Yvonne Hovland skrifaði:
Hei. Hvorfor er størrelsene så veldig store? Jeg bruker normalt xxl i vanlige klær, men her ser det ut som large er kjempestor. Har ikke kommet så langt på bakstykket ennå, så trenger råd på hva jeg skal gjøre??? Må jeg ta det opp og strikke medium el. Smal? Lividden min er(under bysten): 102cm og midjen er(største partiet): 116cm.
07.08.2017 - 07:14DROPS Design svaraði:
Hei Yvonne, Størrelsene i cm er gitt i diagrammet på bunnen av oppskriften, så du kan finne den størrelsen som passer for deg der. God fornøyelse!
07.08.2017 - 08:30
Geke Kunst skrifaði:
Bij het begin van de beschrijving van het achterpand wordt gezegd: Brei verder in telpatroon A.4A. Er is nergens A4A te vinden. Wat wordt hiermee bedoeld?
01.08.2017 - 16:27DROPS Design svaraði:
Hoi Geke, Dat klopt inderdaad niet. Het moet A.1A zijn (en niet A.4A). Het is aangepast nu.
01.08.2017 - 18:50Maureen skrifaði:
I would like to knit this top but I can't use circular needles, any idea how I can do any other way. Than you.
23.03.2017 - 15:12DROPS Design svaraði:
Dear Maureen, this top is worked back and forth on circular needle to get enough room for all sts, just sew one of both shoulders before picking up sts for neck. Read more about adapting a pattern for circular needles into straight needles here. Happy knitting!
23.03.2017 - 16:12
Bjorn skrifaði:
Hi, the measurements for the width seems to be very large. Is this correct? Thanks.
05.02.2017 - 14:23DROPS Design svaraði:
Dear Bjorn, the measurements are correct and your work will match these if your tension is correct. Read more about sizes here. Happy knitting!
06.02.2017 - 10:25
Ingrid skrifaði:
Kjempesøt topp
23.12.2016 - 11:32
Karin Jensen skrifaði:
Blusen der passer til alt, enkel og super fin
18.12.2016 - 10:57
JENNY AVERY skrifaði:
I would love to have this pattern
13.12.2016 - 20:08
After Swim#afterswimtop |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónaður toppur með hálfu klukkuprjóns afbrigði úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 4 lykkjur í hvorri hlið) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 10,6. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir 10. og 11. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort stykki fyrir sig. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-110-118-128-140-154 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Belle. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 9-11-11-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 113-121-129-141-153-169 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 5 l eru eftir á prjóni (= 26-28-30-33-36-40 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kant á ermum = 129-137-149-161-177-193 lykkjur. Haldið áframa með A.2 eins og áður með 12-12-14-14-16-16 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skástæða öxl (til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn fyrir skástæða öxl). Setjið fyrstu 4-5-5-6-6-7 lykkjur í byrjun umferðar á þráð, prjónið umferðina út og setjið fyrstu 4-5-5-6-6-7 lykkjur í byrjun næstu umferðar á þráð. Haldið svona áfram með að setja 4-5-5-6-6-7 lykkjur á þræði alls 9 sinnum í hvorri hlið, setjið síðan síðustu 10-5-11-6-12-11 lykkjurnar á þráð fyrir skástæða öxl í hvorri hið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 33-33-33-37-41-41 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram að setjið lykkjur á þráð fyrir skástæða öxl og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir hálsmáli/settar á þráð eru 46-50-56-60-66-74 lykkjur á þræði fyrir öxl og stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Setjið lykkjur frá þræði á hringprjóna 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur, en til að sleppa við göt í skiptingunum þar sem lykkjur voru settar á þráð er tengillinn á milli 2 lykkja tekinn upp og prjónaður snúinn slétt saman við fyrstu lykkjuna á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sl frá réttu (það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: Fitjið upp alveg eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm. Setjið miðju 19-19-19-23-27-27 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með að setja lykkjur á þráð fyrir skástæðri öxl og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 l 3 sinnum og 1 l 3 sinnum. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir hálsmáli/settar á þráð eru 46-50-56-60-66-74 lykkjur á þræði fyrir öxl og stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Setjið lykkjurnar af þræði á hringprjóna 3,5 og prjónið alveg eins og á bakstykki. Fellið af með sl frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 2 umferðir brugðið að hvorri annarri á öxl (séð frá réttu). Saumið sauminn undir ermakanti og niður meðfram hlið á fram- og bakstykki – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru ca 8 cm í hvorri hlið (= klauf). Brjótið kantinn með garðaprjóni meðfram handveg tvöfaldan saman að réttu og festið ermakanti með nokkrum smáum sporum mitt á öxl og mitt undir ermi. Endurtakið á hinum ermakantinum. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 90 til 108 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með slétt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #afterswimtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.