Loredana skrifaði:
Buonasera, ho finito il giro con gli aumenti....vi chiedo nel ferro in cui i gettati vanno lavorati a dritto ritorto per evitare buchi, vanno lavorate allo stesso modo anche le gettate che fanno parte della ripetizione 1gettato 1 dritto? Grazie Loredana
16.10.2017 - 14:12DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana. Sì, nel giro successivo a quello con gli aumenti, tutte le maglie gettate (anche quelle delle ripetizioni 1 m dir, 1 gettato) vanno lavorate ritorte. Buon lavoro!
16.10.2017 - 14:21Terri skrifaði:
In chart A1, what do you do on lines 11 and 12 when the middle is blank? Is this an error?
13.09.2017 - 16:26DROPS Design svaraði:
Dear Terri, on row 11, repeat the lace pattern from row 1 = the lace pattern is worked on less row than the small cables on each side. After row 12, repeat the cable pattern from row 1. Happy knitting!
13.09.2017 - 17:31
Sandrta Madariaga skrifaði:
Hermoso, lástima que no pueda comprar esta lanas de tan buena calidad, llevo tiempo tejiendo sus patrones y disfruto cada proyecto nuevo que ustedes publican. Soy de Santiago de Chile, continente Américano.
25.07.2017 - 15:31
Kjersti Johansen skrifaði:
Hvordan strikkes diagram A1? Er det rette masker mellom de de 2 siste radene i diagrammet? Skal de 10 første omgangene av A1 er strikket skal en da begynne på 1. Omgang igjen?
20.07.2017 - 15:27DROPS Design svaraði:
Hei Kjersti. Se på diagramforklaringsteksten over diagrammene. Der står det forklaring til hvert diagramsymbol. De 2 første og 2 siste maskene i diagrammet strikkes vrang fra retten (og rett fra vrangen). Gjenta de 10 første omgangene av A.1 til arbeidet måler 22-25-26-28-30-31 cm fra oppleggskanten. Og følg oppskriften, husk også raglan økningen. God Fornøyelse!
07.08.2017 - 11:57
Emma Lødøen skrifaði:
Kjempefin.Ønsker mønster på denne
10.06.2017 - 11:12
Pamela Franks skrifaði:
Love the lines on this one - very feminine. Hope it makes the cut!
01.06.2017 - 22:09
Für Elise#furelisesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, gatamynstri, köðlum og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.
DROPS 179-23 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 28 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 9,3. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við mynstureiningu A.1 (= 8 útaukningar í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 10 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Prjónað er ofan frá og niður. Byrjun á umferð er við miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 125-125-130-130-140-145 lykkjur á stutta hringprjóna 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt 3 lykkjur brugðiið) þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út þannig: Prjónið 28-28-28-28-30-30 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6-6-9-9-10-12 sinnum, 57-57-56-56-60-61 lykkja slétt JAFNFRAMT er aukið út um 3-3-4-4-4-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6-6-9-9-10-12 sinnum, 28-28-28-28-30-30 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 142-146-158-158-170-182 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allir uppslættirnir eru prjónaðir snúnir slétt (svo að ekki myndist gat). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5-6-9-9-12-15 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.1 (= 28 lykkjur), 5 lykkjur slétt (= ermi), A.1, 10-12-18-18-24-30 lykkjur slétt (= framstykki), A.1, 5 lykkjur slétt (= ermi), A.1, 5-6-9-9-12-15 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-27-29-33-36-38 sinnum = 326-362-390-422-458-486 lykkjur. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 22-25-26-28-30-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og niður! Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. ATH: Miðja á A.1 er ekki í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma! Haldið áfram með A.2 (= 6 lykkjur) yfir fyrstu 6 lykkjur í A.1 og prjónið A.3 (= 6 lykkjur) yfir síðustu 6 lykkjur í A.1, yfir miðju 16 lykkjur í A.1 eru prjónaðar sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 46-50-54-60-66-72 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 71-81-87-91-97-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 92-100-108-120-132-144 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 71-81-87-91-97-99 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 46-50-54-60-66-72 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi í hvorri hlið (= 4-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og 100-110-120-132-146-160 lykkjur á milli prjónamerkja. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni, A.2 og A.3 eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hliðum – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 10 sinnum í öllum stærðum = 240-260-280-304-332-360 lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-22-23-23-23-24 cm skiptist stykkið í fram- og bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 28-33-38-42-48-53 lykkjur og aukið jafnframt út 9-12-14-18-19-22 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, fellið af næstu 2 lykkjur (= klauf), prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3, prjónið 56-66-76-84-96-106 lykkjur og aukið út 18-23-28-35-38-43 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, fellið af næstu 2 lykkjur (= klauf), prjónið 25-25-25-27-28-30 lykkjur og aukið jafnframt út 7-7-7-10-9-12 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3, þær 28-33-38-42-48-53 lykkjur sem eftir eru og aukið jafnframt út 9-11-14-17-19-21 lykkjur jafnt yfir. Klippið frá. Setjið lykkjur frá bakstykki á þráð. STROFF Á FRAMSTYKKI: = 150-165-180-205-220-245 lykkjur. Stroffið er prjónað fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni EN haldið áfram með A.2 og A.3 yfir lykkjur. Stroffið er prjónað fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni EN haldið áfram með A.2 og A.3 yfir kaðla eins og áður og endið með 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. STROFF Á BAKSTYKKI: = 150-165-180-205-220-245 lykkjur. Prjónið alveg eins og stroff á framstykki. ERMI: Setjið 71-81-87-91-97-99 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-91-99-103-111-115 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-5-6-6-7-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjun umferðar er mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón í hring með haldið áfram með A.2/A.3 yfir 2 litlu kaðlana frá laskalínu. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu er lykkjum fækkað þannig: Fyrst er lykkjum fækkað mitt undir ermi: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 8.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 3-5-7-5-6-6 sinnum = 73-81-85-93-99-103 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum í gagnstæðri hlið við A.2/A.3 (= á efri hlið á ermi), þ.e.a.s. fækkið lykkjum þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið A.3, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.2, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 8.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 10-14-15-18-20-21 sinnum = 53-53-55-57-59-61 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og A.2/A.3 þar til ermin mælist 38-35-35-33-31-31 cm frá skiptingu (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 5 lykkjur þar sem auknar eru út 2 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.3, prjónið 31-31-33-35-37-39 lykkjur þar sem auknar eru út 8-8-11-9-7-10 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið 5 lykkjur þar sem auknar eru út 2 lykkjur jafnt yfir = 65-65-70-70-70-75 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.3, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið *-* 7-7-8-8-8-9 sinnum, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ermin mælist ca 43-40-40-38-36-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #furelisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.