DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19404.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Norfolk

Peysa prjónuð frá hlið með köðlum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Big Merino.

DROPS 179-24
DROPS Design: Mynstur mb-039
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Vegna þyngdar á stykkinu kemur peysan til með að teygjast um ca 8-10 cm á lengdina við miðju að aftan þegar peysan er mátuð. Mál á mynsturteikningu sýnir þess vegna styttri mál en peysan á mynd.

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
1050-1150-1250-1400-1550-1700 g litur 08, marmari

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir kanta með garðaprjóni.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19404.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MÆLING:
Öll lengdarmál á fram- og bakstykki eru tekin þegar stykkið liggur flatt.
Vegna þyngdar á stykkinu kemur stykkið til með að teygjast aðeins við mátun miðað við mynsturteikningu – sjá útskýringar undir Stærð.
Öll lengdarmál á ermi eru tekin þegar stykkinu er haldið uppi til þess að koma í veg fyrir að stykkið verði of langt (mátið e.t.v. ermina og jafnið lengdinni til að óskaðri lengd).

ÚRTAKA-/ÚTAUKNING (á við um handveg):
Til að koma í veg fyrir að handvegurinn verði of stór þegar lykkjum er fækkað í einni einingu með köðlum verður að fækka um nokkrar lykkjur jafnt yfir í umferð áður en fellt er af fyrir handveg.
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt við handveg, teljið fjölda lykkja sem fækka/fjölga á um (t.d. 39 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukningu sem á að gera (t.d. 9) = 4,3.
Í þessu dæmi eru prjónaðar 3. og 4. hver lykkja saman þegar lykkjum er fækkað. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt ámilli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki eru prjónuð í 2 stykkjum sem saumuð eru saman við miðju að aftan. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan að miðju að aftan.

VINSTRA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 140-144-148-152-154-158 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), A.4 (= 33-33-33-35-35-35 lykkjur), A.3 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur) og A.1 (= 5 lykkjur). Prjónið til baka frá röngu alveg eins = 158-162-166-170-172-176 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Haldið áfram með A.1 (= 5 lykkjur), prjónið A.5 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.6 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur), A.7 (= 42-42-42-44-44-44 lykkjur), A.6 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur) og endið með A.1 (= 5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið mynsturteikningu á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm – lesið MÆLING, fellið af fyrir handveg þannig: Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir fyrstu 40 lykkjur, prjónið brugðið yfir næstu 39-41-43-45-46-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 9 lykkjur jafnt yfir þessar 39-41-43-45-46-47 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir þær 79-81-83-85-86-89 lykkjur sem eftir eru.
Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur, fellið af næstu 30-32-34-36-37-38 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir síðustu 40 lykkjur.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið 40 lykkjur eins og áður, fitjið upp 30-32-34-36-37-38 nýjar lykkjur á prjóninn og haldið áfram með mynstur út umferðina eins og áður.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur eins og áður, prjónið 30-32-34-36-37-38 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur 30-32-34-36-37-38 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið síðan þær 40 lykkjur eins og áður.
Haldið síðan áfram með mynstur fram og til baka eins og áður yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjurnar (passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu yfir handveg miðjað við afgang af mynstri).
Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm frá uppfitjunarkanti er skipti yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka í hnakka með stuttum umferðum þannig: Byrjið frá röngu uppi við hnakka og prjónið sléttar lykkjur frá röngu yfir fyrstu 40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna yfir 5 lykkjur færri þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 5 lykkjur. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu – ATH: Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverri lykkju jafnframt er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjulegt lykkja).

