DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Morgan's Daughter Vest

Vesti með sjalkraga, köðlum og A-formi, prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.

DROPS 179-13
DROPS Design: Mynstur fl-013
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-500-600 g litur 07, beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS KÓKOSHNETUTALA NR 515: 4-4-4-5-5-5 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan).
Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman á hæðina er hægt að prjóna tvær auka umferðir í garðaprjóni einungis yfir kantlykkjur að framan með jöfnu millibili (aðrar lykkjur hvíla á prjóninum þegar einungis tvær umferðir í garðaprjóni eru prjónaðar yfir kant að framan). Endurtakið með ca 5 cm millibili til loka.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 34 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 2,6. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca aðra hverja lykkju og þriðju hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.6 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.6), prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í lok umferðar, fellið af 2 lykkjur og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af frá fyrri umferð (= gat).
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati þegar stykkið mælist 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl (þ.e.a.s. þegar úrtaka yst á sjalkraga er lokið). Fellið síðan af 3-3-3-4-4-4 næstu hnappgöt með ca 8-8-8-7-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvert fyrir sig og prjónað er ofan frá og niður. Þegar útaukningu fyrir handvegi er lokið, eru stykkin sett saman og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan til loka.

SJALKRAGI Á VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig: * 2 umferðir í garðaprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 7-7-8-8-8-8 cm meðfram stystu hliðinni.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur fyrir öxl í lok þessara umferða (þar sem sjalkraginn er stystur) = 60-60-62-62-68-68 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjur). Prjónið nú vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI MEÐ SJALKRAGA:
= 60-60-62-62-68-68 lykkjur í umferð. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga, prjónið sléttar lykkjur yfir þær 34-34-34-34-38-38 lykkjur sem eftir eru og aukið jafnframt út 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING-1 = 73-73-75-75-81-81 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 kantlykkjum í garðaprjóni, 44-44-44-44-48-48 lykkjur brugðið og 26-26-28-28-30-30 lykkjur slétt.
Prjónið síðan frá réttu þannig: 26-26-28-28-30-30 lykkjur í garðaprjóni yfir sjalkraga, prjónið A.1 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki eftir 2 fyrstu lykkjur í A.1 (séð frá réttu – þ.e.a.s. Setjið 1 prjónamerki eftir 2 fyrstu lykkjur í A.1 (séð frá réttu – þ.e.a.s. beint eftir lítinn kaðal) – látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Haldið svona áfram með mynstur, minnkið sjalkraga inn til kant að framan, aukið út fyrir handveg og aukið út fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
KANTUR AÐ FRAMAN:
Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-11-11 cm frá öxl er fækkað um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna aðra og þriðju lykkju í byrjun umferðar frá réttu, slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 7-7-7-7-8-8 sinnum og í annarri hverri umferð alls 10-10-12-12-12-12 sinnum. Á eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan eru 6 kantlykkjur með garðaprjóni við miðju að framan og stykkið mælist ca 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl og niður.
HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-15-16-13-14-13 cm er aukið út um 1 lykkju fyrir handveg á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni í lok umferðar frá réttu – lesið ÚTAUKNING-2 (þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-8-8-14-16-20 sinnum, fitjið síðan upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur við handveg í lok næstu umferðar frá réttu = 7-12-14-20-24-30 lykkjur fleiri fyrir handveg.
Stykkið mælist nú ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður. Prjónið til baka frá röngu með 6-7-9-9-11-13 lykkjur slétt, 4-8-8-14-16-20 lykkjur brugðið, A.1, A.2 eins og útskýrt er að neðan undir HÁLSMÁL og sléttar lykkjur yfir sjalkraga eins og áður. Geymið stykkið og haldið áfram með SJALKRAGI Á HÆGRA FRAMSTYKKI og HÆGRA FRAMSTYKKI MEÐ SJALKRAGA, en passið uppá að útaukning fyrir HÁLSMÁL sem er útskýrt að neðan, byrji samtímis eins og eða áður en stykkið er lagt til hliðar.
HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-20-20-22-22 cm frá öxl er aukið út fyrir hálsmáli á eftir prjónamerki eins og útskýrt er í A.2A, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga eins og áður, prjónið A.2A og aukið út eins og mynsturteikning sýnir, haldið áfram með A.1, haldið áfram með útaukningu fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Tvær fyrstu lykkjur í A.1 verða nú A.2A. ATH: Passið uppá að kaðlar séu eins í sömu umferð í A.2A eins og kaðlar í A.1.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli mælist stykkið ca 28-28-30-30-32-32 cm frá öxl og niður og aukið út um 12-12-14-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan, haldið áfram með A.2B yfir A.2A (= 14-14-16-16-16-16 lykkjur), haldið áfram með A.1 (þær 2 fyrstu lykkjur í A.1 eru sömu og 2 fyrstu lykkjur í A.2 og hafa nú þegar verið prjónaðar), prjónið sléttprjón yfir útauknar lykkjur við handveg og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni.

