Golden Blossom |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle með gatamynstri á berustykki og ¾ langar ermar. Stærð S - XXXL.
DROPS 170-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerkin í hliðum á fram- og bakstykki þannig: Byrjið 6 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 8 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 8 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 4 l undir ermi þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki mitt undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sléttprjón og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (= 3 l fleiri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 28, 35, 41 og 48 cm. STÆRÐ M: 28, 35, 43 og 50 cm. STÆRÐ L: 29, 37, 44 og 52 cm. STÆRÐ XL: 30, 37, 45 og 52 cm. STÆRÐ XXL: 31, 39, 46 og 54 cm. STÆRÐ XXXL: 32, 40, 48 og 56 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 282-309-327-354-408-426 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 7 l eru eftir á prjóni (= 30-33-35-38-44-46 mynstureiningar 9 l), prjónið 2 l sléttprjón og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 252-276-292-316-364-380 l eftir á prjón. Prjónið síðan mynstur eftir A.2 alveg eins – ATH: Í síðustu umf í A.2 er að auki fækkað um 13-8-8-3-5-5 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað í brugðnu mynstureiningunum og ekki lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 209-235-249-275-315-329 l á prjóni. Eftir A.2 er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Setjið 2 prjónamerki í stykkið 54-62-64-72-82-84 l inn frá hvorri hlið = 101-111-121-131-151-161 l á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 4-4-4-4½-5-5 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 189-215-229-255-295-309 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 28-28-29-30-31-32 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ S + L + XXXL: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, 2 l br, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3A yfir næstu 30-40-60 l (= 3-4-6 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 80-100-140 l (= 8-10-14 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki á hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 30-40-60 l, prjónið A.3B (= 7 l), prjónið 3 l sl, 2 l br og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.3A/A.3B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 172-208-280 l eftir á prjóni. STÆRÐ M + XL + XXL: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3A yfir næstu 40-50-60 l (= 4-5-6 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 90-110-130 l (= 9-11-13 mynstureiningar 10 l), prjónið A.3B (= 7 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki á hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.3A yfir næstu 40-50-60 l, prjónið A.3B (= 7 l), prjónið 3 l sl og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.3A/A.3B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 195-231-267 l eftir á prjóni. Prjónið síðan mynstur þannig (1. umf = rétta): STÆRÐ S + L + XXXL: 5 kantlykkjur eins og áður, 2 l br, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 yfir næstu 27-36-54 l (= 3-4-6 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki á hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 72-90-126 l (= 8-10-14 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 27-36-54 l, prjónið A.5 (= 6 l), prjónið 3 l sl, 2 l br og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. STÆRÐ M + XL + XXL: 5 kantlykkjur eins og áður, 3 l sl, prjónið mynstur eftir mynstri A.4 yfir næstu 36-45-54 l (= 4-5-6 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 81-99-117 l (= 9-11-13 mynstureiningar 9 l), prjónið A.5 (= 6 l), 4 l sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), prjónið A.4 yfir næstu 36-45-54 l, prjónið A.5 (= 6 l), prjónið 3 l sl og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af miðju 4-6-6-8-10-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 2-3-3-4-5-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 78-85-94-101-117-124 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 0-1-2-3-4-5 sinnum og síðan 1 l 1-2-4-5-7-8 sinnum = 76-77-78-79-87-88 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 32-33-34-35-35-36 l af fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 l í byrjun næstu umf frá hálsi = 21-21-21-21-25-25 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið laust af. Endurtakið á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 43-49-51-57-65-66 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 42-45-43-46-50-48 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 48-50-52-52-54-56 cm (það á að prjóna 1-2 umf á eftir síðasta hnappagati á kant að framan). Nú eru settar síðustu 12-15-13-16-16-14 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá í stykkinu eru l prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 3 sinnum = 21-21-21-21-25-25 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 43-49-51-57-65-66 l. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 72-72-81-81-90-90 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.1 (= 8-8-9-9-10-10 mynstureiningar 9 l). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 64-64-72-72-80-80 l eftir á prjóni. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.2 alveg eins – ATH: Í síðustu umf í A.2 er fækkað að auki um 0-0-3-1-6-4 l jafnt yfir (fækkið í brugðnu mynstureiningunum = 56-56-60-62-64-66 l á prjóni. Eftir A.2 er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu alls 6-9-9-11-13-15 sinnum. Í stærð S: Í 14. hverri umf, í stærð M: Í 8. hverri umf, í stærð L: Til skiptis í 7. og 8. hverri umf, í stærð XL: Í 6. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umf og í stærð XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf = 68-74-78-84-90-96 l. Þegar stykkið mælist 35-34-33-32-30-29 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), fellið af miðju 4-6-6-8-10-12 l undir ermi og ermin er prjónuð til loka fram og til baka. Haldið áfram í sléttprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 3-3-4-4-4-4 sinnum og 1 l 2-2-4-5-8-10 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 41-41-42-42-42-42 cm. Fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og fellið laust af þær l sem eftir eru. Ermin mælist ca 42-42-43-43-43-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp í kringum hálsmál frá réttu innan við 1 kantlykkju, ca 98 til 112 l (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 3 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá réttu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (48)
Jennifer Douglas wrote:
I would like to make this pattern as a sweater instead of a cardigan. Is there a pattern already published for this or something similar with the patterned top section?
