Karin Bodin skrifaði:
Hej! För mig stämmer inte mönstret när jag övergår till A3, på mönstret ska dom två aviga maskorna förskjutas en maska inåt och på videon sker inte så .Mönstret stämmer om jag låter de två aviga följa med rakt upp.
07.11.2016 - 10:41DROPS Design svaraði:
Hej. Mönstret ska inte förskjutas. I och med att det minskas maskor på varje varv med omslag /maskor som stickas ihop så blir det mindre antal maskor ju längre upp i diagrammet du kommer. Lycka till!
17.11.2016 - 12:12
Margaret Gordon skrifaði:
So grateful for your quick response. It all makes perfect sense now. I just couldn't get the number of stitches to match up and I think the reference to 'every 6cm' confused me even more. Thank you once again. Margaret
30.07.2016 - 16:40
Margaret Gordon skrifaði:
Hello! I am knitting the neck warmer & am very confused about the instructions following the first decrease = 145 stitches. Please would you clarify the instruction "Dec alternately at beginning and end of stocking stitch sections every 6 cm in total 4 times in total = 130 stitches. I am very frustrated so please can you enlighten me. I have knitted and crocheted so many of the Drops patterns and love the yarns and your helpful videos. Many thanks and kind regards. Margaret
28.07.2016 - 17:02DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Gordon, On first dec round, dec 1 st at beg of each section worked in stocking st ( = 5 sts dec, 145 sts remain) - on next dec round, dec 1 st at the end of each section worked in stocking st (= 5 sts dec, 140 sts remain). Repeat these dec, ie on next dec round, dec at the beg of stocking st section, then on next dec round dec at the end of stocking st section (= 5 sts dec on each dec round, a total of 4 times = 20 sts dec, 130 sts remain). Happy knitting!
28.07.2016 - 17:25
Inger skrifaði:
I like it that it's a full set and it looks lovely.
03.06.2016 - 23:25
Malin#malinset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, vettlingum og hálsskjóli úr DROPS Alaska með gatamynstri og stroffprjóni.
DROPS 171-56 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um vettlinga): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um hálsskjól): Fækkið l í byrjun á mynstureiningu í sléttprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, prjónið næstu l, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið l í lok mynstureiningar í sléttprjóni þannig: Prjónið þar til 2 l með sléttprjóni eru eftir, 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 83-95 l á hringprjóna nr 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan þannig: A.1 (= 17 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 64-76 l, endið með 2 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið A.2 yfir l í A.1 (= 17 l) og prjónið sléttprjón yfir þær 66-78 l sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerki í fyrstu l sléttprjón á eftir A.2, síðan eru næstu 5 prjónamerki sett með 10-12 l á milli hverra (= 10-12 l á eftir síðasta prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og A.2, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki (prjónið l með prjónamerki slétt saman með næstu l), fækkið l í annarri hverri umf 2 sinnum (= 71-83 l), prjónið síðan A.3 yfir l í A.2 (stillið af eftir heila mynstureiningu af A.2), haldið áfram með úrtöku í sléttprjóni í annarri hverri umf 6 sinnum til viðbótar og fækkið l í A.3 þar til A.3 hefur verið prjónað til loka = 27-39 l eftir í umf. Prjónið allar l slétt saman 2 og 2, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Festið enda. Stykkið mælist ca 23-24 cm. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 43-47 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Alaska og prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan þannig: 1-2 l sl, A.1 (= 17 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 24-28 l, endið með 1-0 l sl. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið síðan þannig: 1-2 l sl, A.1, prjónið sl yfir þær l sem eftir eru JAFNFRAMT er fækkað um 7 l yfir þessar l = 36-40 l. Prjónið síðan þannig: 1-2 l sl, A.2 (= 17 l), sl yfir þær l sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við 34.-38. l í umf fyrir þumal (= 2 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umf alls 5 sinnum = 46-50 l. Setjið nú 11 þumallykkjur á þráð. Prjónið síðan sléttprjón og A.2 hringinn JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumal í næstu umf = 36-40 l. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 21-22 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki á eftir 19-21 l. Haldið áfram með A.3 yfir A.2, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l á undan fyrra prjónamerki og 1 l á eftir seinna prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6 sinnum til viðbótar = 14-18 l eftir á prjóni. Prjónið allar l saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka þær 11 þumallykkjur af þræði yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið að auki upp 4-5 l fyrir aftan þumal = 15-16 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til sjálfur þumallinn mælist ca 4½-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm til loka). Prjónið 2 umf slétt JAFNFRAMT þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, nema aukið er út fyrir þumal hvoru megin við 21.-23. lykkju. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 150 l á hringprjóna nr 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað þannig: * A.1 (= 17 l), A.4 (= 13 l) *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað þannig: * A.2 (= 17 l), sléttprjón yfir næstu 13 l *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. Haldið síðan áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l í byrjun hverrar mynstureiningar í sléttprjóni – LESIÐ ÚRTAKA-2 = 145 l. Fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og lok mynstureiningar í sléttprjóni, með 6 cm millibili alls 4 sinnum = 130 l. Þegar stykkið mælist 26 cm er prjónað áfram með A.5 yfir allt mynstur A.2, aðrar l halda áfram í sléttprjóni. Prjónið A.5 1 sinni á hæðina (stykkið mælist ca 30 cm og það eru 110 l í umf). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5, prjónið síðan þannig: * A.6 (= 13 l), A.7 (= 9 l) *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. Prjónið A.6 og A.7 í 4 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br, stykkið mælist alls 34 cm. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #malinset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-56
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.