Carmen skrifaði:
Hallo. Ich habe dieses Kleid in einem flieder-grau gestrickt. Es sieht wunderschön aus und ist mir gut gelungen. Die Anleitung ist sehr ausführlich und deshalb gut umzusetzen. Allerdings nicht für Anfänger geeignet.
27.01.2025 - 12:41
Dominika skrifaði:
There is the error in A5 chart(there is 26 stitches not 28), so I don't have idea how to make the rib on the sleeves(size M). Could it be explained?
02.12.2024 - 03:30DROPS Design svaraði:
Hi Dominika, The A.5 chart does have 28 stitches, so it will fit around the sleeve. Happy knitting!
02.12.2024 - 07:09
Mona Jensen skrifaði:
Jeg strikker 165-8. Læsers diagrammerne nedefra og op og fra højre mod venstre?
29.10.2024 - 07:27DROPS Design svaraði:
Hej Mona, ja det stemmer, kjolen strikkes oppefra og ned! Diagrammerne strikkes fra nederste højre hjørne mod venstre og så opad :)
29.10.2024 - 14:23
Mona Jensen skrifaði:
Jeg strikker kjole 165-8 . De 88 masker jeg starter med dækker begyndelsen af maskerne i diagrammet og der skal 12 pindes udtagninger til for at der er nok til snoninger men det ser ud som om snoningerne starter ved 6 pind? Jeg strikker xxl. Ved ærmerne står der at det er a2a og 10 masker glatstrik på hver side. Men er maskerne op til ikke vrang?
29.10.2024 - 07:15DROPS Design svaraði:
Hej Mona, du starter med de 14 masker som er markeret i A.3A (og venter med snoningen til du kommer til den og har taget nok masker ud) :)
29.10.2024 - 14:22
Anne skrifaði:
Hei. Miten hihan kuvio A.2A ja B toistuu kerroksen 28 jälkeen. Tarkoitan sivuosia?
10.10.2024 - 18:30DROPS Design svaraði:
Hei, toista piirroksen mallikerta 1.kerrokselta alkaen.
11.10.2024 - 18:19
DELATTRE Marie-Pierre skrifaði:
Message précédent : excusez moi. J'ai fini par comprendre. Il fallait prendre les nombres en haut. Merci
18.09.2024 - 14:20
DELATTRE Marie-Pierre skrifaði:
Bonjour. Je m'apprête à faire ce modèle que j'adore mais en étudiant les explications, je ne comprends pas au niveau fos/devant. Il est écrit de faire a3a et a32 sur 60 m mais ça fait 14+12 x 2 = 52 ??? Je suis un peu perdue. Merci
18.09.2024 - 14:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delattre, les augmentations des raglans vont se tricote en suivant ces diagrammes, autrement dit, vous tricotez au début A.3a sur 14 mailles et A.3b sur 12 mailles mais quand les augmentations sont faites, vous avez 31 m dans A.3a et 29 m dans A.3b (cf encadré ligne au-dessus des diagrammes). Bon tricot!
18.09.2024 - 15:42
Pia Bay skrifaði:
Har jeg forstået opskriften rigtigt, ? Der øges kun med raglan udtag på bærestykket, dog forskelligt på ryg/forstykke og på ærmer. Siden kommer der omslag udtag på ryg og forstykke.
31.05.2024 - 08:16DROPS Design svaraði:
Hei Pia. A.1 er raglanlinjene, og A.1 strikkes 4 steder og det økes på begge sider av A.1 = 8 økte masker til raglan de gangene det økes både bol og ermene samtidig. Og ja, når det kun strikkes ryg-og forstk økes det der, læs UDTAGNINGSTIPS. mvh DROPS Design
03.06.2024 - 10:43
Ingrid Kjeld skrifaði:
I har ikke svaret på mit spørgsmål. Jeg er med på udtagningerne til raglan, men der er også beskrevet yderligere udtagninger på bærestykket: ryg og forstykke først på hver omgang og siden på hveranden . Og det samme på ærmerne. Det er disse udtagninger, jeg spørger til. Eller er raglanudtagningerne de eneste udtagninger på bærestykket?