SJALKRAGI Á HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan sléttprjón þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjurnar við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 7-7-8-8-8-8 cm meðfram stystu hliðinni.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur fyrir öxl í lok þessara umferðar (þar sem sjalkraginn er stystur) = 60-60-62-62-68-68 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjur). Prjónið síðan hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI MEÐ SJALKRAGA:
= 60-60-62-62-68-68 lykkjur í umferð. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 34-34-34-34-38-38 lykkjurnar og aukið jafnframt út um 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið 26-26-28-28-30-30 lykkjur garðaprjón yfir sjalkraga = 73-73-75-75-81-81 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 26-26-28-28-30-30 lykkjum slétt, 44-44-44-44-48-48 brugðnar lykkjur og 3 sléttar kantlykkjur.
Prjónið síðan héðan frá réttu þannig: 3 kantlykkjur með garðaprjóni, prjónið A.3 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur) og endið með 26-26-28-28-30-30 lykkjum með garðaprjóni yfir sjalkraga. Setjið 1 prjónamerki í 2 síðustu lykkjurnar í A.3 (séð frá réttu – þ.e.a.s. rétt á undan litlum kaðli) – látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur, minnkið jafnframt sjalkragann inn til kant að framan, aukið út fyrir handveg og aukið út fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.
KANTUR AÐ FRAMAN:
Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-11-11 cm frá öxl er fækkað um 1 lykkju yst á sjalkraga með því að prjóna þriðju síðustu og aðra síðustu lykkju í lok umferðar frá réttu slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, í 4. hverri umferð alls 7-7-7-7-8-8 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 10-10-12-12-12-12 sinnum. Eftir síðustu úrtöku fyrir kant að framan eru 6 kantlykkjur við miðju að framan með garðaprjóni og stykkið mælist ca 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl og niður.
HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-15-16-13-14-13 cm er aukið út um 1 lykkju fyrir handveg á eftir 3 kantlykkjum með garðaprjóni í byrjun á umferð frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-8-8-14-16-20 sinnum, fitjið síðan upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur við handveg í lok næstu umferðar frá röngu = 7-12-14-20-24-30 lykkjur fleiri fyrir handveg.
Stykkið mælist nú ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður.
Geymið stykkið og haldið áfram með HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN, en passið uppá að útaukning fyrir HÁLSMÁL sem útskýrt er að neðan byrjið samtímis eða áður en stykkið er lagt til hliðar.
HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 19-19-20-20-22-22 cm frá öxl er aukið út fyrir hálsmáli á undan prjónamerki eins og útskýrt er í A.4A, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur með garðaprjóni, haldið áfram með útaukningu fyrir handveg eins og útskýrt er að ofan., haldið áfram með A.3 fram að prjónamerki, prjónið A.4A og aukið út eins og mynsturteikning sýnir og endið með garðaprjóni yfir sjalkraga eins og áður.
Tvær síðustu lykkjurnar í A.3 verða nú A.4A. ATH: Passið uppá að kaðlar séu í sömu umferð í A.4A og kaðlar í A.3.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli mælist stykkið ca 28-28-30-30-32-32 cm frá öxl og niður og auknar hafa verið út 12-12-14-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur með garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir útauknu lykkjurnar við handveg, haldið áfram með A.3 (2 síðustu lykkjurnar í A.3 er sömu og 2 síðustu lykkjurnar í A.4B og eru prjónaðar þegar A.4B er prjónað). Haldið áfram með A.4B yfir A.4A (= 14-14-16-16-16-16 lykkjur) og endið með garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 47-47-47-47-51-51 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum og 44-44-44-44-48-48 brugðnum lykkjum.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjum með garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í A.1 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar (nýjar lykkjur eru prjónaðar brugðnar frá réttu og slétt frá röngu). Prjónið 2 umferðir til viðbótar í A.1 og fitjið JAFNFRAMT upp 24-24-28-28-28-28 nýjar lykkjur í lok síðustu umferðar fyrir hálsmáli = 73-73-77-77-81-81 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 34-34-34-34-38-38 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 13 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 47-47-47-47-51-51 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 44-44-44-44-48-48 lykkjum brugðnum og 3 sléttum kantlykkjum..
