DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Snow Angel

Settið samanstendur af: Prjónaðri basker / alpahúfu, hálsklút og handstúkum úr DROPS BabyMerino með gatamynstri. Stærð S - L.

DROPS 172-29
DROPS Design: Mynstur nr bm-028
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50-100 g litur nr 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. 1 mynstureining eftir mynstri A.1 mál ca 4½ cm á breiddina og 4½ cm á hæðina.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.

HÁLSKLÚTUR:
Mál: ca 35 x 160 cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
250 g litur nr 02, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 30 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 – fyrir stroff.

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - M/L
Mál:
Ummál ca 21-23 cm (aðeins strekkt).
Lengd ca 22-24 cm.

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50-50 g litur nr 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

Í ALLT SETTIÐ:
350 g í báðar stærðir litur nr 02, natur

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (alpahúfa/basker):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (hálsklútur):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – ATH: Ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur í hvorri hlið.

ÚTAUKNING (handstúkur):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp, skipt er yfir í sokkaprjóna eftir þörf.

ALPAHÚFA / BASKER:
Fitjið upp 120-126 l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 2½-3½ cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 10-14 l jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út um 1 l á eftir 12.-9. hverri l) – LESIÐ ÚTAUKNING = 130-140 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynstri A.1 (= 13-14 mynstureiningar 10 l).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina, prjónið mynstur hringinn eftir A.2 JAFNFRAMT er l fækkað eins og sýnt er í mynstri. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 26-28 l eftir í umf. Prjónið 1 umf slétt þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman tvær og tvær = 13-14 l eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Öll húfan mælist ca 25-26 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónuð eru tvö alveg eins stykki sem saumuð eru saman í miðju.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 203 l á hringprjóna nr 3 með Baby Merino.
Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir á prjóni, endið með 1 l sl og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2 cm er öllum 3 l br fækkað (séð frá réttu) í 2 l br = 154 l. Þegar stykkið mælist 3 cm er önnur hver 2 l br fækkað í 1 l br = 130 l. Þegar stykkið mælist 4 cm er þeim 2 l br sem eftir eru fækkað í 1 l br = 105 l. Þegar stroff mælist 6 cm – passið að síðasta umf sé umf prjónuð frá röngu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.3 þar til 4 l eru eftir á prjóni (= 7 mynstureiningar 14 l), prjónið 1 l sléttprjón og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 77 l eftir í umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 4 l eru eftir á prjóni (= 7 mynstureiningar 10 l) og endið með 1 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist ca 79 cm (endið eftir eina heila mynstureiningu með A.1 á hæðina), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 84 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er LAUST af með sl frá réttu.

Prjónið annað stykki á sama hátt. Saumið bæði stykkin saman innan við affellingarkantinn þannig að það verða 8 umf garðaprjón í miðju á hálsklúti.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring.

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 75-84 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Merino.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stroff mælist 1-2 cm eru 2 l br fækkað í 1 l br = 63-70 l. Þegar stroff mælist 2-3 cm eru öllum 2 l br sem eftir eru fækkað í 1 l br = 50-56 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið mynstur eftir A.1 yfir fyrstu 30 l (= 3 mynstureiningar 10 l), * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 10-13 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 20-21 cm – endið eftir eina heila mynstureiningu með A.1 á hæðina, skiptið til baka yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 12 l jafnt yfir = 62-68 l. Prjónið stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 2-3 cm og fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Öll handstúkan mælist ca 22-24 cm.

Prjónið aðra handstúku á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

172-29 Snow Angel

Daniela, Slovakia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Sylvie wrote:

Encore moi ! La diminution sur le diagramme A3 doit se faire à chaque début et fin de motif ? Merci encore pour votre réponse.

24.02.2024 - 00:46

country flag Sylvie wrote:

Bonsoir, Je tricote l’écharpe. J’en suis au 8ème rang du diagramme A3. Je dois diminuer une maille de chaque côté du diagramme c’est ça ? Merci d’avance pour votre réponse.

24.02.2024 - 00:42

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, cette diminution se fait automatiquement au 7ème rang, lorsque vous allez diminuer 4 mailles mais que vous ne faites que 2 jetés, vous allez ainsi diminuer 2 mailles dans chaque A.3. Bon tricot!

26.02.2024 - 07:53

country flag Sandy wrote:

Bonjour, Je suis en train de tricoter l’écharpe. Je suis aux côtes à 154 mailles. Je ne comprends pas le paragraphe suivants « À 3 cm de hauteur totale, diminuer 1 m dans 1 section 2 m env sur 2 = 130 m. À 4 cm de hauteur totale, diminuer 1 m env dans les sections 2 m env restantes (= côtes 1 m end/1 m env) = 105 m Je vous remercie pour votre aide. Sandy

19.02.2024 - 20:13

DROPS Design answered:

Bonjour Sandy, tricotez ainsi: 3 m point mousse, (1 m end, 2 m env), puis répétez (1 m end, 2 m ens à l'env, 1 m end, 2 m env) jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles (soit 24 fois), terminez par 1 m end et 3 m point mousse. Vous avez diminué 24 m, il reste 130 m. Pour la diminution suivante, tricotez ainsi: 3 m point mousse, 1 m end, 2 m ens à l'env, puis répétez (1 m end, 1 m env, 1 m end, 2 m ens à l'env) et terminez par 1 m end, 3 m point mousse, il reste 105 m et vos côtes sont en 1 m end/1 m env. Bon tricot!

