Marise skrifaði:
Après avoir terminer les motifs du haut A2, on dit de tricoter le tour suivant ainsi : tricoter les 16 premières mailles, glisser 58 m, etc. Est-ce que je commnce le rang au centre du dos ( début de mon tricot) ou au début du premier motif que j'ai tricoté. Je vous remercie grandement.
15.09.2017 - 03:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Marise, ces 16 m sont comptées depuis le début des tours, soit au même niveau où vous avez commencer à tricoter A.1 et A.2. Bon tricot!
15.09.2017 - 08:53
Gitte skrifaði:
Der mangler nogle sider af mønsrere og tegning af modellen når man printer ud...hvordan får jeg fat i hele opskriften uden at mønster og skitse af model mangler?
03.08.2017 - 11:26DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, for at skrive opskriften ud, klikker du på den grønne knap til højre for billedet "Skriv ud: Oppskrift" så kommer det hele med. God fornøjelse!
08.08.2017 - 15:17
Gitte skrifaði:
Hejsa Hele opskriften kan ikke printes ud..Der mangler de sider hvor mønsteret og målene på Jumperen er ...Øv
21.07.2017 - 06:04
Andrea skrifaði:
Oh, was für ein schönes Lochmuster! Ich freu mich auf die Anleitung.
02.07.2017 - 19:18
SARDA skrifaði:
Très beau, avec col fantaisie qui donne un charme à ce pull.
01.07.2017 - 04:44
Anna skrifaði:
Velmi hezký svetr
19.06.2017 - 13:30
Ille skrifaði:
I love it! So "pure"!
07.06.2017 - 23:22
Tina Laib skrifaði:
Wow! Traumhaft schön. Freue mich schon aufs nachstricken!
06.06.2017 - 09:12
Nadja skrifaði:
Tröjan är både snygg och bekväm, gillar den!
02.06.2017 - 11:49
Michaela skrifaði:
Ein Traum in Weiß. Ich freue mich schon auf die Anleitung
02.06.2017 - 10:07
Nineveh Jumper#ninevehjumper |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki, gatamynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk.
DROPS 179-8 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN: Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 8-9-10-10-10-11 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 16-18-20-20-20-22 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-27-30-30-31-33 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-36-40-40-42-44 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 40-45-50-50-53-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-54-60-60-64-66 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteiknin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um mynsturteikningu A.2). ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 14. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 14. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, A.5 (= 5 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkju sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96-102-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði Baby Merino + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-11-16-12-15-18 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 90-99-108-108-117-126 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. á milli fyrstu og síðustu lykkju í umferð) = miðja að aftan. Prjónið 1 umferð brugðið. Til að flíkin passi betur er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á hringprjón 5. Prjónið 4-8-4-4-8-4 lykkjur slétt og setjið eitt nýtt prjónamerki á undan næstu lykkju. Þetta er nú nýja byrjunin á umferð og er gert til að gatamynstrið verði samhverft við miðju að framan! Prjónið MYNSTUR í hring þannig: * A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 7 lykkjur) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= 10-11-12-12-13-14 sinnum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 240-264-288-312-338-364 lykkjur í umferð. Prjónið 1-3-7-1-5-1 umferð sléttprjón og aukið JAFNFRAMT út 2-6-10-2-4-2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð. ATH: Til að mynstrið verði samhverft við miðju að framan þá er mikilvægt að auka út jafn margar lykkjur í hvorri hlið á milli miðju að aftan og miðju að framan (miðja að framan er miðju lykkjan í 5.-5.-6.-6.-6.-7. mynstureiningu A.2 í umferð) = 242-270-298-314-342-366 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 20-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan). Ef þetta mál passar ekki, prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið hefur rétt mál. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 25-16-32-34-26-44 lykkjur, setjið næstu 50-58-64-66-70-72 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-85-91-101-111 lykkjur í sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-58-64-66-70-72 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-61-53-57-75-67 lykkjur sem eftir eru í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-184-200-220-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi í hvorri hlið (= 77-83-91-99-109-119 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í á framstykki og bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í næstu umferð er A.3 prjónað yfir miðju 5 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir lykkjur með prjónamerki í + 2 lykkjur hvoru megin við þær). Haldið áfram í sléttprjóni, A.3 í hliðum og aukið út í 7. og 15. umferð í mynsturteikningu A.3 (= 8. hverri umferð í mynsturteikningu) þar til stykkið mælist 31-32-32-32-32-32 cm frá skiptingu. Nú hefur verið aukið út ca 8 sinnum í hvorri hlið = ca 188-200-216-232-252-272 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.4 hringinn í umferð. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er fellt af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að nota grófari prjóna eða að slá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-58-64-66-70-72 lykkjur af þræði á sokkaprjón/stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hvoru megin við 7-7-7-9-9-9 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 57-65-71-75-79-81 lykkjur). Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Byrjun á umferð er eftir 7-7-7-9-9-9 nýjum lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, en yfir miðju 5 lykkjur undir ermi (= lykkja með prjónamerki í + 2 lykkjur hvoru megin við þessa lykkju) prjónið A.5. Þegar stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-5.-4.-3.-3.-2. hverri umferð alls 6-9-11-11-11-10 sinnum = 45-47-49-53-57-61 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-22-21-19-17-15 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma eru sett 3 prjónamerki í stykkið (án þess að prjóna lykkjur) þannig: Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð, setjið 2. prjónamerki á eftir 15-16-17-18-19-21 lykkju, setjið 3. prjónamerki á eftir 15-16-16-18-19-20 lykkjur = 15-15-16-17-19-20 lykkjur eftir í umferð á eftir 3. prjónamerki. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 3 lykkjur fleiri – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 63-65-67-71-75-79 lykkjum í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og A.5 mitt undir ermi þar til stykkið mælist 31-31-30-28-26-24 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið A.4 hringinn og fækkið jafnframt um 1 lykkju í fyrstu umferð = 62-64-66-70-74-78 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að nota grófari prjóna eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Ermin mælist ca 35-35-34-32-30-28 cm frá skiptingu á milli berustykkis og erma. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ninevehjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.