Sonja skrifaði:
Hallo, in welcher Reihenfolge werden bitte die Diagramme gestrickt. Übereinander? Also A1 darüber A2 und darüber A3? Danke!
02.10.2024 - 09:18DROPS Design svaraði:
Liebe Sonja, A.1 wird bei der mittleren Mitte vorne gestrickt, dann strickt man A.2 bei der linken Schulter, Vorderteil und A.4 bei der rechten Schulter, Vorderteil. A.2 wird dann über die ersten 12 bzw 15 Maschen von A.1 und A.3 über die letzten Maschen von A.1 gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
02.10.2024 - 16:39
Suzanne Duke skrifaði:
I have done a tension test on size 8mm needles which I like. Can you advise what implication this would have to amount of wool required, please?
01.06.2021 - 08:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Duke, if you get 10 sts x 14 rows stocking stitch with 2 strands Brushed Alpaca Silk or 1 strand Melody = 10 x10 cm, then yarn requirements should match - read more about tension here. Happy knitting!
01.06.2021 - 16:05
Maxine skrifaði:
Hi, Can I use Alpaca + Brushed Alpaca Silk to make this jumper, and if yes, I would like to make it in purple, can you give advice on an appropriate combination. tks Maxine
31.10.2020 - 11:30DROPS Design svaraði:
Dear Maxine, yes, you can use those two yarns. The resulting fabrick will be soft, but slightly less "fluffy" less "halo-effect". As always please allways knit a swatch, check your gauge and make the necessary modifications / recalculations if needed. As for colors, if you want a dark purple, then alpaca color 4400 would work well with the violet (10) colored Brushed AlpacaSilk , if you want a more heathery, more mixed color effect you can use the amethist (4434) or purple fog (9023) with violet (10) colored Brushed AlpacaSilk If you want more reddish puprle, then you might try the burgundy color of alpaca (6736) with the purple (09) color of Brushed Alpaca Silk. Happy Knitting!
31.10.2020 - 13:13
Josiane skrifaði:
J'ai eu beaucoup de plaisir à tricoter ce pull. En Brushed Alpaca Silk, pour la plus grande taille, 240g de laine ont été suffisants. Je peux me faire un deuxième pull avec les pelotes que j'avais achetées en suivant les données du modèle.
26.02.2020 - 14:27
Gabriele skrifaði:
Liebes Drops Team, ich habe ein Problem mit dem Garnverbrauch. Beispiel Gr. M. Brushed Alpaca Silk: 400 g : 25 =16 x 140 m = 2240 m, : 2 (da doppelfädig) = 1120 m. Melody: 250 g : 50 = 5 x 140 m = 700 m. Was ist richtig? LG Gabriele
16.01.2020 - 18:50DROPS Design svaraði:
Liebe Gabriele, danke für den Hinweis, Problem liegte bei Melody, Sie brauche: 350-400-450-500-550-600 g Melody - deutsche Anleitung wird bald korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
17.01.2020 - 14:06
Carmen-Gabriela skrifaði:
Danke + super Tipp mit dem Ansprühen:) Aber es wird doch überwiegend glatt re. gestrickt. Die ersten 4 Rd.en VT bis zum Verzopfen, RT sowieso glatt re. - Ich probiere es. Denn alternativ mit 1 Li-Rippe als Start könnte es evtl. zipfeln.^^ - Und das Modell auf dem Foto sieht so schön edel und leger aus:)
24.10.2019 - 17:35
Carmen-Gabriela skrifaði:
Hallo:) Ist es so verstehen, dass der Pulli einen Rollrand erhält, da nach dem Anschlag sofort glatt re. gestrickt wird? Mein Anschlag ist meistens Aufstricken auf einfacher Nadel. Empfehlen Sie einen besonderen Anschlag? - Top Kuschelmodell:) Das Garn habe ich schon und sitze im Strick-Startloch:)
24.10.2019 - 17:12DROPS Design svaraði:
Liebe Carmen-Gabriela, die Maschen können Sie wie in diesem Video anschlagen (nur bei der 1. Reihe stricken Sie glatt rechts + Diagram wie in der Anleitung beschrieben, Rand soll nicht rollen (mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen). Viel Spaß beim stricken!
24.10.2019 - 17:18
Monika Wünsch skrifaði:
Dear Team, I knitted the model London Fog out of Alpacka Silk and was really happy about it. Unluckily only until I did the handwash which is requested on the label. My washing maschine has a special wool handwash program and still the pullover shrank so much that it is impossible to wear it. As a big fan of your products I`m really disappointed.especially because I have a second one out of the same Alpaka silk Wool. How should I clean it? Kind regards Monika
25.11.2018 - 08:54DROPS Design svaraði:
Dear Monika, we are very sorry to hear that your sweater shrunk. We always advice that for yarn that is not superwash treated , should always be handwashed in cold 8or lukewarm at the most) water. Even the wool setting of some washing machines is too abrasive for those extra soft yarns loke the alpaca silk.
