lykkjur) yfir A.1, sléttprjón yfir næstu 14-16-18-20-22-25 lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið sléttprjón yfir síðustu 46-50-54-58-62-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af lykkjur fyrir handveg í næstu umferð þannig (passið uppá að næsta umferð sé 1.-3.-5.-7.-9.-11. eða 13. umferð í A.2): Fellið af 2-2-2-2-2-3 fyrstu lykkjur í umferð, prjónið næstu 49-53-57-61-65-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 4-4-4-4-4-6 næstu lykkjur, prjónið þar til 2-2-2-2-2-3 lykkjur eru eftir, fellið þessar lykkjur af. Klippið frá. Nú er hvort stykki prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 42-46-50-54-58-62 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg (stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm) fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 13-15-16-18-19-21 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 12-14-15-17-18-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg (stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm). Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 49-53-57-61-65-69 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-50-52-52-54 cm (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Setjið nú lykkjur á þráð fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 16-18-19-21-22-24 lykkjur eins og áður, prjónið næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur eins og áður og fækkið um 7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= 10-10-12-12-14-14 lykkjur á þræði), prjónið yfir 16-18-19-21-22-24 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur eins og áður yfir þær lykkjur í A.2 sem eftir eru og fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 12-14-15-17-18-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stillið af við bakstykki. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður. Prjónið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur meðfram handveg í ystu lykkju/umferð á hringprjóna 10 með Snow. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er felld af 1 lykkja hvoru megin á stykki (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9-7-5-6-5-4 cm millibili alls 5-6-7-6-7-8 sinnum = 24-24-24-28-28-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-44-43-41-40-39 cm, skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar ermin mælist 50-49-48-46-45-44 cm, skiptið yfir á hringprjón 10 og fellið af með sléttum lykkjum yfir allar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. KRAGI: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á stutta prjóna 9 með Snow. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum, saumið í ystu lykkjubogana á ystu lykkju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cozyweekendsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.