Christina Christensen skrifaði:
Der står, at jeg ved slutningen af bærestykke skal slå 8 masker (str 98-104) op over tråden. Jeg ved ikke hvad det betyder. Jeg troede de skulle på tråden, men når jeg skal strikke ærme, kan jeg se, at jeg skal slå 8 nye masker op.
16.09.2018 - 07:56
Valerie skrifaði:
Hi i am doing size 7/8 and no stripes. How many rows is it from the beginning of the yoke to the end of the raglan increase? Thanks
18.06.2018 - 11:37DROPS Design svaraði:
Dear Valerie, in size 7/8 stripes are: *2 rounds off white, 5 rounds blue*, repeat from *-* a total of 7 times = 7 rounds x 7 = 49 rounds in total. Happy knitting!
18.06.2018 - 13:57Jess skrifaði:
I've just finished the neck, but I'm afraid I don't understand the part "work 1 round until marker mid back again." Am I meant to work until I get to the stitch marker? Or am I meant to work 48 stitches past the marker? Thanks :-)
09.05.2018 - 11:29DROPS Design svaraði:
Dear Jess, next to last row of the elevation will be worked from WS over 48 sts then turn and work to marker on mid back (= where you start the short rows working 8 sts past marker). Happy knitting!
09.05.2018 - 13:05
Linnea Cedergren skrifaði:
Mängden garn som behövs kan inte stämma. Andra mönster i garngrupp B (tex Clever Clark) har en garnåtgång på totalt 250 g i strl 98/104. Enligt detta mönster behövs 400 g i 98/104, vilket dessutom är samma mängd som till strl 7/8 år. Uppdatera med rätt mängd garn!
20.02.2018 - 22:34
Dufour Arlette skrifaði:
Je voudrais savoir pourquoi il faut augmenter des mailles a la fin .Quand on change d'aiguilles habituellement on débute aig n°3,5 puis aig n°4 et la on augmente je comprend pas . Si on fait comme il et expliquer le pull vas en s'elargisant ?
16.01.2017 - 08:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Durfour, on augmente au 1er rang des côtes pour que les côtes ne resserrent pas trop l'ouvrage en bas. Bon tricot!
16.01.2017 - 10:44Gracia skrifaði:
Las tallas que vienen en el patron No. me-016-bn no entiendo la talla en cm a que se refiere , no siento logico que un niño de 3/4 años tenga talla de 98-104 cm de contorno pecho, a que se refiere esa medida ?? gracias por su respuesta
10.11.2016 - 04:07DROPS Design svaraði:
Hola Gracia. Las tallas de niños en las medidas internacionales vienen indicadas por la altura del niño. La altura de niño de 3 años es de aprox 98 cm, de 4 años - aprox 104 cm, de 5 años - 110 cm.
10.11.2016 - 08:49
Almut skrifaði:
Vielen Dank für diese Anleitung! Es ist schwierig, für größere Kindergrößen Anleitungen zu finden. In Gr. 152 sitzt der Pullover perfekt. Die Anleitung war sehr gut verständlich.
06.11.2016 - 13:45
Water Stripes#waterstripessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Sky. Stærð börn 3-14 ára
DROPS Children 27-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Byrjið 2 l á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). RENDUR: * Prjónið 1-1-2-2-2-2 umf í litnum natur, skiptið yfir í litinn ljós blágrár og prjónið 3-3-5-5-5-5 umf *, endurtakið *-* 7-8-7-7-7-7 sinnum = alls 8-9-8-8-8-8 rendur í litnum ljós blágrár. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftirr á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 92-92-96-96-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós blágrár Merino Extra Fine eða litnum ljós gallabuxnablár Sky. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið 1 umf slétt og haldið áfram með að prjóna STROFF = 2 l sl, 2 l br í 6-6-8-8-11-14 umf, JAFNFRAMT þegar stroffið er prjónað þá eru prjónaðar rendur þannig: ljós blágrár/ljós gallabuxnablár í 1-1-2-2-3-3 umf, skiptið yfir í natur/hvítur í 2-2-3-3-4-5 umf, skiptið yfir í ljós blágrár/ljós gallabuxnablár í 3-3-3-3-4-6 umf. Prjónið síðan upphækkun aftan við hnakka þannig (haldið áfram með stroff og litinn ljós blágrár/ljós gallabuxnablár): Prjónið 8 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 48-48-64-64-64-64 l, snúið við og prjónið 1 umf aftur fram og til baka. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf sléttprjón með litnum natur/hvítur JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-10-10-8 l jafnt yfir = 102-102-106-106-106-108 l. Setjið 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig: Prjónið 17-17-18-18-18-18 l frá prjónamerki fyrir miðju að aftan, setjið 1. prjónamerki hér (takið jafnframt frá prjónamerki fyrir miðju að aftan), prjónið síðan 17 l (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið 34-34-36-36-36-37 l (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki, prjónið 17 l (= ermi), setjið 4. prjónamerki og prjónið aftur fram að fyrsta prjónamerki (nú eru 34-34-36-36-36-37 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið síðan áfram í sléttprjóni til loka. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT, í 1. umf er aukið út um 1 l hvoru megin við 4 prjónamerki fyrir laskalínu (= 8 útaukningar) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf 4-6-7-7-9-10 sinnum til viðbótar (5-7-8-8-10-11 sinnum alls). Síðan í annarri hverri umf 7-6-7-10-10-11 sinnum og í lokin í 3. hverri umf 3-4-4-3-3-3 sinnum = 222-238-258-274-290-308 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Setjið 47-51-55-59-63-67 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir lykkjum á þræði, prjónið fram að 3. prjónamerki, setjið 47-51-55-59-63-67 l á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir lykkjum á þræði, prjónið aftur fram að 1. prjónamerki = 144-152-164-172-180-190 l á prjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið síðan áfram með rendur og sléttprjón. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með litnum natur/hvítur. Prjónið þar til stykkið mælist 36-40-44-46-50-54 cm frá öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 44-44-48-52-52-58 l jafnt yfir = 188-196-212-224-232-248 l. Prjónið 5-5-5-8-8-8 umf, skiptið yfir í litinn ljós blágrár/ljós gallabuxnablár og haldið áfram með 6-6-6-9-9-9 umf = ca 4-4-4-6-6-6 cm stroff. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 40-44-48-52-56-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið l af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4 og fitjið að auki upp 8 nýjar l undir ermi = 55-59-63-67-71-75 l. Haldið síðan áfram með rendur og sléttprjón. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með litnum natur/hvítur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (þ.e.a.s. mitt í 8 nýja l). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar prjónaðir hafa verið 3 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2,5-2-2,5-2-2,5-2,5 cm millibili alls 9-11-12-14-14-15 sinnum = 37-37-39-39-43-45 l. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 28-31-35-37-40-44 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 11-11-13-13-13-11 l jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 l. Prjónið 5-5-5-8-8-8 v, skiptið yfir í litinn ljós blágrár/ljós gallabuxnablár og haldið áfram með 6-6-6-9-9-9 umf = ca 4-4-4-6-6-6 cm stroff. Alls mælist ermin nú ca 32-35-39-43-46-50 cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterstripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.