25.11.2018 - 11:21
Monika Wünsch skrifaði:
Dear Team, I knitted the model London Fog out of Alpacka Silk and was really happy about it. Unluckily only until I did the handwash which is requested on the label. My washing maschine has a special wool handwash program and still the pullover shrank so much that it is impossible to wear it. As a big fan of your products I`m really disappointed.especially because I have a second one out of the same Alpaka silk Wool. How should I clean it? Kind regards Monika
25.11.2018 - 08:53DROPS Design svaraði:
Dear Monika, we are so sorry, Brushed Alpaca Silk should be only handwashed - see label and care tab in the shadecard and general instructions about yarn care there. Maybe your DROPS store will have any tipp for you? Do not hesitate to contact them even per mail or telephone. Happy knitting!
26.11.2018 - 10:59
Bente Morild skrifaði:
Har lige strikket modellen i str. m - har KUN brugt 225 g, i opskriften står der 400 g
12.11.2018 - 10:17
London Fog#londonfogsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og sjalkraga. Stærð S - XXXL. Stykkið er hægt að prjóna með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody.
DROPS 181-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA: Fækkað er um 2 lykkjur við hvort prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Ermarna eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 138-146-158-170-178-190 lykkjur á hringprjón 9 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody. Prjónið þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar, prjónið 25-27-30-31-33-36 lykkjur slétt, A.1 (= 24-24-24-30-30-30 lykkjur), prjónið 25-27-30-31-33-36 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið 64-68-74-78-82-88 lykkjur slétt (= bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 14-12-8-7-7-5 cm millibili alls 2-3-4-5-5-7 sinnum = 130-134-142-150-158-162 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, stillið af að næsta umferð sé 6. eða 8. umferð í A.1, fellið af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-5 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur og A.1 eins og áður þar til eftir eru 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan prjónamerki, fellið af næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 3-3-4-4-5-5 lykkjur á undan prjónamerki, fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur. Klippið frá. FRAMSTYKKI: Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Nú skiptist framstykkið við háls þannig: VINSTRI ÖXL: = 32-33-34-37-38-39 lykkjur. Prjónið nú frá hlið við miðju að framan frá réttu þannig: 20-21-22-22-23-24 lykkjur sléttprjón og A.2 yfir fyrstu 12-12-12-15-15-15 lykkjur í A.1 (stillið af kaðal þannig að það verði 13-13-13-15-15-15 umferðir sléttprjón á milli kaðal í A.1 og kaðal í A.2), snúið stykkinu. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem fellt var af fyrir handveg (stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm). Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 20-21-22-22-23-24 lykkjur fyrir öxl = 12-12-12-15-15-15 lykkjur. Prjónið sjalkraga þannig: Haldið áfram með A.2 yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til sjalkraginn mælist 6 cm. Fellið af. HÆGRI ÖXL: = 32-33-34-37-38-39 lykkjur. Prjónið nú frá miðju að framan í hlið og frá réttu þannig: A.3 yfir 12-12-12-15-15-15 lykkjur af A.1 (stillið kaðal af þannig að það verða 13-13-13-15-15-15 umferðir sléttprjón á milli kaðal í A.1 og kaðal í A.3) og 20-21-22-22-23-24 lykkjur sléttprjón, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem fellt var af fyrir handveg, stillið af við vinstri öxl. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 20-21-22-22-23-24 lykkjur fyrir öxl = 12-12-12-15-15-15 lykkjur. Prjónið sjalkraga þannig: Haldið áfram með A.3 yfir þær lykkjur þar til sjalkraginn mælist 6 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem fellt var af fyrir handvegi. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli (= 20-21-22-22-23-24 lykkjur eftir á hvorri öxl). Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem fellt var af fyrir handveg, stillið af við framstykki, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-34-34-36-38 lykkjur á sokkaprjón 9 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði Melody. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á stykki = mitt undir ermi. Prjónið slétt. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Aukið svona út með 11-8-7-6-6-6 cm millibili alls 4-5-5-6-6-6 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-42-41-41-40-40 cm, skiptist stykkið við prjónamerki mitt undir ermi og prjónað er áfram fram og til baka. Fellið af þegar stykkið mælist 45 cm (sama mál í öllum stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – passið uppá að saumarnir verði ekki stífir. Saumið sjalkragann saman við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið við hálsmál aftan í hnakka – saumurinn á að snúa inn að röngu. Saumið ermar í þ.e.a.s. saumið affellingarkant á ermi við ermakúpu. Opið undir ermi á að sauma niður þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg á fram- og bakstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #londonfogsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.