Raffaella Gentile skrifaði:
Non si sente la voce della spiegazione, è sparita
25.11.2020 - 16:34DROPS Design svaraði:
Buonasera Raffaella, se fa riferimento al video, i nostri video non hanno audio, per permettere alle persone di diverse lingue di poterlo seguire, e hanno una spiegazione in tutte le lingue. Buon lavoro!
28.11.2020 - 21:23
Maylin Lutz skrifaði:
Hallo! Habe auch in der 6. Reihe glaube ich einen Fehler entdeckt, es fehlen gleich am Anfang 2 LM zwischen den ersten beiden Noppen. Am Schriftbild sind sie drauf, aber in der Textbeschreibung nicht.
02.11.2019 - 15:35DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Lutz, danke für den Hinweis, deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim häkeln!
05.11.2019 - 09:26
Maylin Lutz skrifaði:
Hallo! Bei der Anleitung zum Halter steht 6 LM anschlagen, zu einem Ring schließen, in jede LM eine FM, = 16 M. Da stimmt irgendetwas nicht, entweder schlage ich 16 LM an oder ich habe nur 6LM pro Reihe. Dem Foto in der Anleitung nach zur Urteilen ist der Halter recht breit, also müsste es wohl 16 LM anschlagen heißen.. Lg
02.11.2019 - 14:45DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Lutz, es sollte 16 LM sein, deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim häkeln!
04.11.2019 - 16:16
Jeane Oliveira Da Silva skrifaði:
Sou do Brazil gostaria de comprar os fios de vcs , mais nao entendo muito a lingua .
04.09.2019 - 14:00
Dépinoy skrifaði:
Je ne comprends pas très bien l'explication de la "housse" et de "l'étui"! Merci de bien vouloir m'éclairer à se sujet! Mylène
20.12.2015 - 20:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dépinoy, les vidéos ci-dessous montrent comment réaliser l'étui et l'accrocher à l'étoile. Bon crochet!
21.12.2015 - 11:19
Nina skrifaði:
Wow. Har verkligen väntat på ett bra mönster till toppstjärna.
17.12.2015 - 11:55
Top That! |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð stjarna á jólatréstopp með gatamynstri úr DROPS Belle. Þema: Jól
DROPS Extra 0-1208 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umf byrjar og endar. A.2 er endurtekið alls 4 sinnum hringinn – ATH: Síðasta umf er útskýrð í mynstri. Fyrsta umf sýnir allan hringinn. HEKLLEIÐBEININGAR-1: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll – ATH: Heklið kl um fyrsta ll-boga/í fyrsta st frá fyrri umf fram að fyrsta st í byrjun næstu umf. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 kl í 1. ll og 1 kl um fyrsta ll-boga sem byrjað er að hekla um í næstu umf. KÚLA: Heklið 1 st um ll-boga/í st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), 4 st um sama ll-boga/í sama st alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 6 l á heklunálinni. LEIÐBEININGAR UM FYLLINGU: Fyllið stjörnuna með vatti áður en heklað er saman. Setjið smá vatt í hverja hlið í festinguna þannig að hún standi eins bein upp og mögulegt er og fyllið með vatti út í hornin. Festingin á að liggja kant í kant með síðustu umf þar sem stjarnan var hekluð saman. Fyllið frekar aðeins of mikið með vatti en of lítið, umfram vatt er hægt að draga út í gegnum götin hvar sem er í lokin eftir að stjarnan hefur verið hekluð saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STJARNA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið fyrst 1 festingu sem snýr inn, síðan 2 stjörnur sem eru alveg eins. Öll stykkin eru hekluð saman í síðustu umf. Fyllið síðan stjörnuna með vatti. FESTING: Heklið 16 LAUSAR ll með heklunál nr 3,5 með Belle og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 ll, síðan 1 fl í hverja ll = 16 fl. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 10 cm. Klippið frá og festið enda. STJARNA: Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með Belle og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (= 1 st + 2 ll), * 3 st um ll-hringinn, 2 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 2 st um ll-hringinn, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf og 1 kl um fyrsta ll-boga = 5 st-hópar og 5 ll-bogar. UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið * 3 st um fyrsta/næsta ll-boga, 2 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 10 st-hópar og 5 ll-bogar. UMFERÐ 3: * Hoppið yfir 1 st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 3 st um fyrsta/næsta ll-boga, 2 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 st í hvorn af næstu 2 st, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 50 st og 5 ll-bogar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 4 st, 3 st um fyrsta/næsta ll-boga, 2 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 4 st, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 70 st og 5 ll-bogar. UMFERÐ 5: * Hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 6 st, 3 st um næsta ll-bog, 2 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 6 st, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 90 st og 5 ll-bogar. UMFERÐ 6: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan – í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 kúla í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 kúla um næsta ll-boga, 4 ll, 1 kúla um sama ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 kúla í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 kúla í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 30 kúlur, 35 ll-bogar og 10 fl. UMFERÐ 7: Heklið * 1 fl um fyrsta/næsta ll-boga, 2 ll, 1 kúla um næsta ll-boga, 3 ll, 1 kúla um næsta ll-boga, 3 ll, 1 kúla um næsta ll-boga, 4 ll, 1 kúla um sama ll-boga, 3 ll, 1 kúla um næsta ll-boga, 3 ll, 1 kúla um næsta ll-boga, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 2 ll *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 30 kúlur, 40 ll-bogar og 10 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra stjörnu á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið saman stjörnurnar 2 með röngu á móti röngu, leggið festinguna á milli þeirra kant í kant – sjá síðustu umf í mynstri A.1/A.2 (og útskýringu á tákni fyrir ör) fyrir staðsetningu – LESIÐ LEIÐBEININGAR UM FYLLINGU, nú er heklað þannig: UMFERÐ 8: Festið með 1 kl í kúluna, 1 ll, heklið síðan * 1 ll, 2 fl um hvern af fyrstu/næstu 3 ll-boga, 1 ll, 3 fl + 1 ll um hvorn af næstu 2 ll-bogum, 3 fl um næsta ll-boga, 1 ll, 3 fl um sama ll-boga, 1 ll, 3 fl + 1 ll um hvorn af næstu 2 ll-bogum *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið umf á 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið. Snúið stykkinu og heklið alveg eins í gagnstæðri hlið við festinguna og hina stjörnuna, þ.e.a.s. heklið þannig: festið með 1 kl í kúluna, 1 ll, 2 ll um hvern og einn af fyrstu/næstu 3 ll-bogum, 1 ll, 1 kl í kúlu. Klippið frá og festið enda fallega í skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1208
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.