Marita Janetzek skrifaði:
Hallo… eine Frage… was sind die Läuse in der Anleitung? Welche Masche? Viele Grüße Mj
19.11.2023 - 07:07DROPS Design svaraði:
Liebe Mj, es sind die Maschen die in A.1 mit cerise gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!
20.11.2023 - 10:33
Lisa skrifaði:
Hej! Jag ser att jag ska sticka enligt diagram A.2A på oket ”tills det återstår 13 m”...vad gör jag av de 13 återstående maskorna? Jag undrar även när jag ska använda diagram A.2B: jag ser inte att det nämns någonstans, har jag missat det? (Jag stickar storlek M) Tacksam för hjälp!
08.06.2021 - 10:58DROPS Design svaraði:
Hej Lisa. Det ser ut som lite text hade försvunnit i den svenska översättningen, detta är nu rättat i mönstret; "Sedan stickas det såhär från rätsidan – LÄS STICKTIPS: 4 kant-m i rätstickning, sticka mönster enl diagram A.2A tills det återstår 13 m på v (välj diagram för rätt storlek), sticka A.2B (= 9 m – välj diagram för rätt storlek) och avsluta med 4 kant-m i rätstickning." Mvh DROPS Design
09.06.2021 - 09:43
Margit skrifaði:
Hei 😊 jeg holder på å strikke, denne, men stusser over at den virker veldig kort i bolen og armene. Har strikket på 7-8cm begge plasser, og skal snart begynne på bærestykket. Er nå usikker på om bærestykket er stort og at den vil bli for lang. Noen med erfaring fra denme oppskriften som kan komme med råd? Jeg er 172 cm lang.
22.10.2019 - 12:09DROPS Design svaraði:
Hei Margit. Om du sjekker målskissen og mål opp mot deg selv, vil du finne ut om den vil passe deg, (modellen på bildet er ca 170 cm høy). For lettere å få tilbakemeldig fra andre som har strikket denne, kan du legge ut samme spørsmål på vår Facebook siden og under DROPS Workshop. God Fornøyelse!
28.10.2019 - 09:17
Yana skrifaði:
Hei! Jeg strikker denne kofte i L str, men antall masker etter at jeg satt opp de to ermene stemmer ikke med det som står i oppskriften. Jeg har prøvd så mange gange ved å relese eller telle opp maskene om og om igjen men dette går ikke videre. Jeg får 217 m til sammen. Vet dere om det kan være noe feil eller ?! På forhåndstakk :-)
05.07.2019 - 12:36DROPS Design svaraði:
Hej. Du ska felle av maskor till ermhull både på bolen och på båda ärmar (6 x 2 på bolen och 6 på var ärm, dvs 24 m totalt). Kan det vara det som du missat? Lycka till!
10.07.2019 - 13:49
Clawur skrifaði:
Hallo! Was bitte bedeutet: eine Laus stricken?
06.01.2018 - 10:13
Dorthe Hald skrifaði:
Hvor finder jeg brystvidden til denne opskrift?
13.01.2017 - 14:58DROPS Design svaraði:
Hej Dorthe. Der er kun maalene som vises nederst i opskriften. Men i og med der ikke er nogen udtagninger fra ribben op til brystet, vil jeg mene at vidden er her er den samme som nederst. Ellers beregn hele omkredsen med antallet af masker og strikkefastheden.
16.01.2017 - 12:45
Sylvia skrifaði:
1A finns under ärmen i diagrammet.
01.01.2016 - 14:46
Helene Krogh skrifaði:
Diagram 1.A magler i Drops Extra 0-1137
01.01.2016 - 14:43DROPS Design svaraði:
Hej Helene. Nej, du finder det ved maalskitsen under aermet til höjre.
04.01.2016 - 14:25
Winter Poppies Cardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes með norrænu mynstri og hringlaga berustykki. Stærð S – XXXL
DROPS Extra 0-1137 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 15, 24, 33, 42 og 51 cm STÆRÐ M: 13, 23, 33, 43 og 53 cm STÆRÐ L: 15, 23, 31, 39, 47 og 55 cm STÆRÐ XL: 12, 21, 30, 39, 48 og 57 cm STÆRÐ XXL: 14, 23, 32, 41, 50 og 59 cm STÆRÐ XXXL: 13, 21, 29, 37, 45, 53 og 61 cm MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 125-133-147-163-177-191 l (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 7 með litnum ljós grár DROPS Andes. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) með 4 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og 1 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 5 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 20-22-24-28-30-32 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 105-111-123-135-147-159 l. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 12-13-11-12-11-12 cm – stillið af að næsta umf sé prjónuð frá réttu, prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1. ATH! Mynstrið byrjar og endar á ”doppu” innan við kantlykkjur í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 32-33-34-35-36-37 cm – stillið af að prjónuð sé 1 umf sléttprjón frá röngu með litnum ljós grár eftir einni umf með ”doppum” – prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6-6-6-8-8-8 l fyrir handveg, prjónið 43-45-51-55-61-67 l (= bakstykki), fellið af 6-6-6-8-8-8 l fyrir handveg, prjónið næstu 25-27-30-32-35-38 l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt þar sem felld er af 1 l í umf = 25-25-27-27-29-29 l. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 9-10-10-11-11-11 sinnum = 43-45-47-49-51-51 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 32-32-31-31-30-30 cm prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 – ATH: Lykkjur með ör í mynstri eiga að passa við miðju l í umf – teljið út hvar umf byrjar. Þegar stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að prjónuð sé 1 umf með litnum ljós grár á eftir 1 umf með “doppum”, fellið af fyrstu 6-6-6-8-8-8 l undir ermi = 37-39-41-41-43-43 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 167-177-193-201-217-229 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með litnum ljós grár og fækkið um 10-10-6-4-10-2 l jafnt yfir (kantlykkjur er prjónaðar í garðaprjóni til loka og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 157-167-187-197-207-227 l í umf. Prjónið 0-2-2-2-0-2 sléttprjónaðar umf með litnum ljós grár. Prjónið síðan frá réttu þannig – LESIÐ LEIÐBEININGAR: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur samkvæmt mynstri A.2A þar til 13 l eru eftir í umf (veljið mynstur fyrir rétta stærð) og endið á 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað eins og útskýrt er í mynstri – ATH: Kantlykkjur eru prjónaðar áfram í garðaprjóni og eru nú prjónaðar með grunnlit í mynstri. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka (endið á umf merktri með ör fyrir rétta stærð) eru 68-72-79-84-88-96 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm upp að öxl. UPPHÆKKUN VIÐ HNAKKA: Til þess að fá betra form er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka. Byrjið frá röngu og prjónið br með litnum ljós grár þar til eftir eru 10-10-12-12-13-14 l á prjóni, snúið við og prjónið slétt þar til 10-10-12-12-13-14 l eru eftir hinum megin. Snúið við og prjónið þar til 20-20-24-24-26-28 l eru eftir á prjóni í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið br yfir allar l. Prjónið 1 umf slétt frá réttu með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 14-18-22-26-26-34 l jafnt yfir (kantlykkjur er prjónaðar í garðaprjóni og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 54-54-58-58-62-62 l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og litinn grágrænn og prjónið 5 umf br (kantlykkjur í garðaprjóni), 1 umf sl, 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br áður en fellt er LAUST af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1137
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.