DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Bay

Prjónuð peysa með blaðamynstri, garðaprjóni og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð börn 3-14 ára

DROPS Children 27-23
DROPS Design: Mynstur nr vs-003-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164
Efni: DROPS BELLE frá Garnstudio
200-250-250-300-350-400 g nr 15, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón (prjónfesta með garðaprjóni: 21 l x 42 umf verði 10 x 10 cm).
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá teikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri í umf). Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 77-77-84-84-91-91 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið A.1 yfir allar l. Í umf með uppslætti í A.1 er endað með 1 l sl. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 (= 7 l), yfir allar l (= 11-11-12-12-13-13 mynstureiningar af A.2). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 187-187-204-204-221-221 l í umf, stykkið mælist ca 10 cm. Haldið áfram með GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf sem prjónuð er slétt er aukið út um 1 l mitt í hverri mynstureiningu (= 11-11-12-12-13-13 l fleiri), aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður br í næstu umf svo að það myndist gat. Endurtakið útaukningu með 1-1-1½-1½-2-2 cm millibili 0-1-1-2-1-2 sinnum til viðbótar = 198-209-228-240-247-260 l. Prjónið 1 umf slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 200-212-224-240-252-266. Haldið áfram með garðaprjóni þar til stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm. Prjónið síðan þannig: Prjónið fyrstu 31-33-35-37-39-40 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 38-40-42-46-48-52 l á bandi (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 62-66-70-74-78-82 l (= framstykki), setjið næstu 38-40-42-46-48-52 l á band (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 31-33-35-37-39-40 l (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 136-144-152-160-168-174 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Haldið síðan áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 5-6-7-8-9-10 cm millibili 3 sinnum til viðbótar – LESIÐ ÚTAUKNING = 152-160-168-176-184-190 l. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 24-27-30-33-36-37 cm, prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af.

ERMI:
Setjið til baka l af bandi á sokkaprjóna nr 4 = 38-40-42-46-48-52 l. Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-46-48-52-54-58 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Stykkið er nú mælt héðan. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 7-5-5-4-4-4 cm millibili 2-3-3-5-5-7 sinnum til viðbótar = 38-38-40-40-42-42 l. Haldið áfram með sléttprjón þar til ermin mælist 21-24-26-29-32-35 cm, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.10.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.2 og leiðrétting í texta BERUSTYKKI: Fitjið upp 77-77-84-84-91-91 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið A.1 yfir allar l. Í umf með uppslætti í A.1 er endað með 1 l sl. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 (= 7 l),
Yfirfarið á vefsvæði: 19.10.2016
Leiðrétting: Texti í mynstri - tákn nr 6
Yfirfarið á vefsvæði: 10.11.2017
ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri í umf). Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt/br
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Bay

Maria, Canada

Sweet Bay

Gillian Johnstone, Cyprus

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Züst Marianne wrote:

Hab jetzt A1 gestrickt. Ab wann werden die Aufnehmen gemacht und wo werden die Markierer gesetzt? Vielen Dank

25.03.2024 - 08:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Züst, wenn A.1 fertig ist stricken Sie dann A.2 in der Runde (dh je nach der Größe 11, 12 oder 13 Mal in der Runde), es wird jeweils 10 Maschen in jedem A.2 zugenommen, dann wenn A.2 fertig ist soll man 1 Masche in jedem A.2 (siehe schriftliche Anleitung) zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 09:27

country flag Lisa wrote:

Hallo, gibt es dieses schöne Muster auch in einer Anleitung für Erwachsene? Vielen Dank für Ihre tolle Seite!

15.03.2024 - 15:34

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, ja genau hier finden Sie den Pullover für Damen. Viel Spaß beim Stricken!

18.03.2024 - 07:54

country flag Rita Gründler wrote:

Hallo! Warum steht bei 3/4 Jahre die Größe 98/104? Das ist in Deutschland die Größe für viel jüngere Kinder. Meine Enkelin ist 4 und braucht Größe 122, sie ist aber auch nicht ungewöhnlich groß für ihr Alter , sondern eher zart . An welcher Größe kann ich mich orientieren? Vermessen kann ich sie leider nicht. Wäre schön, wenn ich möglichst bald eine Rückantwort bekäme. Mit freundlichen Grüßen Rita

07.02.2024 - 12:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gründer, wir folgen den internationalen Größenstandard, aber natürlich kann man die Größe je nach dem Kind wählen; am besten messen Sie einen ähnlichen Pullover, den Sie gerne trägt, dann vergleichen Sie sie mit der Skizze, so finden Sie die passende Größe. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

08.02.2024 - 08:15

country flag Gabrielle wrote:

Bonjour, Je n'arrive pas à comprendre où se situe les augmentations de l'empiècement. A quel moment faut-il les commencer? Merci pour votre aide. Gabrielle

04.02.2024 - 15:39

DROPS Design answered:

Bonjour Gabrielle, elles se trouvent principalement dans le diagramme A.2 où vous augmentez au milieu de chaque A.2 (au milieu de chaque feuille) aux rangs 7, 9, 11, 13 et 15 (les jetés à partir du rang 17 sont systématiquement compensés par une diminution). Bon tricot!

