Karin skrifaði:
Vilken utsökt vackert arbetad kofta i mjuka färger!
28.05.2015 - 07:13
Hilde skrifaði:
Elegant design.....
27.05.2015 - 22:27
Eliane skrifaði:
Lovely design and complete outfit. Nice colorscheme.
27.05.2015 - 19:44
Sonja skrifaði:
Tijdloos erg mooi
27.05.2015 - 18:53
Monica Modell skrifaði:
Denne var utrolig flott i fasong og fine farger
27.05.2015 - 18:46
Nathalie skrifaði:
Très joli, mélange des points ajourés et le jacquard a un très beau rendu grille au plus vite !!
27.05.2015 - 17:12
Corneillie Christine skrifaði:
Een heel mooie trui! Ook een mooie wolsoort om mee te breien lima. Ik zou de trui Winterplezier noemen
27.05.2015 - 16:49
Winter Melody Cardigan#wintermelodycardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með gatamynstri, norrænu mynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Fækkað er um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar brugðið saman, 2 l br, 2 l br saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 13, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm. STÆRÐ M: 13, 20, 27, 34, 41, 49 og 57 cm. STÆRÐ L: 13, 20, 27, 35, 43, 51 og 59 cm. STÆRÐ XL: 13, 21, 29, 37, 45, 53 og 61 cm. STÆRÐ XXL: 13, 20, 27, 34, 41, 48, 55 og 63 cm. STÆRÐ XXXL: 13, 20, 27, 34, 41, 49, 57 og 65 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 221-235-263-277-305-347 l með litnum ljós grár á hringprjóna nr 4 (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið, kantur að framan er alltaf prjónaðar með litnum ljós grár og í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan). Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan frá réttu – þannig: 5 l garðaprjón, A.1 yfir næstu 210-224-252-266-294-336 l, endið á fyrstu l í A.1 og 5 l garðaprjón. Prjónið A.1 1 sinni á hæðina, í síðustu umf í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 191-201-221-241-271-301 l. Prjónið síðan þannig: 5 l garðaprjón, A.2 yfir næstu 180-190-210-230-260-290 l, endið með fyrstu l í A.2 og 5 l garðaprjón. Prjónið A.2 1 sinni á hæðina, í síðustu umf er fækkað um 10-8-4-0-6-12 l jafnt yfir = 181-193-217-241-265-289 l. Prjónið síðan þannig: 5 l garðaprjón, A.3 yfir næstu 168-180-204-228-252-276 l, endið á 3 fyrstu l í A.3 og 5 l garðaprjón. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 48-51-57-63-69-75 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 85-91-103-115-127-139 l). Haldið áfram með A.3, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l færri), endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 4 sinnum til viðbótar = 161-173-197-221-245-269 l. (ATH! Vegna úrtöku kemur A.3 ekki til með að passa í hliðinni, en sjáið til þess að götin passi miðað við mynstur). Þegar stykkið mælist 26 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-3-4-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3 = 181-193-217-241-265-289 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið síðan af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið síðan af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 77-83-95-107-119-131 l á bakstykki og 44-47-53-59-65-71 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-48-48-48-60-60 l á sokkaprjóna með litnum ljós grár. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 8 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Haldið áfram með A.3. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Aukið út með 4-3-2½-2-3-2½ cm millibili 9-12-14-16-12-14 sinnum til viðbótar = 68-74-78-82-86-90 l. Þegar stykkið mælist ca 49-49-48-48-47-47 cm (stillið af að endað sé á sama stað í A.3 eins og á fram- og bakstykki) fellið af miðju 8 l undir ermi fyrir handveg = 60-66-70-74-78-82 l eftir í umf. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 285-309-341-373-405-437 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með A.3 eins og áður, í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 22-22-22-23-24-25 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 0-3-5-6-7-8 sinnum – JAFNFRAMT þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir laskalínu 2-2-3-3-4-4 sinnum (nú eru 269-293-317-349-373-405 l á prjóni) prjónið næstu umf frá réttu þannig: (ATH! Ör í mynstri sýnir miðju á A.4. Teljið út frá miðju þegar byrjað er að prjóna mynstur á framstykki/ermar og bakstykki þannig að mynstrið verði eins í hvorri hlið á hvoru stykki), 5 l garðaprjón, A.4 yfir næstu 34-37-42-48-53-59 l, fellið af fyrir laskalínu eins og áður – l í laskalínu eru alltaf prjónaðar með litnum ljós grár, A.4 yfir næstu 50-56-58-62-64-68 l, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 67-73-83-95-105-117 l, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 50-56-58-62-64-68 l, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 34-37-42-48-53-59 l, endið á 5 l garðaprjón. Haldið áfram með A.4 og laskalínu. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós grár og laskalínu eins og áður. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu eru 101-101-117-133-149-165 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf yfir allar l, í fyrstu umf er fækkað um 10-10-16-28-40-52 l jafnt yfir = 91-91-101-105-109-113 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. --------------------------------------------------------- Vettlingar og húfa: Sjá DROPS 165-19. --------------------------------------------------------- |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintermelodycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.