Morgan's Daughter Jacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Peysa með sjalkraga, köðlum og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.
DROPS 179-14 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan). Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman á hæðina er hægt að prjóna tvær auka umferðir í garðaprjóni einungis yfir kantlykkjur að framan með jöfnu millibili (aðrar lykkjur hvíla á prjóninum þegar einungis tvær umferðir í garðaprjóni eru prjónaðar yfir kant að framan). Endurtakið með ca 5 cm millibili til loka. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 34 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 2,6. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca aðra hverja og þriðju hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um handveg): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.6 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.6), prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.6 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.6), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í lok umferðar, fellið af 2 lykkjur og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af frá fyrri umferð (= gat). Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati þegar stykkið mælist 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl (þ.e.a.s. þegar úrtaka yst á sjalkraga er lokið). Fellið síðan af 3-3-3-4-4-4 næstu hnappgöt með ca 8-8-8-7-7-7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvert fyrir sig og prjónað er ofan frá og niður. Þegar útaukningu fyrir handvegi er lokið, setjið stykkin saman og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka, prjónið síðan í hring á stutta hringprjóna, en skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. SJALKRAGI Á VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig: * 2 umferðir í garðaprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 7-7-8-8-8-8 cm meðfram stystu hliðinni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur fyrir öxl í lok þessara umferða (þar sem sjalkraginn er stystur) = 60-60-62-62-68-68 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjur). Prjónið nú vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI MEÐ SJALKRAGA: = 60-60-62-62-68-68 lykkjur í umferð. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga, prjónið sléttar lykkjur yfir þær 34-34-34-34-38-38 lykkjur sem eftir eru og aukið jafnframt út 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING-1 = 73-73-75-75-81-81 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 44-44-44-44-48-48 lykkjur brugðið og 26-26-28-28-30-30 lykkjur slétt. Prjónið síðan frá réttu þannig: 26-26-28-28-30-30 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga, prjónið A.1 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki eftir 2 fyrstu lykkjur í A.1 (séð frá réttu – þ.e.a.s. setjið 1 prjónamerki eftir 2 fyrstu lykkjur í A.1 (séð frá réttu – þ.e.a.s. beint eftir lítinn kaðal) – látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur, minnkið sjalkraga inn til kant að framan, aukið út fyrir handveg og aukið út fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! KANTUR AÐ FRAMAN: Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-11-11 cm frá öxl er fækkað um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna aðra og þriðju lykkju í byrjun umferðar frá réttu, slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 7-7-7-7-8-8 sinnum og í annarri hverri umferð alls 10-10-12-12-12-12 sinnum. Á eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan eru 6 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan og stykkið mælist ca 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl og niður. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-15-16-13-14-13 cm er aukið út um 1 lykkju fyrir handveg á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni í lok umferðar frá réttu – lesið ÚTAUKNING-2 (þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-8-8-14-16-20 sinnum, fitjið síðan upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur við handveg í lok næstu umferðar frá réttu = 7-12-14-20-24-30 lykkjur fleiri fyrir handveg. Stykkið mælist nú ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður. Prjónið til baka frá röngu með 6-7-9-9-11-13 lykkjur slétt, 4-8-8-14-16-20 lykkjur brugðnar, A.1, A.2 eins og útskýrt er að neðan undir HÁLSMÁL og sléttar lykkjur yfir sjalkraga eins og áður. Geymið stykkið og haldið áfram með SJALKRAGI Á HÆGRA FRAMSTYKKI og HÆGRA FRAMSTYKKI MEÐ SJALKRAGA, en passið uppá að útaukning fyrir HÁLSMÁL sem er útskýrt að neðan, byrji samtímis eins og eða áður en stykkið er lagt til hliðar. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-20-20-22-22 cm frá öxl er aukið út fyrir hálsmáli á eftir prjónamerki eins og útskýrt er í A.2A, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga eins og áður, prjónið A.2A og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu, haldið áfram með A.1, haldið áfram með útaukningu fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Tvær fyrstu lykkjur í A.1 verða nú A.2A. ATH: Passið uppá að kaðlar séu eins í sömu umferð í A.2A eins og kaðlar í A.1. Á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli mælist stykkið ca 28-28-30-30-32-32 cm frá öxl og niður og aukið út um 12-12-14-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan, haldið áfram með A.2B yfir A.2A (= 14-14-16-16-16-16 lykkjur), haldið áfram með A.1 (þær 2 fyrstu lykkjur í A.1 eru sömu og 2 fyrstu lykkjur í A.2 og hafa nú þegar verið prjónaðar), prjónið sléttprjón yfir útauknar lykkjur við handveg og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. SJALKRAGI Á HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan sléttprjón þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 7-7-8-8-8-8 cm meðfram stystu hliðinni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur fyrir öxl í lok þessara umferðar (þar sem sjalkraginn er stystur) = 60-60-62-62-68-68 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjur). Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI MEÐ SJALKRAGA: = 60-60-62-62-68-68 lykkjur í umferð. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 34-34-34-34-38-38 lykkjur og aukið jafnframt út um 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur garðaprjón yfir sjalkraga = 73-73-75-75-81-81 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 26-26-28-28-30-30 lykkjur slétt, 44-44-44-44-48-48 lykkjur brugðið og 3 sléttar kantlykkjur. Prjónið síðan héðan frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur) og endið með 26-26-28-28-30-30 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga. Setjið 1 prjónamerki í 2 síðustu lykkjur í A.3 (séð frá réttu – þ.e.a.s. rétt á undan litlum kaðli) – látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur, minnkið jafnframt sjalkragann inn að kanti að framan, aukið út fyrir handveg og aukið út fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR AÐ FRAMAN: Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-11-11 cm frá öxl er fækkað um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna þriðju síðustu og aðra síðustu lykkju í lok umferðar frá réttu slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 7-7-7-7-8-8 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 10-10-12-12-12-12 sinnum. Eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan eru 6 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni og stykkið mælist ca 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl og niður. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-15-16-13-14-13 cm er aukið út um 1 lykkju fyrir handveg á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni í byrjun á umferð frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-8-8-14-16-20 sinnum, fitjið síðan upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur við handveg í lok næstu umferðar frá röngu = 7-12-14-20-24-30 lykkjur fleiri fyrir handveg. Stykkið mælist nú ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður. Geymið stykkið og haldið áfram með HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN, en passið uppá að útaukning fyrir HÁLSMÁL sem útskýrt er að neðan byrjið samtímis eða áður en stykkið er lagt til hliðar. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 19-19-20-20-22-22 cm frá öxl er aukið út fyrir hálsmáli á undan prjónamerki eins og útskýrt er í A.4A, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með útaukningu fyrir handveg eins og útskýrt er að ofan. Haldið áfram með A.3 fram að prjónamerki, prjónið A.4A og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu og endið með garðaprjóni yfir sjalkraga eins og áður. Tvær síðustu lykkjurnar í A.3 verða nú A.4A. ATH: Passið uppá að kaðlar séu í sömu umferð í A.4A og kaðlar í A.3. Á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli mælist stykkið ca 28-28-30-30-32-32 cm frá öxl og niður og auknar hafa verið út 12-12-14-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir útauknar lykkjur við handveg, haldið áfram með A.3 (2 síðustu lykkjur í A.3 er sömu og 2 síðustu lykkjur í A.4B og eru prjónaðar þegar A.4B er prjónað). Haldið áfram með A.4B yfir A.4A (= 14-14-16-16-16-16 lykkjur) og endið með garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 47-47-47-47-51-51 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum og 44-44-44-44-48-48 lykkjum brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í A.1 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar (nýjar lykkjur eru prjónaðar brugðiið frá réttu og slétt frá röngu). Prjónið 2 umferðir til viðbótar í A.1 og fitjið JAFNFRAMT upp 24-24-28-28-28-28 nýjar lykkjur í lok síðustu umferðar fyrir hálsmáli = 73-73-77-77-81-81 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 47-47-47-47-51-51 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 44-44-44-44-48-48 lykkjur brugðið og 3 sléttum kantlykkjum.. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur). Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir í A.3 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar = 49-49-49-49-53-53 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 2 lykkjum slétt, A.3 og 3 lykkjur sléttar kantlykkjur. Setjið nú vinstri og hægri öxl saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Setjið lykkjurnar frá báðum öxlum á sama hringprjón 3 (24-24-28-28-28-28 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli á hægri öxl að aftan = miðja aftan í hnakka) = 122-122-126-126-134-134 lykkjur í umferð Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.3 yfir næstu 44-44-44-44-48-48 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 28-28-32-32-32-32 lykkjur, haldið áfram með A.1 yfir næstu 44-44-44-44-48-48 lykkjur og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 16-15-16-13-14-13 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg eins og á framstykki, þ.e.a.s. aukið út frá réttu á eftir 3 kantlykkjur í garðaprjóni í byrjun á umferð og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í lok umferðar. