Mary skrifaði:
Prachtig, maar wel graag patroon ook met 2 pennen.
13.01.2016 - 11:04
Yvonne S skrifaði:
Supersnygga färg, form och mönster!
04.01.2016 - 12:23
Ann Carey skrifaði:
Love this pattern. Front design is magnificent!
30.12.2015 - 14:06
Fina skrifaði:
Precioso me encantaria hacerlo
28.12.2015 - 05:02
Lisbeth skrifaði:
Skøn bluse til en kølig sommer
25.12.2015 - 23:52
Willy De Hilster skrifaði:
Heel erg mooi ! Sportief maar toch ook chique.
19.12.2015 - 10:44
Joke Kraan skrifaði:
Prachtig!
15.12.2015 - 13:03
Sabine skrifaði:
Superschön! Auch die Farbe gefällt mir. Würde ich auf jeden Fall auf meine to-do-Liste setzen....
14.12.2015 - 11:24
Margareta Romppanen skrifaði:
Mycket vacker tröja!
12.12.2015 - 20:11
Ann-Catrine Douhan skrifaði:
Mycket vacker design med stämningsfullt gärna!
12.12.2015 - 11:57
Morning Star#morningstarsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með blaðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í 2 hlutum frá miðju að aftan/miðju að framan. Stykkið er fyrst prjónað í hring, síðan er það prjónað fram og til baka. Fitjið upp og prjónið í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Að lokum eru ermar prjónaðar. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 8 l með Paris og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 5 (= 2 l á hverjum prjóni). Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 á breiddina). Þegar fyrstu 21 umf í A.1 hefur verið prjónað, á byrjun á umf að færast til um 1 l til vinstri, fyrst í annarri hverri umf, síðan í 4. hverri umf – þ.e.a.s. byrjun umf er alltaf nákvæmlega á undan fyrsta uppslætti í mynstri svo að hún verði eins ósýnileg og mögulegt er. Byrjun umf kemur að lokum að vera mitt í fyrstu mynstureiningu á A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 176 l í umf, stykkið mælist nú ca 15 cm frá miðju, ca 30 cm að þvermáli. Prjónið nú fyrstu umf í A.2 yfir allar l – passið uppá að uppslátturinn verði beint yfir uppslætti frá A.1, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu mynstureiningu (svo að ekki myndist göt), í annarri mynstureiningu er uppslátturinn prjónaður slétt (svo það myndist gat) = 192 l. Haldið síðan áfram að prjóna eftir A.3 yfir aðra , fjórðu, sjöttu og áttundu mynstureiningu af A.2, yfir hinar 4 mynstureiningarnar er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – aukið nú um 8 l í annarri hverri umf eins og sýnt er í A.3. Haldið áfram í garðaprjóni og útaukningu eins og áður þar til aukið hefur verið út 7-10-12-15-20-25 sinnum í A.3, nú eru 248-272-288-312-352-392 l í umf, endið eftir 1 umf sem prjónuð er brugðið, Næsta umf er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 11-11-12-12-13-13 l á þráð fyrir hálsmál (prjónið þær fyrst), haldið áfram með útaukningu í A.3 og garðaprjón eins og áður þar til eftir eru 11-11-12-12-13-13 l í umf, setjið síðustu 11-11-12-12-13-13 l á þráð fyrir hálsmál (prjónið þær fyrst). Klippið frá. Snúið stykkinu og prjónið áfram fram og til baka. Haldið áfram með útaukningu í A.3 í hverri umf frá réttu, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið við hálsmál í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum. Haldið áfram þar til aukið hefur verið út alls 17-20-24-27-34-39 sinnum í A.3 – nú eru 298-322-352-376-430-470 l í umf og stykkið mælist ca 25-27-29-31-35-38 cm frá miðju og 50-54-58-62-70-76 cm að þvermáli. Stærð S-M-L-XL: Fellið af fyrstu 108-117-128-137 l, setjið næstu 82-88-96-102 l á þráð og fellið af síðustu 108-117-128-137 l. Klippið frá. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 82-88-96 l í kanti að neðan í 8-6-4-2 cm. Fellið af. Stærð XXL-XXXL: Fellið af þegar öll útaukning hefur verið gerð. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið,18-19-20-21-22-23 cm niður frá öxl. Það merkir hvar ermin er saumuð í. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til aukið hefur verið út 14-17-21-24-31-36 sinnum í A.3, nú eru 304-328-360-384-440-480 l í umf, endið á 1 umf brugðið. Stykkið mælist ca 23-25-27-30-33-36 cm frá miðju og 46-50-54-60-66-72 cm að þvermáli. Prjónið næstu umf þannig: Fellið af 15-15-16-16-17-17 fyrstu l í umf, haldið áfram með A.3 með útaukningu eins og áður þar til eftir eru 15-15-16-16-17-17 l í umf, fellið af þessar l. Klippið frá. Prjónið síðan stykkið fram og til baka þar til aukið hefur verið út alls 17-20-24-27-34-39 sinnum í A.3 – nú eru 298-322-352-376-430-470 l í umf og stykkið mælist ca 25-27-29-32-35-38 cm frá miðju og 50-54-58-64-70-76 cm að þvermáli. Stærð S-M-L-XL: Fellið af fyrstu 108-117-128-137 l, setjið næstu 82-88-96-102 l á þráð og fellið af síðustu 108-117-128-137 l. Klippið frá. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir l. Klippið frá. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 82-88-96 l í neðri kanti í 8-6-4-2 cm. Fellið af. Stærð XXL-XXXL: Fellið af þegar öll útaukning hefur verið gerð. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 18-19-20-21-22-23 cm niður frá öxl. Það merkir hvar ermin er saumuð í. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 32 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili 14-14-15-16-16-17 sinnum til viðbótar = 62-64-68-72-74-78 l. Fellið af þegar stykkið mælist 48-47-46-44-42-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í niður að prjónamerki á framstykki/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju, endið þegar 20 cm eru eftir neðst niðri á fram- og bakstykki = klauf. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 70 til 86 l (meðtaldar l af þræði) á sokkaprjóna nr 5 í kringum hálsmál. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningstarsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.