05.02.2024 - 14:12DROPS Design svaraði:
Hei Ingrid. Du øker også helt i begynnelsen av bærestykket, 18 masker økes jevnt fordelt i alle str etter 4 omg retstrik. Ellers så er det kun raglan økning på bærestykket. mvh DROPS Design
12.02.2024 - 14:11
Ingrid Kjeld skrifaði:
Spørgsmål til bærestykket: Som jeg læser det, skal der både tages ud til raglan og yderligere til ryg, forstykke og ærme. Er det korrekt? Det fremgår ikke hvor og hvordan, der skal tages ud. På ryg og forstykke er det så lige før og efter A1? Altså 4 masker pr. omgang. Og hvordan tager jeg ud på ærmet A.2B?
30.01.2024 - 13:25DROPS Design svaraði:
Hei Ingrid. De 4 maskene i A.1 er raglanlinjene, 2 foran og 2 bak. Under BÆRESTK og LÆS HELE NÆSTE AFSNIT FØR DET STRIKKES! står det at man skal øke både før og etter A.1. Man strikker A.1 4 steder på 1 omgang = 8 økte masker til raglan på økeomgangene. Men husk: Der tages ud forskelligt på ryg & forstk og ærmer. mvh DROPS Design
05.02.2024 - 13:59
Regal Splendour#regalsplendourdress |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Nepal, prjónaður ofan frá og niður, með laskalínu, köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-8 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynstur fyrir rétta stærð (á við um A.3 + A.4). LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu á undan/á eftir A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út til hægri á UNDAN A.1: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Aukið út til vinstri á EFTIR A.1: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum við 4 prjónamerki. Fækkið lykkjum á undan A.3A þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir A.3B þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið l 2 slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út við 4 prjónamerkin. Aukið út þannig: Sláið uppá prjóninn á undan A.3A og á eftir A.3B. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og er prjónað ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 62-62-62-70-70-70 l á hringprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt þar sem auknar eru út 18 l jafnt yfir í öllum stærðum = 80-80-80-88-88-88 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið næstu umf þannig: Aukið út um 1 l fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 4 l í laskalínu), aukið út um 1 l fyrir laskalínu, prjónið 6 l merktar með ör í mynstri A.2A (= hægri ermi), aukið út um 1 l, A.1 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 14-14-14-16-16-16 l merktar í mynstri A.3A og prjónið 12-12-12-14-14-14 l merktar í mynstri A.3B (= framstykki), aukið út um 1 l, A.1 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 6 l merktar í mynstri A.2B (= vinstri ermi), aukið út um 1 l, A.2 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 14-14-14-16-16-16 l merktar í mynstri A.3A og prjónið 12-12-12-14-14-14 l merktar í mynstri A.3B (= bakstykki) = 88-88-88-96-96-96 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur svona JAFNFRAMT sem útaukning fyrir LASKALÍNA heldur áfram hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (þ.e.a.s. þar til nægilega margar l eru fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru næstu útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni): FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út hverri umf 1-5-7-9-15-25 sinnum og síðan í annarri hverri umf alls 15-14-14-14-12-8 sinnum. ERMI: Aukið út í hverri umf 3-5-3-3-1-3 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf alls 14-14-16-17-19-19 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningu eru 220-240-248-268-284-316 l í umf. Nú eru settar 46-50-50-52-52-56 l yfir hvorri ermi settar á þráð (þ.e.a.s. l yfir A.2A/A.2B, 7-9-9-10-10-12 l sléttprjón hvoru megin við þær og 2 l frá A.1 í hvorri hlið – ATH: Þetta er gert án þess að prjóna l) = 128-140-148-164-180-204 l eftir á prjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= hlið), prjónið 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, haldið áfram með A.3A og A.3B yfir næstu 60-60-60-74-74-74 l eins og áður, 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= hlið), prjónið 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, A.3A og A.3B yfir næstu 60-60-60-74-74-74 l eins og áður og 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón = 140-152-164-180-200-224 l í umf. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 60-60-60-74-74-74 l fram og bakstykki (þ.e.a.s. að utanverðu við A.3A/A.3B framan og aftan = 4 prjónamerki) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.3A/A.3B miðja að framan og miðja að aftan. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af að utanverðu við A.3A/A.3B (þ.e.a.s. inn að mynstureiningu með sléttprjóni) – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 5-5-6-6-7-7 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 128-140-152-168-188-212 l. Þegar stykkið mælist 19-20-21-24-25-26 cm frá skiptingu við ermar (stykkið mælist ca 38-40-42-46-48-50 cm frá öxl), aukið út að utanverðu við A.3A/A.3B (þ.e.a.s. inn að mynstureiningu með sléttprjóni) – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-4-3-3 cm millibili alls 8-8-8-8-10-10 sinnum = 160-172-184-200-228-252 l. Þegar stykkið mælist ca 51-52-53-52-53-54 cm frá skiptingu við ermar – stillið af eftir einni heilli gataeiningu í A.3A/A.3B, prjónið næstu umf þannig: Aukið út 4-7-4-7-6-6 l yfir næstu 10-13-16-13-20-26 l (sláið uppá prjóninn eftir ca 2.-2.-4.-2.-3.-4. hverja l), prjónið A.4A yfir næstu 31-31-31-38-38-38 l (veljið mynstur fyrir rétta stærð), prjónið A.4B yfir næstu 29-29-29-36-36-36 l (veljið mynstur fyrir rétta stærð), aukið út 8-14-8-14-12-12 l jafnt yfir næstu 20-26-32-26-40-52 l (þ.e.a.s. sláið uppá prjóninn eftir ca 2.-2.-4.-2.-3.-4. hverja l), prjónið A.4A yfir næstu 31-31-31-38-38-38 l, A.4B yfir næstu 29-29-29-36-36-36 l og aukið út 4-7-4-7-6-6 l jafnt yfir síðustu 10-13-16-13-20-26 l = 196-220-220-248-272-296 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið næstu umf þannig (uppslátturinn er prjónaður snúinn inn í stroff svo að ekki myndist gat): 2 l sl, * 2 l br, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum, prjónið stroff yfir næstu 70-70-70-84-84-84 l eins og sýnt er í mynstri A.4A/A.4B, * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-6-6-6-8-10 sinnum, 4 l sl, prjónið stroff yfir næstu 70-70-70-84-84-84 l eins og sýnt er í mynstri A.4A/A.4B, * 4 l sl 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum og endið á 2 l sl. Haldið svona áfram með stroffið, til þess að forðast að stroffið dragist mikið saman er prjónuð 1 umf slétt yfir allar l á eftir 3. Hverri umf með stroffiprjóni. Þegar stroffið mælist 28-28-28-30-30-30 cm (allur kjólinn mælist ca 98-100-102-104-106-108 cm frá öxl), prjónið 1 umf slétt yfir allar l áður en fellt er LAUST af með sl. HÆGRI ERMI: Prjónið í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá hægri hlið (séða frá réttu) á stutta hringprjóna nr 5,5. Prjónið 9-11-11-12-12-14 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2A (= 28 l), prjónið 9-11-11-12-12-14 l sléttprjón og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l í lok umf = 52-56-58-60-62-66 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar l (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og mynstri. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-2-3 cm fellið af 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 8-5-8-6-5-6 cm millibili alls 4-6-4-5-6-5 sinnum = 44-44-50-50-50-56 l. Þegar ermin mælist 31-31-31-28-28-28 cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og næsta umf er prjónuð þannig: STÆRÐ S + M + XXXL: Prjónið 2 l sl, * 2 l br, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2 sinnum, prjónið A.5 yfir næstu 28 l, * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2 sinnum og endið á 2 l sl. STÆRÐ L + XL + XXL: Prjónið 1 l br, 4 l sl, 2 l br, 4 l sl, prjónið A.5 yfir næstu 28 l, 4 l sl, 2 l br, 4 l sl og 1 l br. Haldið svona áfram með stroff í 18-18-18-20-20-20 cm (öll ermin mælist ca 49-49-49-48-48-48 cm – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), prjónið 1 umf slétt yfir allar l áður en fellt er LAUST af með sl. VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en prjónið mynstur eftir A.2B (í stað A.2A). FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #regalsplendourdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.