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-8-8-14-16-20 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok tveggja næstu umferða = 136-146-154-166-182-194 lykkjur og stykkið mælist ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður. Setjið nú framstykki og bakstykki saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjur frá vinstra framstykki (séð frá réttu) á prjóninn án þess að prjóna lykkjurnar, setjið 1 prjónamerki (= í hlið), setjið lykkjur af bakstykki á prjóninn og setjið 1 prjónamerki (= í hlið) og setjið lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn. Haldið áfram með mynstur eins og áður, haldið áfram með útaukningu fyrir hálsmáli eins og áður og haldið áfram með úrtöku fyrir kant að framan eins og áður. Þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan með áætlaðri úrtöku eins og áður, haldið áfram með A.2 og A.1, prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, 12-14-18-18-22-26 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 12-14-18-18-22-26 lykkjum), prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, haldið áfram A.3, A.5 og A.1 yfir bakstykki, prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, 12-14-18-18-22-26 lykkjur garðaprjón (prjónamerki í hlið situr mitt í þessum 12-14-18-18-22-26 lykkjum), prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3 og A.4 eins og áður og endið með garðaprjóni yfir sjalkraga/kant að framan með áætlaða úrtöku eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 12-14-18-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-14-18-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið er prjónað frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan með áætlaða úrtöku eins og áður, jafnframt A.2 og A.1 eins og áður, prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.6), prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.5 og A.1 eins og áður, prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 (prjónamerki í hlið er staðsett mitt í A.6), prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3 og A.4 eins og áður og endið með garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan eins og áður. Á eftir öllum útaukningum fyrir hálsmáli og úrtökum fyrir kant að framan eru 280-300-316-340-372-396 lykkjur í umferð. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 30-32-34-36-38-40 cm frá öxl. Lesið HNAPPAGAT. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina jafngildir þetta ca 21 útaukningum í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 71-73-75-77-79-81 cm eru ca 364-384-400-424-456-480 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur prjónaðar í hverjum kaðli (bæði köðlum með 4 lykkjum og köðlum með 2 lykkjum) slétt saman 2 og 2 (á einungis við um kaðla, ekki við brugðnu einingar eða sléttar einingar) = ca 312-332-348-372-404-428 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Öll peysan mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 38-40-40-42-48-48 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 2 sinnum í öllum stærðum, 1 lykkja 7-8-11-13-14-17 sinnum, 2 lykkjur 2-2-1-1-1-1 sinnum og 3-4-6-6-8-10 lykkjur 1 sinni = 80-86-92-98-110-120 lykkjur og stykkið mælist ca 8-9-10-11-12-14 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón hringinn, en yfir miðju 6 lykkjur undir ermi er prjónað A.6. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-1 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-14-15-18-22-26 sinnum = 58-58-62-62-66-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-30-29-29-29-27 cm frá prjónamerki (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-23-23-24-22 lykkjur jafnt yfir = 80-80-85-85-90-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.6 yfir 6 lykkjur mitt undir ermi, prjónið A.7A þar til 4 lykkjur eru eftir á undan A.6 (= 14-14-15-15-16-16 mynstureiningar 5 lykkjur) og endið með A.7B (= 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stroffið mælist 12 cm er öllum 3 lykkjum fækkað í 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni mynstureiningu 64-64-68-68-72-72 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stroffið mælist 15 cm (öll ermin mælist ca 53-54-54-55-56-56 cm frá uppfitjunarkanti). Í næstu umferð eru lykkjurnar í hverjum kaðli prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 48-48-51-51-54-54 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 3. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan og passið uppá að saumurinn snúi að röngu þegar kraginn er brotinn niður. Saumið sjalkraga við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Tatjana Kovič wrote:
Hello, can you please advise where can I find more detailed explanation for knitting directions - how ti understand for example - LEFT SHOULDER BACK (when garment is worn). Thanks in advance.
09.01.2024 - 09:34DROPS Design answered:
Hi Tatjana, LEFT SHOULDER BACK is the back of the shoulder on your left side when the jacket is worn (so behind on the left-hand side). Hope this helps and happy knitting!
10.01.2024 - 06:48Caroline wrote:
Bonjour à nouveau! Pour le dos, il est indiqué "quand l'ouvrage mesure 16-15-16-13-14-13 cm, augmenter pour les emmanchures". À partir de quelle section doit-on mesurer le début de l'ouvrage? Au dessus des épaules dos, donc au dessus de A.1/A.3 ou au-dessus des 24-24-28-28-28-28 mailles de la section du milieu, donc au dessus de A.5? Merci :)
13.09.2022 - 18:55DROPS Design answered:
Bonjour Caroline, l'ouvrage est mesuré depuis l'épaule. Bon tricot!
