Malin skrifaði:
Hej! Den räta maskan innan framkanten( maska 5 från båda håll) stickas den rät även från avigsidan? Alltså som rätstickning, eller stickas den för att vara rät från framsidan ( utom i A2 då den ingår i mönstret?
05.07.2023 - 15:16DROPS Design svaraði:
Hej Malin, den stickas rät från rätsidan och avig från avigsidan :)
07.07.2023 - 10:10
Mucsi Anikó skrifaði:
A minta elején, a tűváltás után L-es méretnél 227 szem van a tűn, az A1.a minta 10, A1.b 18, A1.c 9 szem. A1.b 11-szer ismétlődik. Így a soron 10+(11×18)+9=217 szem van+ 2×4 szem a gomboláspánthoz, az összesen 225 szem. A fennmaradó két szemnek így nincs helye.
01.07.2023 - 21:35
Liv Schindler skrifaði:
In der Anleitung wird nur Muster a1 bis a3 zum Stricken angegeben ...Dann soll man glatt bis zum Ärmelausschnitt stricken...Auf dem Bild sieht man aber Muster bis zum Ärmeöausschnitt ...hiiiilfe ich bin Newbie 😨
22.10.2016 - 11:38DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schindler, die Diagramme werden so in der Höhe gestrickt: 1 x A.1, 1xA.2, 1xA.3, 1xA.2, 1xA.3, 2 Krausrippe (mit Abnahme) und dann bis 49 cm glatt stricken.
24.10.2016 - 09:31Albers skrifaði:
Le schéma du gilet avec ses dimensions dans les différentes tailles n'aurait-il pas été oublié ?
28.01.2016 - 15:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Albers, le schéma des mesures a été ajouté maintenant. Merci. Bon tricot!
29.01.2016 - 09:59
Ylva Gustafsson skrifaði:
Vacker! Fin silhuett!
17.12.2015 - 15:54
Late Spring#latespringcardigan |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-15 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á undan kanti að framan þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan kant að framan, prjónið 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir kanti að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. LEIÐBEININGAR: Prjónið 1 stutta umf yfir 4 l í garðaprjóni í kanti að framan þannig (byrjið frá réttu): Prjónið 4 kantlykkjur að framan slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 4 l, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, prjónið 4 kantlykkjur að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka yfir 4 l. Með þessu koma l í garðaprjóni í kanti að framan að dragast minna saman. ÚTAUKNING (á við um ermi): Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 202-220-240-258-278-298 l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með Bomull-Lin. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umf frá réttu er fækkað um 11-11-13-13-15-17 l jafnt yfir (en ekki yfir kantlykkjur að framan) = 191-209-227-245-263-281 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið nú mynstur þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l sl, A.1a (= 10 l), A.1b (= 18 l) 9-10-11-12-13-14 sinnum á breiddina, A.1c (= 9 l), 1 l sl, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram þannig: Prjónið A.2 (= 8 l) með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – ATH: Síðasta l á undan kantlykkju að framan er prjónuð eins og 1. l í A.2! – Í 3. umf er fækkað um 6-8-10-12-14-16 l jafnt yfir og í 15. umf er fækkað um 12-10-8-6-4-2 l jafnt yfir = 173-191-209-227-245-263 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l sl, A.3a (= 10 l), A.3b (= 18 l) 8-9-10-11-12-13 sinnum á breiddina, A.3c (= 9 l), 1 l sl, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 (= 8 l) með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – ATH: Síðasta l á undan kanti að framan er prjónuð eins og 1. l í A.2! Í 3. umf er fækkað um 12-14-16-10-12-14 l jafnt yfir og í 15. umf er fækkað um 6-4-2-8-6-4 l jafnt yfir = 155-173-191-209-227-245 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l sl, A.3a (= 10 l), A.3b (= 18 l) 7-8-9-10-11-12 sinnum á breiddina, A.3c (= 9 l), 1 l sl, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 2 umf með sléttprjóni innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf yfir hvorn kant að framan – LESIÐ LEIÐBEININGAR og fækkað er um 9-14-20-22-19-15 l jafnt yfir í fyrstu umf (en ekki yfir kantlykkjur að framan) = 146-159-171-187-208-230 l. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 49 cm í öllum stærðum. Prjónið nú þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 32-35-38-42-47-53 l (= hægra framstykki), fellið af næstu 5 l fyrir handveg, sléttprjón yfir næstu 64-71-77-85-96-106 l (= bakstykki), fellið af næstu 5 l fyrir handveg, sléttprjón yfir næstu 32-35-38-42-47-53 l, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= vinstra framstykki). Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 64-71-77-85-96-106 l. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 2 l 1-1-2-4-6-8 sinnum og 1 l 0-3-3-2-3-3 sinnum = 60-61-63-65-66-68 l. Þegar stykkið mælist 63-64-65-66-67-68 cm prjónið fyrstu 19-19-19-20-20-20 l eins og áður, prjónið garðaprjón yfir næstu 22-23-25-25-26-28 l, prjónið þær 19-19-19-20-20-20 l sem eftir eru eins og áður. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir 4 umf garðaprjón yfir miðju 22-23-25-25-26-28 l. Næsta umf er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 22-22-22-23-23-23 l og setjið þær á þráð, fellið af næstu 16-17-19-19-20-22 l fyrir hálsmáli, prjónið 22-22-22-23-23-23 l sem eftir eru. Nú eru 3 l í garðaprjóni við hálsmál. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er fækkað um 1 l innan við 3 l garðaprjón við háls = 21-21-21-22-22-22 l. Þegar stykkið mælist 66-67-68-69-70-71 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 36-39-42-46-51-57 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 kantlykkjum að framan og fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki JAFNFRAMT í lok næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA, þannig: Fækkið l fyrir hálsmáli í annarri hverri umf 13-13-14-14-15-16 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 21-21-21-22-22-22 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 66-67-68-69-70-71 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-34-36-37-39-41 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Bomull-Lin. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 7-7-7-8-7-9 cm, aukið út um1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili 10-11-12-14-15-15 sinnum til viðbótar = 54-58-62-67-71-73 l. Þegar stykkið mælist 42-41-42-40-40-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 6-6-7-7-7-8 sinnum og 1 l 0-1-0-2-3-2 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 49-49-50-50-51-51 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 50-50-51-51-52-52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori og saumið ermar í. SNÚRA: Klippið 3 þræði Bomull-Lin, ca 120 cm langt, þræðið hálfa leið í gegn innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni á vinstra framstykki (ca mitt á milli 4 síðustu umf í garðaprjóni á framstykki), fléttið fléttu ca 35 cm, hnýtið hnút, afgangurinn af snúru verður dúskur. Gerið aðra snúru á sama hátt á hægra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #latespringcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.