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur með garðaprjóni, prjónið A.3 (= 44-44-44-44-48-48 lykkjur). Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir í A.3 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar = 49-49-49-49-53-53 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 2 lykkjum slétt, A.3 og 3 lykkjur sléttar kantlykkjur.
Setjið nú vinstri og hægri öxl saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið lykkjurnar frá báðum öxlum á sama hringprjón 3 (24-24-28-28-28-28 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli á hægri öxl að aftan = miðja aftan í hnakka) = 122-122-126-126-134-134 lykkjur í umferð
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur með garðaprjóni, haldið áfram með A.3 yfir næstu 44-44-44-44-48-48 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 28-28-32-32-32-32 lykkjur, haldið áfram með A.1 yfir næstu 44-44-44-44-48-48 lykkjur og endið með 3 kantlykkjur með garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 16-15-16-13-13-11 cm er aukið út um 1 lykkju á hvorri hlið fyrir handveg eins og á framstykki, þ.e.a.s. aukið út frá réttu á eftir 3 kantlykkjum með garðaprjóni í byrjun á umferð og 3 kantlykkjur með garðaprjóni í lok umferðar. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-8-8-14-16-20 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok tveggja næstu umferða = 136-146-154-166-182-194 lykkjur og stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá öxl og niður.
Setjið nú framstykki og bakstykki saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur frá vinstra framstykki (séð frá réttu) á prjóninn án þess að prjóna lykkjurnar, setjið 1 prjónamerki (= í hlið), setjið lykkjur af bakstykki á prjóninn og setjið 1 prjónamerki (= í hlið) og setjið lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn. Haldið áfram með mynstur eins og áður, haldið áfram með útaukningu fyrir hálsmáli eins og áður og haldið áfram með úrtöku fyrir kant að framan eins og áður. Þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan með áætlaðri úrtöku eins og áður, haldið áfram með A.2 og A.1, prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, 12-14-18-18-22-26 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 12-14-18-18-22-26 lykkjum), prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, haldið áfram A.3, A.5 og A.1 yfir bakstykki, prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, 12-14-18-18-22-26 lykkjur garðaprjón (prjónamerki í hlið situr mitt í þessum 12-14-18-18-22-26 lykkjum), prjónið 4-8-8-14-16-20 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3 og A.4 eins og áður og endið með garðaprjóni yfir sjalkraga/kant að framan með áætlaða úrtöku eins og áður.
Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir með garðaprjóni yfir miðju 12-14-18-18-22-26 lykkjurnar á hvorri hlið er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-14-18-18-22-26 lykkjurnar á hvorri hlið er prjónað frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan með áætlaða úrtöku eins og áður, jafnframt A.2 og A.1 eins og áður, prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.6), prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.5 og A.1 eins og áður, prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 (prjónamerki í hlið er staðsett mitt í A.6), prjónið 7-12-14-20-24-30 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3 og A.4 eins og áður og endið með garðaprjón yfir sjalkraga/kant að framan eins og áður.
Á eftir öllum útaukningum fyrir hálsmáli og úrtökum fyrir kant að framan eru 280-300-316-340-372-396 lykkjur í umferð. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 30-32-34-36-38-40 cm frá öxl. Lesið HNAPPAGAT.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur á hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina jafngildir þetta ca 21 útaukningu á hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 71-73-75-77-79-81 cm eru ca 364-384-400-424-456-480 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð frá réttu eru lykkjurnar prjónaðar í hverjum kaðli (bæði köðlum með 4 lykkjum og köðlum með 2 lykkjum) slétt saman 2 og 2 (á einungis við um kaðla, ekki við brugðnu einingarnar eða sléttu einingarnar) = ca 312-332-348-372-404-428 lykkjur.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Allt vestið mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn.
Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan og passið uppá að saumurinn snúi að röngu þegar kraginn er brotinn niður. Saumið sjalkraga við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni brugðið
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = prjónamerki
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Anna wrote:

Storlek L: Jag ska lägga upp 28 m och sticka rätstickning i 2 v över de 28 m. Sedan ska jag sticka rätstickning över 22 m i 8 cm. Vad händer med de 6 m som inte blir stickade? Vad menas med den kortaste sidan - är det mot mitt fram eller där jag har 6 m som inte har blivit stickade?

27.02.2024 - 20:10

DROPS Design answered:

Hej Anna. Du stickar förkortade varv (se gärna våra videor längre ner på sidan) när du stickar växelvis över alla maskor och växelvis bara över 22 maskor. Du upprepar alltså detta " 2 varv rätstickning fram och tillbaka över alla maskorna, 2 varv rätstickning fram och tillbaka över de första 20-20-22-22-24-24 maskorna mot mitt fram" tills arbetet mäter 8 cm längst den kortaste sidan, dvs den sidan som du inte stickar hela varvet ut varannan gång. Mvh DROPS Design

28.02.2024 - 07:38

country flag Monika wrote:

Czy schematy w tym projekcie pokazują rzędy po obu stronach pracy? Czyli czy jak zaczynam czytać schemat od prawej strony do lewej, to gdy dojdę do końca rzędu kolejny rząd czytam ze schematu od lewej do prawej?

29.01.2024 - 16:57

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, schematy pokazują wszystkie rzędy robótki (widok na prawej stronie robótki). Jak czytać schematy znajdziesz TUTAJ. Patrz część kursu, w której robótka jest przerabiana w tę i z powrotem. W razie dodatkowych pytań proszę pisać. Pozdrawiamy!

29.01.2024 - 18:31

country flag Geraldine wrote:

Buenas tardes , soy nueva en esto y antes tenia otro modelo de patrón de drops , pero no logro entender por donde comenzar el tejido . En resumen que debo hacer primero para una talla xl ?

21.08.2023 - 01:35

DROPS Design answered:

Hola Geraldine, la talla XL se corresponde a la 4ª talla en el patrón. Por lo tanto, cuando tengas secuencias de números, tendrás que trabajar el 4º número de la secuencia. Por ejemplo, empiezas montando 28 puntos, trabajas 1 pliegue sobre todos los puntos y 1 pliegue sobre los 22 puntos centrales y repites estos 2 pliegues hasta que el cuello chal mida 8 cm por el lado más corto. Continúa trabajando como se explica en el patrón. También puedes leer la siguiente lección para más ayuda sobre cómo trabajar los patrones: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=79&cid=23.

