Carola Eriksson skrifaði:
Vilka härliga, perfekt till mina barn. Hoppas den kommer med! Please include! Namesuggestion: Happy Sheep
29.06.2016 - 20:45
Anne Lockhart skrifaði:
Lady Baa Baa
28.06.2016 - 15:19
Gaby skrifaði:
Soo lustig! Zum Selbertragen, für meine Tochter und zum Verschenken! Ich freu mich schon!!!
22.06.2016 - 13:47
Gabriele skrifaði:
Erst heute entdeckt - ganz knuffelig - und bitte nicht nur in Kindergröße wie schon vorher bemerkt wurde!!!!
21.06.2016 - 11:14
Eva-Lis Tengvall skrifaði:
Underbara! Måste få sticka dessa ljuvliga sockor:-)
20.06.2016 - 18:56
Shannon Furnish skrifaði:
So darling. Would love to make these. They look so cozy.
20.06.2016 - 07:13
Marina Clé skrifaði:
Deze zijn eens anders dan andere en ik vind ze prachtig!
15.06.2016 - 19:24
Claudia skrifaði:
Hoffentlich nicht in Kindergrößen, einfach total süss!
05.06.2016 - 19:36
Corinne Glatre skrifaði:
On the fields
03.06.2016 - 17:39
Dea skrifaði:
Troppo simpatiche!
03.06.2016 - 15:15
Sleepy Sheep#sleepysheepsocks |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu mynstri með kindum úr DROPS Karisma. Stærð 35-46.
DROPS 173-45 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynstur er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-14-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið l hvoru megin við merki þannig: Byrjið 3 l á undan merki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (merkið er staðsett mitt á milli þessa l), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuð lykkjuna (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum kirsuber DROPS Karisma. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 4 l jafnt yfir = 60-60-64-64 l. Prjónið A.1 (= 4 l) alls 15-15-16-16 sinnum á breiddina. Í síðustu umf A.1 er fækkað um 0-0-4-4 l jafnt yfir = 60 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 0-0-1-3 umf með litnum ljós himinblár. Prjónið A.2 (= 10 l) alls 6 sinnum á breidd, setjið 1 merki eftir 25 l (þ.e.a.s. mitt í 3. mynstureiningu á A.2 = merkir miðju að framan). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 0-0-2-3 umf með litnum himinblár. Prjónið A.3 (= 4 l), í síðustu umf á A.3 er fækkað um 4 l jafnt yfir = 56 l. Prjónið A.4 (= 7 l) alls 8 sinnum á breidd. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 15-15-16-17 cm. Prjónið síðan A.5 (= 6 l), í fyrstu umf er fækkað um 2 l jafnt yfir = 54 l. Í umf 3 er fækkað um 2-0-0-0 l jafnt yfir = 52-54-54-54 l. Í umf 6 er fækkað um 4-0-0-0 l jafnt yfir = 48-54-54-54 l. Mynsturteikning A.5 er prjónuð 8-9-9-9 sinnum hringinn. Prjónið síðan A.6 (= 4 l), í fyrstu umf er fækkað um 0-2-0-0 l eða aukið út um 0-0-2-2 l jafnt yfir = 48-52-56-56 l. Mynstur A.6 er prjónað 12-13-14-14 sinnum hringinn. Prjónið 1 umf með litnum ljós eik. Stykkið mælist ca 24-24-25-26 cm. Stillið umf af þannig að byrjað er á 24-26-28-28 l frá merki fyrir miðju að framan. Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28-28 l á þráð (merkið er staðsett mitt á milli þessa l = miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram með litnum ljós eik og sléttprjóni fram og til baka yfir 24-26-28-28 hæl-l í 5-5½-6-6½ cm. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 11-12-13-14 l hvoru megin við hæl með litnum ljós eik og 24-26-28-28 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 58-64-68-70 l. Setjið 1 merki hvoru megin við 24-26-28-28 l ofan á fæti. Setjið 1 merki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón með litnum ljós eik og fækkið l hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á UNDAN fyrra merki ofan á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á EFTIR seinna merki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið l svona í annarri hverri umf alls 5-8-7-5 sinnum = 48-48-54-60 l. Prjónið síðan með litnum ljós eik þar til stykkið mælist ca 9-10-13-15 cm frá merki á hæl (nú eru ca 13-14-14-15 cm að loka máli). Prjónið A.7 (= 6 l) alls 8-8-9-10 sinnum hringinn. Í síðustu umf í A.7 er fækkað um 4-0-2-4 l jafnt yfir = 44-48-52-56 l. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.8 (= 4 l) alls 11-12-13-14 sinnum hringinn. Setjið 1 merki í hvora hlið þannig að það verða 22-24-26-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Skiptið yfir í litinn kirsuber. Prjónið 1 umf sléttprjón. Fækkið síðan lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umf alls 5-6-6-7 sinnum = 8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt, en þegar fyrra merki er sett í mynstur A.2 er það sett á eftir 35 l (þ.e.a.s. mitt í 4. mynstureiningu á A.2 = merkir miðju að framan). |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sleepysheepsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.