20.05.2019 - 17:47DROPS Design answered:
Dear Mrs Douglas, there is no matching sweater to this cardigan, you can find all our knitted cardigans here - use the filters to sort them. Happy knitting!
21.05.2019 - 09:36Monica Forss wrote:
Jag skulle vilja veta storlekarna i cm. Kan inte hitta info om detta!
03.02.2019 - 19:12DROPS Design answered:
Hei Monica. Nederst på siden finner du en målskisse med alle plaggets mål i alle størrelser. Alle mål er oppgitt i cm (viddemål gjelder fra side til side, ikke rundt). God fornøyelse
08.02.2019 - 13:05Jennifer Douglas wrote:
Please can you tell me the number of stitches remaining once all the decreases have been done for the sleeve cap. The instructions say "loosely cast off the remaining stitches" but does not give a number. I have tried to work this out and based on XL size and gauge of 28 rows to 10cm, I have 32 stitches left. Can you confirm this please. It is rather annoying as throughout the rest of the pattern you give a stitch count, which is really helpful.
24.08.2018 - 15:45DROPS Design answered:
Dear Jennifer, We will take into consideration your feedback in giving the number of remaining stitches for future patterns. For this particular pattern, if your gauge is correct, then, most likely, you have the correct number of remaining stitches. Happy Knitting,
30.08.2018 - 12:49Jennifer Douglas wrote:
Pleae can you explain the inceases in sizes. At the bust the total difference From M to L is 6cm, but from L to XL it is 12 cm. from XL to XXL it is 16cm. As I am a 48 cm bust, the L is a bit small but the XL is much too big. There is a similar jump at the hem. Which size will be best?
26.07.2018 - 19:52DROPS Design answered:
Dear Mrs Douglas, compare these measurements to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size - if you like the bust part to be somewhat fitter, use the smaller size (L) and if you rather get a somewhate looser bust part, use the larger size (XL). Happy knitting!
27.07.2018 - 09:47Karin Borup Aagaard wrote:
Jeg kan ikke forstå der skal bruges så mange masker som der står i opskriften. Strikkefasthed, målskema og antal masker kan jeg ikke få til at passe.hjælp tak.
05.06.2018 - 18:51DROPS Design answered:
Hej Karin, jo det stemmer, det er fordi kanten består af en masse små snoninger som trækker arbejdet sammen. Du ser at når du har strikket de første diagrammer og skal fortsætte i glatstrik, så har du ikke så stort antal masker. God fornøjelse!
06.06.2018 - 15:20Karin Borup Aagaard wrote:
Jeg kan ikke forstå der skal slås så mange masker op. Maskeantal stemmer ikke overens med målene på målskema og strikkefasthed. 20 masker = 10 cm så 354 masker bliver godtnok en stor trøje.
05.06.2018 - 18:49Lydia wrote:
Ich bin nun wirklich (noch) keine sonderlich erfahrene Strickerin und war erst skeptisch, ob ich diese Jacke wohl stricken könnte. Nun ist sie fast fertig - und sieht wundervoll aus! Gestrickt habe ich sie aus Cotton light in der Farbe hell eisblau - ein ganz zartes Blau mit einem leichten Grünstich. VIELEN Dank für die tolle Anleitung!!!
10.07.2017 - 21:02Marije Van Hattum wrote:
Kan ik de mouwen in plaats van met losse naalden ook met een rondbreinaald breien? En zo ja, welke maat en lengte van de rondbreinaald heb ik dan nodig? Ik kan nl. totaal niet overweg met al die naalden. Met vriendelijke groet.
13.06.2016 - 09:47DROPS Design answered:
Hoi Marije. Je kan ook de mouwen breien met een rondbreinaald. Gebruik een korte (40 cm) of brei met de magic loop techniek. Kijk hier:
13.06.2016 - 13:52Marije Van Hattum wrote:
Sorry, maar weer een vraag, en ik wil zo graag door! Ik brei voor maat L. Bij begin achterpand staat 'kant aan begin elke naald aan elke kant af: 2 keer 2 steken en dan 4 keer 1 steek = 78 steken. Dat zijn in totaal 8 steken. Dat heb ik gedaan, en houd 86 steken over. Volgens het patroon hoor ik echter 78 steken over te houden. Hoe kan dit?
26.05.2016 - 10:21DROPS Design answered:
Hoi Marije. Je hebt dus 94 st, dan kant je 2 keer 2 st af aan beide zijkanten = 8 st en vervolgens 4 keer 1 st = 8 st = in totaal 16 st = 78 st over
26.05.2016 - 15:33Cathy Van Beek wrote:
Bij het opmeten van het patroon zou ik de borstmaat van XL te krap zijn (106 cm), maar de maat van XXL is veel te ruim (122 cm). Ik zit er tussenin met 112 cm. Hoe kan ik dat het beste oplossen?
25.05.2016 - 12:44DROPS Design answered:
Hoi Cathy. Ik zou het aanpassen met hulp van de stekenverhouding. Je weet ongeveer hoeveel st je hebt per 10 cm en hoe groot je hem wilt hebben. Je moet dan ook zorgen dat de patronen erbij passen.
26.05.2016 - 16:19