27.08.2023 - 22:39

country flag Ina Jensen wrote:

Forstår ikke dette: Det er starten af sjalskraven Slå 26-26-28-28-30-30 masker op på rundpind 3 med Flora eller Nord. Strik RETSTRIK – se forklaring over, således: * 2 p retstrik frem og tilbage over alle masker, 2 p retstrik frem og tilbage over de første 20-20-22-22-24-24 masker mod midt foran. I skriver at man slår 26 masker op. Men ved pind 3 skal man kun strikke retstrik i de 20 masker. Hvad med de resterende 6 masker? Håber i kan forklare det.

20.05.2023 - 22:17

DROPS Design answered:

Hej Ina, det bliver vendepinde, så du strikker flere pinde over de yderste masker mod halsen til du kommer til skulderen hvor du skal slå masker op i den anden side (den side hvor du har strikket færrest pinde) :)

23.05.2023 - 11:16

country flag Suzanne Crosier wrote:

I'm still really confused by this pattern. I'm starting on body section where you put all sections back on needles my question is when it states continue with A2 and A3 do I just continue and repeat last 2 rows of A2? Or if I start chart over then I still have to knit last row of A2 because those stitches are on needle. I hope I explained things clearly.

10.03.2023 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Suzanne, just continue as you have knit before (the last two roes). Happy Knitting!

12.03.2023 - 15:45

country flag Suzanne Crosier wrote:

Hi, I hope I can explain my question so you can understand. I'm at the point where I'm putting all pieces back on needles and starting body. Pattern states all charts in order of how they are worked. When it states to continue with A2A and A4A do I just repeat the last row over until end of project or do I start over at the beginning of A2A and A4A? Thanks

16.02.2023 - 02:25

DROPS Design answered:

Hi Suzanne, You repeat all rows in the charts, from the bottom upwards. Happy crafting!

16.02.2023 - 06:54

country flag Annie wrote:

Bonjour, jusqu\\\'ou doit on faire les rangs raccourcis pour le col du n)179-13

20.01.2023 - 13:01

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, on tricote les rangs raccourci du col jusqu'à ce qu'il mesure 7-7-8-8-8-8 cm le long du côté le plus court (il fera le double de l'autre côté). Bon tricot!

20.01.2023 - 16:43

country flag Liz wrote:

When A.1 had been completed one time (20 rows), should I go back to the first row to continue the pattern? There are some stitches sticking up on top after the last row. They are the 4 stitches above the 2/2 cables. How should those be knitted? Thanks.

10.09.2022 - 05:52

DROPS Design answered:

Dear Liz, when A.1 has been done in height, start again from 1st row but the cable over 4 sts will have to be worked as before on every 6th row, ie this cable is worked over a different number of rows. Happy knitting!

12.09.2022 - 09:28

country flag Charlotte wrote:

Hi there. What does the size range S to XXXL equate to in say UK sizes or inches/ cm. I'd love to knit this but can't figure out how much wool I'd need. Thank you Drops : )

31.03.2021 - 19:06

DROPS Design answered:

Dear Charlotte, you can find the finished measurements on the scematic drawing at the bottom of the instructions. We suggest you take a sweater that is comfortable (and possiblly similar style) and compare the measurements. The amount of wool needed to knit this pattern is given in the pattern. Happy Knitting!

01.04.2021 - 09:49

country flag Maxant wrote:

Bonjour, Que fait on des 6 mailles qui restent sur le col châle, quand on tricote les 20 mailles du milieu. Merci bonne journée

18.04.2020 - 13:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Maxant, on tricote des rangs raccourcis sur les 26 mailles du col, ainsi, quand on tricote 2 rangs sur les 20 premières mailles seulement, on va laisser les 6 dernières mailles non tricotées et on aura ainsi 4 rangs sur les 20 premières mailles et 2 seulement sur les 26 mailles. On forme ainsi une démarcation qui permettra au col de se plier à ce niveau-là. Bon tricot!

20.04.2020 - 09:41