HÆGRA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 140-144-148-152-154-158 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1 (= 5 lykkjur), A.2 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), A.8 (= 33-33-33-35-35-35 lykkjur), A.2 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 19-19-19-21-21-21 lykkjur) og A.1 (= 5 lykkjur). Prjónið til baka frá röngu alveg eins = 158-162-166-170-172-176 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 (= 5 lykkjur), prjónið A.5 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur), A.9 (= 42-42-42-44-44-44 lykkjur), A.5 (22-22-22-24-24-24 lykkjur), 40-44-48-44-46-50 lykkjur sléttprjón, A.6 (= 22-22-22-24-24-24 lykkjur) og endið með A.1 (= 5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið mynstureiningar á hæðina.
Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm – lesið MÆLING, fellið af fyrir handveg þannig:
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir fyrstu 40 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 39-41-43-45-46-47 lykkjur og fækkið jafnframt um 9 lykkjur jafnt yfir þessar 39-41-43-45-46-47 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir þær 79-81-83-85-86-89 lykkjur sem eftir eru.
Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg frá röngu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur, fellið af næstu 30-32-34-36-37-38 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir síðustu 40 lykkjur.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þannig: Prjónið 40 lykkjur eins og áður, fitjið upp 30-32-34-36-37-38 nýjar lykkjur á prjóninn og haldið áfram með mynstur út umferðina eins og áður.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 79-81-83-85-86-89 lykkjur eins og áður, prjónið 30-32-34-36-37-38 lykkjur brugðið og aukið jafnframt út um 9 lykkjur jafnt yfir þessar 30-32-34-36-37-38 lykkjur – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið síðan 40 lykkjur sem eftir eru eins og áður.
Haldið síðan áfram með mynstur fram og til baka eins og áður yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjur (passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu yfir handveg miðað við afgang af mynstri).
Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm frá uppfitjunarkanti er skipt yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið nú garðaprjón fram og til baka í hnakka með stuttum umferðum þannig: Byrjið frá réttu uppi við hnakka og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir fyrstu 40 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram með því að prjóna yfir 5 lykkjur færri þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir síðustu 5 lykkjur. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 158-162-166-170-172-176 lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu – ATH: Til a affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

ERMI:
Ermi er prjónuð ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka á stutta hringprjóna þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka. Prjónið síðan ermina í hring á stutta hringprjóna, en skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 18-20-24-28-30-34 lykkjur á stutta hringprjóna 5,5. Prjónið sléttprjón og fitjið JAFNFRAMT upp 5 lykkjur í lok hverrar umferðar alls 4 sinnum í hvorri hlið = 58-60-64-68-70-74 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 4 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón hringinn og látið prjónamerki fylgja með áfram – munið eftir MÆLING. Þegar stykkið mælist 2½ cm í öllum stærðum frá þar sem prjónamerki er sett í er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3½-3-3-3-2½ cm millibili alls 12-12-14-15-15-16 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 49 cm frá prjónamerki. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5,5 og fellið síðan laust af. Ermin mælist ca 55 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bakstykki við miðju að aftan – saumið í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. Saumið ermar í.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið síðan 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið síðan 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið síðan 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Megan wrote:

I'm lost. I really want to make this sweater. I compared the size diagram to a similar sweater, and it says I need to make an XXXL. But I am a very small human being! The sweater I compared to is 54 cm from side seam to side seam, and fits loosely. Could you please give me some advice?

10.10.2023 - 18:43

DROPS Design answered:

Dear Megan, to find out your size here you can compare the back width on a similar garment, from armhole to armhole, you will have here 36-38-40-42-44-46 cm depending on the size. Happy knitting!

11.10.2023 - 08:26

country flag Megan wrote:

I'm lost. I really want to make this sweater. I compared the size diagram to a similar sweater, and it says I need to make an XXXL. But I am a very small human being! The sweater I compared to is 54 cm from side seam to side seam, and fits loosely. Could you please give me some advice?

10.10.2023 - 18:38

country flag Ina wrote:

Hallo ihr Lieben, ich würde diese Jacke gerne mit Garngruppe B stricken (Merino extra fine). Um auf die gleiche Größe zu kommen, würde ich die Maschenanzahl sowie die glatt rechts Bereiche entsprechend erweitern., das kriege ich hin. Mir fällt es jedoch schwer, die benötigte Garnmenge auszurechnen. Habt ihr vielleicht einen Tipp für mich? Vielen Dank!

30.03.2023 - 08:10

DROPS Design answered:

Liebe Ina, wenn Sie die Maschenzahl ändern, wird es mit der Berechnung der Garnmenge schwierig, da ja zwei Aspekte zu berücksichtigen sind: Die Lauflänge und der Mehrverbrauch durch die dünnere Nadelstärke. Leider können wir Ihnen hier keine Empfehlung für die Garnmenge geben, die passend wäre.

05.04.2023 - 10:48

country flag Linda wrote:

Je suis pas sur d'avoir mis les deux coté comme il faut.pourriez vous me montré comment vous les assemblés les deux morceaux,ainsi que les manches.Merci.

