Clawur skrifaði:
Ich hab meinen Fehler schon erkannt, wer beim lesen mitdenkt ist klar im Vorteil!!!
20.11.2016 - 13:50
Clawur skrifaði:
In der Anleitung für den Rumpf steht das die Arbeit in Größe 3/4 bei einer Länge von 24cm abgekettet werden soll. Jedoch steht das die Knopflöcher bei 2, 8, 14, 22 und 28cm gemacht werden soll. Wie lange soll die Arbeit nun gestrickt werden?
19.11.2016 - 23:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Clawur, für die Knopflöcher müssen Sie ab den Anschlagrand entlang der Blende messen, beim Rumpfteil wird von dem neu angeschlagenen Maschen unter den Ärmel gemessen. Viel Spaß beim stricken!
21.11.2016 - 09:51
Margit Olesen Damkjer skrifaði:
Svar vedr ærmevidde: har strikket trøjen i tre størrelser. Min strikkefasthed passer nøjagtigt. Ved alle tre trøjer har jeg samlet ekstra masker op til ærme, så at fx den lille størrelse starter med en vidde på 20 cm.
08.11.2016 - 11:13
Margit Olesen Damkjer skrifaði:
Er der andre end mig, der synes opskriftens ærmer er meget smalle fra begyndelsen?
06.11.2016 - 11:30DROPS Design svaraði:
Hej Margit. Tjek din strikkefasthed. Nu ved jeg ikke hvilken str du laver, men f.eks. den mindste str (3/4 aar) skal vaere ca. 18 cm i omkreds ved start.
07.11.2016 - 12:19
Margit Olesen Damkjer skrifaði:
Hvorfor står der under "montering", at åbningerne under armen skal syes sammen? (Ved ærmets begyndelse skal man samle masker op)
02.11.2016 - 11:39DROPS Design svaraði:
Hej Margit. Ja, det skal selvfölgelig ikke staa der. Vi sletter. Tak.
02.11.2016 - 12:09
Christina skrifaði:
Det er gjort en rettelse til den opprinnelige oppskriften, der maskeantallet er justert fra 87 til 65 når man legger opp - men hvordan justerer man fordelingen av masker videre i oppskriften? Hvor mange masker er forstykke osv?
15.10.2016 - 08:43DROPS Design svaraði:
Hej Christina. Maskeantallet passer i resten af mönstret. F.eks mindste str. Du starter med 87 og efter A.2 (17 m per gentagelse i sidste pind) har du 11x17 = 187 + 5 rille m i hver side = 197 m.
18.10.2016 - 15:03
Chelo skrifaði:
Podrias explicarme como aumentar los puntos ? no lo entiendo
02.10.2016 - 11:07DROPS Design svaraði:
Hola Chelo. Los pts en el modelo se aumentan trabajando una HEB (lazada), es decir, cuando llegas a 1 pt antes de MP (marcapuntos) hacer una lazada, trabajar los 2 pts de derecho (el MP esta entre estos 2 pts) y hacer otra lazada = 2 pts aum.
07.10.2016 - 16:39
Helle skrifaði:
Hei, en ymmärä sitä, että kun luo 65 s, miten kaavaA.2 kuviota pystyy toistamaan 11 kertaa. Kiitos
09.09.2016 - 20:12DROPS Design svaraði:
Hei! Piirroksen A.2 ensimmäisellä kerroksella on 5 s. Neulot 5 s ainaoikeaa 11 x A.5 (= 55 s), 5 s ainaoikeaa.
12.09.2016 - 14:36
Ilaria skrifaði:
Ho avviato il modello con i ferri 3.5 come indicato. Nelle spiegazioni non viene detto quando passare ai ferri numero 4. Forse alla fine si A1? Grazie
04.09.2016 - 23:02DROPS Design svaraði:
Buonasera Ilaria, i ferri n° 4 mm vengono usati sul corpo e sulle maniche, non sullo sprone. Buon lavoro!
04.09.2016 - 23:31
Sweet Bay Jacket#sweetbayjacket |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með blaðamynstri, garðaprjóni og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð börn 3-14 ára
DROPS Children 27-24 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri í umf). Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, þ.e.a.s. kantur að framan í lok umf séð frá réttu. 1 hnappagat = prjópnið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá uppfitjunarkanti og meðfram kanti að framan): STÆRÐ 3/4: 2, 8, 14, 22 og 28 cm. STÆRÐ 5/6: 2, 8, 14, 22 og 28 cm. STÆRÐ 7/8: 2, 8, 14, 22, 28 og 36 cm. STÆRÐ 9/10: 2, 8, 14, 22, 28 og 36 cm. STÆRÐ 11/12: 2, 8, 14, 22, 28, 36 og 42 cm. STÆRÐ 13/14: 2, 8, 14, 22, 28, 36 og 42 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI. Fitjið upp 87-87-94-94-101-101 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með Belle. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), A.1 þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Í umf með uppslætti í A.1 er endað með 1 l sl á undan kanti að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: 5 l garðaprjón, A.2 (= 7 l), endurtakið A.2 alls 11-11-12-12-13-13 sinnum, endið með 5 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFSTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 197-197-214-214-231-231 l á prjóni, stykkið mælist ca 10 cm. Haldið áfram í garðaprjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l mitt í hverri mynstureiningu (= 11-11-12-12-13-13 l fleiri), aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo það myndist gat. Endurtakið útaukningu með 1-1-1½-1½-2-2 cm millibili 0-1-1-2-1-2 sinnum til viðbótar = 208-219-238-250-257-270 l. Prjónið 1 umf slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 210-222-234-250-262-276. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm. Prjónið síðan frá þannig (frá réttu): Prjónið fyrstu 36-38-40-42-44-45 l (= framstykki), setjið næstu 38-40-42-46-48-52 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 62-66-70-74-78-82 l (= bakstykki), setjið næstu 38-40-42-46-48-52 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 36-38-40-42-44-45 l sem eftir eru (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 146-154-162-170-178-184 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og garðaprjóni á köntum að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 5-6-7-8-9-10 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 162-170-178-186-194-200 l. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 24-27-30-33-36-37 cm, prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af. ERMI: Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 = 38-40-42-46-48-52 l. Prjónið upp 1 l í hverja af 6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-46-48-52-54-58 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Stykkið er nú mælt héðan. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 7-5-5-4-4-4 cm millibili 2-3-3-5-5-7 sinnum til viðbótar = 38-38-40-40-42-42 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 21-24-26-29-32-35 cm, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetbayjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.