14.09.2022 - 08:30Caroline wrote:
Bonjour, Où est le diagramme A.2? J'ai vu dans une s vos précédentes reponses qu'il se trouvait entre A.3 et A.4, or je ne le vois pas... Merci de m'aider et bonne journée!
07.09.2022 - 21:50DROPS Design answered:
Bonjour Caroline, juste après la légende, vous trouverez les diagrammes A.7B, A.7A et A.6, puis dessous: le diagramme A.5, puis dessous: les 2 diagrammes A.4A et A.4B (selon la taille) et juste dessous les 2 diagrammes A.2A et A.2B (selon la taille); ou à partir du schéma des mesures: A.1, puis A.3 juste au-dessus et les 2 diagrammes A.2 juste au-dessus de A.3. Bon tricot!
08.09.2022 - 09:09Claudia Haussperger wrote:
Ich stricke gerade diese schöne Jacke, aber jetzt komm ich nicht mehr weiter, da ich bei dem Diagramm A1 mir nicht erklären kann, wie ich nach der 20. Reihe weiter stricken soll. Nach der 20. Reihe geht es nur in den Maschen 35 bis 38 vier Reihen weiter, aber die anderen Maschen eben nicht. Bei A3 ist es das gleiche.
28.01.2021 - 18:01DROPS Design answered:
Liebe Frau Haussperger, es wird so mit diesen Diagrammen gezeichnet, weil der Zopf über 4 Maschen unterschiedlich in der Höhe wiederholt wird. Wenn das Diagram fertig wird, fangen Sie ab 1. Reihe ab, nur nicht beim diesem Zopf, denn hier sollen Sie immer 5 Reihen in jedem Zopf stricken. Viel Spaß beim stricken!
29.01.2021 - 07:19Jean Hansen wrote:
I opskriften står der: " Arbejdet måler nu ca 19-20-21-22-24-26 cm fra skulderen og ned. Strik tilbage fra vrangen med 6-7-9-9-11-13 masker ret, 4-8-8-14-16-20 masker vrang, A.1, A.2 som forklaret under HALSUDSKÆRING og ret over sjalskraven som før." Men burde det ikke være "4-8-8-14-16-20 masker ret" i stedet? Der strikkes tilbage på vrangsiden og det skal strikkes glatstrik.... eller misforstår jeg opskriften?
29.11.2020 - 15:04DROPS Design answered:
Hej Jean, de nye masker som er taget ud til ærmegab strikkes i glatstrik (ret fra retsiden og vrang fra vrangen). God fornøjelse!
07.12.2020 - 11:04Ingrid wrote:
Hallo, mich würde interessieren, wie hier der rücken gestrickt wird. Es is keine Abbildung vorhanden. Danke für die Infos im voraus.
28.10.2020 - 15:36DROPS Design answered:
Liebe Ingrid, mehr lesen Sie unter RÜCKENTEIL: 3 M kraus rechts, A.3, A.5, A.1, 3 M kraus rechts - dann nehmen Sie für die Armlöcher und stricken die Vorderteile und den Rückenteil zusammen wie beschrieben unter RUMPFTEIL. Viel Spaß beim stricken!
28.10.2020 - 15:51Lisa wrote:
Hej jeg kan ikke finde A. 2 diagram.
02.10.2019 - 20:55DROPS Design answered:
Hej Lisa, Du finder A.2 imellem diagrammerne A.3 og A.4 nederst på siden. God fornøjelse!
03.10.2019 - 10:55Minna Darlov wrote:
Åh- kunne i ikke have lavet en stjerne eller noget ... jeg har læst opskriften oppe fra og strikket, men nu ser jeg et “samtidigt”
30.09.2019 - 10:53Sophie Af Klercker wrote:
Hej! Från axeln och nedåt verkar alla släta delar vara slätstickning från avigsidan, alltså med de aviga maskorna på rätsidan. Om jag läser mönstret rätt ska man sedan från ärmhålet och nedåt sticka vanlig slätstickning på alla partier som inte är olika flätmönster och på de 2 bilderna ser det också ut att vara vanlig slätstickning med räta maskor på rätsidan. Har jag fattat fel nånstans?
16.11.2018 - 12:37DROPS Design answered:
Hei Sophie. Det stemmer at de økte maskene strikkes i vanlig glattstrikk, og at det strikkes glattstrikk over de partiene som ikke er enten mønster eller sjalkrage/stolpe. God fornøyelse.
30.11.2018 - 13:30Hanne Christensen wrote:
Smuk, smuk strik cardigan. Så er det bare med at komme i gang og finde tiden - glæder mig. Kan ikke altid finde strik i min størrelse online, da jeg er en moden kvinde, men kan dog ofte finde noget Hos Lohse.
16.10.2018 - 18:09