25.09.2021 - 00:30

DROPS Design answered:

Bonjour Linda, assemblez les mailles rabattues des 2 grandes pièces devant droit & demi-dos et devant gauche & demi dos (ligne noire dans le schéma, les flèches indiquant le sens du tricot) et 2ème photo où on voit le milieu du dos; placez les manches le long de l'emmanchure, le milieu des mailles montées doit se trouver en haut, côté col, épinglez si besoin les mailles tout autour de l'emmanchure, le milieu sous la manche doit être en bas de l'ouverture de l'emmanchure. Bon assemblage!

27.09.2021 - 07:56

country flag Linda wrote:

Je tricote depuis un bon moment et je trouve que c'est un peu compliqué de suivre ce shéma de patron.Les manches je ne trouve pas le début des explication? Et j'aimerais savoir comment ont fait pour savoir que nous sommes bien rendu a la deuxieme ligne du shémas pour la veste?Merci beaucoup de m'aidée dans mon tricot.

04.02.2021 - 11:57

DROPS Design answered:

Bonjour Linda, Vous trouverez les explications des manches sous le paragraphe MANCHES - par "2ème ligne du schéma", entendez-vous le 2ème rang des diagrammes? je ne suis pas bien sûre de comprendre, désolée, pouvez-vous reformuler cette partie de votre question? Merci pour votre compréhension.

04.02.2021 - 13:14

country flag Dawn wrote:

I need help getting started. After the initial A1, A2,... when working back from the wrong side in the same way is it going from A1 to A2 or A1 to A3?

04.05.2019 - 23:31

DROPS Design answered:

Hello Dawn. The return row (on left front and back piece) is worked: A.1, A.3, A.4, A.3, A.2, A.1. Enjoy your knitting!

05.05.2019 - 09:08

Susanne Thompson wrote:

Thank you for the response. And to clarify after I increase in row 1/2 the first time I do not increase again through out the pattern, when I have to repeat rows 1 and 2 otherwise I cannot end with 158 *size s* at the end. Correct? So it is actually row 1 row 2 row 3 row 4 and then it is only row 3 and 4 that are repeated? or repeat row 1 2 3 and 4 with no increases? Would be easier if your pattern could number the rows and indicate clearly which rows are to be repeated in the pattern.

04.01.2019 - 15:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thompson, you won't repeat the 2 rows in A.2/A.3/A.4, they are just worked once, after you have worked these 2 rows in these diagram, you work A.5 over A.2, A.6 over A.3, A.7 over A.4 and A.6 over last A.3 on row. So that on 3rd row in A.1, you work row 1 in A.5, A.6, A.7, on row 4 in A.4 you work row 2 in A.5, A.6, A.7 and so on. When A.1 has been worked 1 time in height, repeat the 8 rows from row 1. When A.5-A.7 have been worked 1 time in height, repeat them from row 1. Happy knitting!

04.01.2019 - 15:17

Susanne Thompson wrote:

I am trying to get this project started and am not clear on the pattern. Starting with left side, the way I read it is you do row 1,2,3,4 and then repeat 1,2,3,4 over and over until measurement reaches 48 cm. But row 1 has sections A.2,A.3 and A.4 that all increase stitches. But when dec for armhole only deals with 158 stitches. Also to clarify. When I read the row does first stitch start on left side of the pattern read back to the left? Thank you for the help. Susanne

03.01.2019 - 22:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thompson, you first work row 1 diagrams A.1, A.2, A.3 and A.4 increasing in A.2, A.3 and A.4 - then work ws row = row 2 = you have increased sts in the diagrams and should have now 158-176 sts (see size). On next row, continue A.1 (= row 3 in A.1) and work A.5, A.6, A.7 starting them on row 1 as shown in diagram. When diagrams have been worked one time in height, repeat them in height from row 1. Happy knitting!

04.01.2019 - 12:24

country flag Marielle wrote:

Worden de omslagen in telpatroon A3 meteen als steken meegeteld? (In het telpatroon staan 19 steken en 3 omslagen getekend.)

15.11.2017 - 22:47

DROPS Design answered:

Hoi Marielle, In de eerste naald worden in de 19 steken die aangegeven zijn niet de omslagen meegerekend. Het zijn dus inderdaad 19 steken én 3 omslagen. In de tweede naald zijn deze 3 omslagen wel steken geworden.

17.11.2017 - 12:01

country flag Angeline Van Loopik wrote:

Klopt het dat de tel patroon ook de terug gaande naald laat zien of is het alleen de heen gaande naald

30.10.2017 - 21:40

DROPS Design answered:

Hoi Angeline, Dat klopt inderdaad, het telpatroon laat alle naalden in het telpatroon zien, dus zowel de heengaande als de teruggaande naalden.

30.10.2017 - 22:37