DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sophisticated Twist

Prjónuð víð / oversized, ermalaus peysa með köðlum úr DROPS Polaris. Stærð S - XXXL

DROPS 133-36
DROPS Design: Mynstur nr PO-043
Garnflokkur F
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1000-1000-1100-1200-1300-1400 g nr 06, ljós beige:

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 15 – eða þá stærð sem þarf til að 7 l x 8 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm – klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú saman og áður og prjónið áfram – með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist.

MYSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Allar umf í mynstri sýna mynstur frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman í lokin. LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI!

HÆGRA FRAMSTYKKI + ERMI:
Fitjið upp 23-24-26-27-29-31 l á hringprjóna nr 15 með Polaris. Fyrstu 12 l á prjóni (séð frá réttu) eru prjónaðar eftir M.1, yfir aðrar lykkjur eru prjónaðar 4 umf GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan, áður en haldið er áfram í sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, aukið út um 1 l í hlið. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm = 25-26-28-29-31-33 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fitjið upp 10-10-9-8-7-6 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 35-36-37-37-38-39 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni, fyrir utan síðustu l sem er prjónuð í garðaprjóni í öllum umf. Þegar stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá prjónamerki (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu), prjónið 12 fyrstu l eins og áður í M.1, setjið þær síðan á þráð = 23-24-25-25-26-27 l eftir á prjóni, prjónið út umf. Setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja á öxl) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 2 umf fram og til baka yfir l á prjóni. Setjið l á þráð og geymið stykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI + ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki + ermi, nema gagnstætt – prjónið M.2 í stað M.1. Efst við öxl eru prjónaðar 12 l í M.2 frá röngu áður en l eru settar á þráð. Prjónið út umf, haldið áfram með bakstykki án þess að setja l á þráð.

BAKSTYKKI:
Prjónið 1. umf frá réttu þannig: Prjónið l frá vinstra framstykki + ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn l af hægra framstykki + ermi á hringprjóna = 55-57-59-61-63-65 l. Haldið síðan áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið sem prjónuð er í garðaprjóni í hverri umf, þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá prjónamerki fyrir miðju á öxl. Í næstu umf eru felldar af fyrstu og síðustu 10-10-9-8-7-6 l, klippið frá. Prjónið sléttprjón yfir þær 35-37-41-45-49-53 l sem eftir eru, þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm. Fellið nú af 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm = 31-33-37-41-45-49 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm (passið að næsta umf sé prjónuð frá röngu). Prjónið 3 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan laust af.

KRAGI:
Setjið til baka 12 l af þræði frá hægra framstykki á prjóninn. Fitjið upp 1 nýja l við öxl = 13 l. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hlið sem prjónuð er í garðaprjóni í hverri umf. Þegar kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm, fellið af. Prjónið alveg eins yfir l af þræði frá vinstra framstykki. Saumið kragastykkin saman kant í kant fyrir miðju að aftan og saumið kragann niður við háls að aftan í kantlykkjuna.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma í eitt, saumið kant í kant í ysta lið í ystu l svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 133-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (109)

country flag IRMGARD SCHUMANN wrote:

Good day In the M1 (M2) diagram the cable forming is very close, in other words there are only 3 rows between the cable. Am I reading this correctly that or is this a double cable? Thank you for your answer.

29.03.2024 - 10:25

DROPS Design answered:

Dear Irmgard, the cable's pattern repeat is 12 stitch wide, that has two sides, meaning, on the 3d row, you do the cabling on the 8 stitches on the left, , in the 7th row on the 8 stitches on the right. (on M.2 it is the opposite). I hope this helps. Happy Knitting!

30.03.2024 - 00:56

country flag Danielle wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment terminer les torsades des devants , ensuite pour monter le col. Merci.

18.03.2023 - 16:58

DROPS Design answered:

Bonjour Danielle, reprenez les 12 mailles de la torsade que vous avez mises en attente et montez 1 maille côté épaule/encolure dos, continuez maintenant simplement M.1 comme avant (jersey endroit et torsades) avec 1 m lis au point mousse côté épaule/encolure dos pendant 7 à 8 cm, rabattez ensuite les mailles. En d'autres termes, vous procédez comme dans cette vidéo mais en tricotant la torsade au lieu de tricoter au point mousse. Bon tricot!

20.03.2023 - 08:28

country flag Danielle wrote:

Bonjour , je n’arrive pas à monter le côté gauche du devant avec la torsade, comment faire svp. Merci

09.03.2023 - 15:54

DROPS Design answered:

Bonjour Danielle, montez le même nombre de mailles que pour le devant droit, mais cette fois vos rangs sur l'endroit commencent par le côté et se terminer par la torsade A.2; sur l'envers, on commence par A.2 et on termine en jersey. Les mailles sur le côté vont être montées en fin de rang sur l'envers (pour la manche). Bon tricot!

09.03.2023 - 17:41

country flag Giovanna wrote:

Il modello è bello ma le spiegazioni sono pessime. Come tutte le spiegazioni degli altri vostri modelli

01.03.2023 - 11:42

DROPS Design answered:

Buonasera Giovanna, ci dispiace per questa sua opinione sui modelli DROPS: le ricordiamo che il sito offre migliaia di modelli gratuiti e che in caso di difficoltà può sempre chiedere aiuto compilando il modulo per i commenti nella pagina di ogni modello. Buon lavoro!

02.03.2023 - 18:50

country flag Danielle Gaudens wrote:

Bonjour pourrais je savoir si le dos se tricote en un seul morceau et le tricot commence par le bas ou par le haut . merci

16.07.2022 - 06:03

DROPS Design answered:

Bonjour Daniele, le dos est tricote en une seule partie, par le haut. On n'a pas les coutures pour les epaules. Bon tricot!

17.07.2022 - 09:46

country flag Clara Alicia wrote:

Quisiera recibir video sobre drops 133-36

17.08.2021 - 22:06

DROPS Design answered:

Hola Clara Alicia, no hacemos vídeos personalizados. Puedes encontrar aquellos vídeos de nuestra colección que pueden ayudarte a realizar la labor bajo el patrón.

20.08.2021 - 21:06

country flag Abigail Romero wrote:

Hola Buenos días para elaboraron cuanto estambre debo comprar

25.03.2021 - 15:29

DROPS Design answered:

Hola Abigail. Dependiendo de la talla necesitas 1000-1000-1100-1200-1300-1400 g (es decir, de 10 a 14 ovillos de 100 g/36 m)

07.04.2021 - 20:21

country flag Sophie wrote:

Nu ser jag att det stämmer, när jag kommit en bit i arbetet!

13.12.2020 - 21:07

country flag Sophie wrote:

Ska man inte börja med mönster M2 på höger framstycke/ärm, och sedan M1 på vänster??

13.12.2020 - 14:47

DROPS Design answered:

Hej Sophie. Så fint att du ser att det stämmer. Mvh DROPS Design

14.12.2020 - 10:25

country flag Marta Cona wrote:

Yo tejo con agujas rectas que número uso? Cuántos puntos tengo que poner para empezar cada lado de la delantera? La lana es semi gorda?

30.06.2020 - 22:11

DROPS Design answered:

Hola Marta. Las agujas rectas y la aguja circular usan la misma numeración. La lana utilizada para este modelo es de grupo F (puedes consultarlo aquí: https://www.garnstudio.com/yarn-groups.php?cid=23). Los puntos a montar para cada talla están indicados al principio del apartado del delantero.

30.06.2020 - 23:30