20.02.2024 - 08:09

country flag N O ël wrote:

Puis je réaliser ce modèle avec la laine kid silk ? Merci

21.12.2023 - 20:08

DROPS Design answered:

Bonjour Noël, tout à fait, en revanche, l'effet obtenu sera différent en raison de la composition et de la texture des 2 laines. Utilisez notre convertisseur pour connaître la quantité correspondante en Kid-Silk. Bon tricot!

22.12.2023 - 08:27

country flag Sandy wrote:

Bonjour, Je suis en train de faire les manchettes. Je ne comprend pas comment procéder : Quand les côtes mesurent 1-2 cm, diminuer 1 m env dans 1 section 2 m env sur 2 = 63-70 m. Merci pour votre réponse PS : j’ai monté mes mailles sur 4 aiguilles double pointe, j’espère que c’est correct

15.01.2023 - 20:04

DROPS Design answered:

Bonjour Sandy, c'est juste, vous tricotez bien en rond, les mailles réparties sur 4 aiguilles et vous tricotez avec la 5ème - Diminuez maintenant les côtes ainsi: *1 m end, 2 m ens à l'env, 1 m end, 2 m env*, répétez de *à * tout le tour et tricotez les mailles comme elles se présentent (1 m end, 1 m env, 1 m end, 2 m env), puis diminuez de nouveau: *1 m end, 1 m env, 1 m end, 2 m ens à l'env*, répétez de *-* tout le tour. Bon tricot!

16.01.2023 - 09:42

country flag Sandra Ring wrote:

Hallo, ich habe Probleme beim Muster des Schales. A3 Bei der 5. Hinreihe werden die zwei rechts zusammen seitlich nicht mehr gestrickt, nur noch die drei Maschen in der Mitte zusammen. Ich weiß nicht, was ich falsch mache: ich beginne mit 3 Randmaschen kraus rechts, dann eine Masche rechts...........Wenn aber die Hinreihe 5 kommt, habe ich ein Problem da meine Umschläge wieder genau auf den Umschlägen zuvor liegen, sollten doch aber nach innen versetzt sein?

21.11.2022 - 13:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ring, bei der 4. Hinreihe (= 7. Reihe) wird man 2 Maschen in der Mitte A.3 abnehmen (schwarzes Dreieck= 1 M wie zum Rechtsstr abheben, 2 M re zusstr, die abgehobene M überziehen), so sind es 2 Maschen weniger ab nächste Reihe (A.3 is dann 12 M). Bei der 12. Hinreihe werden wieder 2 Maschen in der Mitte abgenommen (dann sind es nur noch 10 M in jedem A.3). Viel Spaß beim stricken!

21.11.2022 - 16:19

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Merci d'avance pour votre aide concernant l'écharpe : quelle méthode est utilisée pour coudre les 2 parties ensemble. Concernant le bonnet quelle méthode pour faire les diminutions des bords du diagrammes A2 ? Cordialement. PIa.

08.12.2020 - 19:49

DROPS Design answered:

Bonjour Pia, cette vidéo montre comment réaliser 2 coutures différentes pour assembler 2 pièces entre elles, le dessous des manches dans la vidéo, ou bien les 2 parties de l'écharpe ici. Dans A.2, on diminue les 2 mailles au milieu (cf dernier symbole légende), et, comme on ne fait pas de jeté, on va automatiquement diminuer 2 mailles. Bon tricot!

09.12.2020 - 06:54

country flag Dana Schoales wrote:

I am knitting Snow Angel hat. Trouble with chart A.2, row 8. There is a decrease at both beginning and end of this row on chart. Does it mean knit 2 tog, knit 6, knit 2 tog repeat to end? That is how I read it but I have extra stitches at the end. Could you please clarify

03.10.2020 - 03:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Schoales, after row 6 you have still 10 sts on the needle, then you will work row 7 decreasing 2 stitches (= knit 4, slip 1 as if to K, K2 tog, psso, K3) = 8 sts remain. On row 8 knit the 8 sts. Repeat decrase on next round: K3, dec 2, K2 = 6 sts remain. knit all sts on next round and continue like this decreasing 2 sts in the middle of each repeat until 2 sts remain in each repeat. Happy knitting!

05.10.2020 - 08:54

country flag Anette Nielsen wrote:

Hej Jeg er i gang med halstørklædet og er i færd med A3 som starter med 14 m.....som jeg forstår det skal dette motiv strikkes flere gange i højden men mønsteret slutter med 10 masker, så hvordan kommer jeg videre til 14 m igen? Har jeg misforstået det? Mvh Anette

10.09.2020 - 13:14

DROPS Design answered:

Hei Anette. A.3 skal bare strikkes 1 gang i høyden og det sluttes da med 10 masker, nå skal du strikke etter A.1 + kantmaskene. Det er A.1 som skal gjentas i høyden til arbeidet måler ca 79 cm. God Fornøyelse!

14.09.2020 - 08:31

country flag Claudia wrote:

Buongiorno,volevo approfittare dell'offerta sui filati e regalarmi questo bel set. non conosco i ferri circolari, capisco l'uso per il cappello che cosi' evita cuciture , ma per la sciarpa perche' non posso usare dei ferri normali visto che unisco poi le due parti? grazie

27.09.2019 - 11:33

DROPS Design answered:

Buongiorno Claudia. I ferri circolari sono molto diffusi nei paesi europei e si stanno diffondendo anche in Italia: Sono comodi per lavorazioni in tondo, per scialli (per avere più spazio per le maglie). Le lavorazioni in ferri di andata e ritorno (come p.es la sciarpa) possono essere eseguite con i normali ferri dritti. In questi casi, la scelta di ferri dritti o circolari è spesso soggettiva, legata quindi a come ci si trova più comodi a lavorare. Buon lavoro!

27.09.2019 - 12:18