05.02.2024 - 09:27

country flag Cathie Castaneda wrote:

Hello! I have a question with the Sweet Bay pattern. The 3rd sentence under the “Yoke” section states, “on rounds with YO’s in A.1 finish with K1.” Finish where? End of row, or finish each YO? Thanks for your help!

01.02.2024 - 18:59

DROPS Design answered:

Hi Cathie, You work 1 yarn over at the end of each round when there are YOs in A.1. Happy knitting!

02.02.2024 - 08:05

country flag Dorte Thillemann wrote:

Er ved, at strikke blusen i str. 3/4 år. Kan ikke forstå mål skemaet, syntes ikke det stemmer med opskriften. I mål skemaet skal blusen være 36cm fra delingen ved ærmerne. I opskriften skal den være 24 cm, hvorefter man strikker 6 ret pinde. Hvilket mål er korrekt? Mvh Dorte

12.02.2023 - 21:53

DROPS Design answered:

Hei Dorte Om du ser på målskissen vil du se at målet 34 er fra topp til bunn på genseren (altså hele lengden). Fra topp til delingen er det 11 cm som står i målskissen. Det står ikke cm mål fra delingen og ned, men tar man hele lengden på 36 cm minus 11 cm blir det da 24 cm (fra delingen og ned) slik det står i oppskriften. mvh DROPS Design

13.02.2023 - 14:02

country flag Libby wrote:

I am casting on and the neck looks way too small 77 stitches

27.11.2022 - 01:56

DROPS Design answered:

Dear Libby, if the cast-on edge is too tight and not elastic, you can use a larger needle for casting on and then work the garter stitch with the recommended needle. You can also cast on a few more stitches for the neck edge and then decrease them after A.1 up to the number of stitches indicated for your size and then continue with the pattern. Happy knitting!

27.11.2022 - 15:57

country flag Patricia Kool wrote:

Het meerderen over M1 en M2 tot 187 st. begrijp ik niet. Begin 77 st. + 110 st. Het zijn 42 nld samen. Vriendelijke groet, Patricia.

23.10.2022 - 02:17

DROPS Design answered:

Dag Patricia,

Je breit A.1 11 keer in de breedte. A.1 heeft in het begin 7 steken in de breedte en door de meerderingen die in het telpatroon verwerkt zijn heeft A.1 op het einde 17 steken in de breedte. 11 herhalingen van 17 steken in de breedte is 187 steken.

26.10.2022 - 09:16

country flag Diana wrote:

Hola buenas tardes, mi consulta es la siguiente: estoy intentando hacer la medida para 11/12 años que indica montar 91 puntos, el patrón indica tejer A1, que tiene 8 puntos, con lo cual estarían sobrando 3 puntos. También indica que en las vtas con HEBs en A.1, terminar con 1 pt derecho, y es solo una vuelta con HEBs en todo el patrón, a qué se refiere exactamente? Muchas gracias!

03.06.2022 - 20:41

DROPS Design answered:

Hola Diana, el diagrama se muestra sobre 8 puntos, pero puedes trabajar más puntos (ya que se trabaja todo de derecho o de revés la fila entera, pero no importa cuantos puntos). Realmente se trata de un diagrama de 2 puntos, que repetimos 4 veces para que se vea mejor (ya que, si no, sería demasiado estrecho y se podría ver mal al imprimir). Solo importa la cantidad de puntos en la fila con hebras, que tiene que ser un múltiplo de 2. Los primeros 90 puntos se trabajan según el patrón y el último punto es 1 derecho.

04.06.2022 - 18:36

country flag Elaine Fenton wrote:

There is no guidance on how to finish the back of jumper. Do you sew it up or add edge trim and button holes?

20.02.2022 - 14:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fenton, this jumper is worked top down starting from the neck you will increase for yoke, then divide piece for body and sleeve. Continue working body (= front and back piece) in the round to the bottom edge and finish sleeves in the round. There is no button nor buttonholes there. Happy knitting!

21.02.2022 - 10:37