DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 164-18
DROPS Design: Mynstur nr cm-036
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
450-500-550-600-700-750 gr litur nr 21, dökk bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
TEYGJA: Ca 60-110 cm

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.8.

ÚRTAKA-1:
Þegar lykkjum er fækkað í garðaprjóni hringinn, er lykkjum alltaf fækkað í sléttri umferð!
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

PILS:
Fitjið upp 336-357-399-420-462-504 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 (= 21 l) 16-17-19-20-22-24 sinnum á breiddina. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina eru 272-289-323-340-374-408 l í umf. Endurtakið A.X 4 sinnum til viðbótar á hæðina í öllum stærðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 2 umf sléttprjón, í síðustu umf er lykkjum fækkað þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, prjónið sléttprjón yfir næstu 15 l *, endurtakið frá *-* 15-16-18-19-21-23 sinnum til viðbótar = 256-272-304-320-352-384 l. Prjónið 7 l sléttprjón, ATH: NÚ BYRJAR UMF HÉR! Haldið áfram með A.2 (= 16 l) 16-17-19-20-22-24 sinnum á breiddina. Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 3-1-3-1-3-5 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 253-271-301-319-349-379 l. Prjónið nú mynstur þannig: A.3 (= 3 l), A.4 (= 6 l) þar til 4 l eru eftir í umf, A.5 (= 4 l). Þegar A.3-A.5 hefur verið prjónað til loka eru prjónaðar 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í öllum stærðum = 252-270-300-318-348-378 l. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan A.6 (= 6 l) yfir allar l í umf. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka 7-8-10-11-13-14 sinnum á hæðina mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm. Prjónið nú 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 23-17-11-5-5-5 l jafnt yfir = 229-253-289-313-343-373 l. Prjónið síðan mynstur þannig: A.3 (= 3 l), A.4 þar til 4 l eru eftir, A.5 (= 4 l). Þegar A.3-A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með 8 umf garðaprjón. Prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 228-252-288-312-348-372 l. Prjónið 2 umf sléttprjón. Haldið síðan áfram með A.7 (= 12) yfir allr l í umf. Endurtakið A.7 2 sinnum til viðbótar á hæðina, prjónið síðan A.8 yfir hverja mynstureiningu með A.7. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 190-210-240-260-290-310 l eftir í umf. Haldi áfram í sléttprjóni. Í næstu umf er fækkað um 3-0-3-2-3-2 l jafnt yfir = 187-210-237-258-287-308 l.

Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 16-18-21-21-26-26 l, setjið eitt prjónamerki, síðan eru 5 prjónamerki sett í með 31-35-39-43-47-51 l millibili. Nú eru 16-17-21-22-26-27 l eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf er fækkað um 1 l á undan hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-2! Endurtakið úrtöku til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki í 7. hverri umf 5-5-3-3-1-1 sinnum til viðbótar og í 5. hverri umf 0-1-4-4-9-9 sinnum = 151-168-189-210-221-242 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm prjónið nú eina umf br (= strengur), haldið síðan áfram með sléttprjón í 2 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Brjótið efsta kantinn í streng að röngu og saumið fallega niður. Skiljið eftir smá op til þess að þræða inn teygju.

Mynstur

symbols = sl
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = br
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Kota wrote:

Trying to read through pattern before starting. I am not understanding what you are asking maker to do with a3, a4 &a5 chart. Is the pattern saying repeat a3 &a4 until the last 4 stitches of the row then follow a5? If so following the diagrams it looks like the pattern is broken. Or do you mean for the blocks that line up with a2 follow a3,4,5 so that the slk, k2tog,paso triangle aligns up with the matching stitch combo triangle in a4 chart top matches top a2 triangle combo

13.04.2023 - 23:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kota, when working these diagrams, start the round with the 3 stitches in A.3, then repeat the 6 sts in A.4 until 5 stitches remain on the round and finish with the 4 sts in A.5. On 5th round, work the last stitch in A.3/A.4 tog with the next 2 sts in first/next A.4 then A.5 at the end of the round (the first YO is now the last st in A.3/A.4 and the 2nd YO in every A.4 is the first st next A.4/A.5). Happy knitting!

14.04.2023 - 07:58

country flag Mamta wrote:

Namaste DROPS, Row number 5 of the design number A.2 is wrong. Kindly look through it. Thank you!

21.12.2020 - 20:38

country flag Charmaine wrote:

Hi, does the skirt require both 60 and 80 cm circular needles? Or either? Thank you

20.03.2020 - 20:33

DROPS Design answered:

Dear Charmaine, it would be easier and more comfortable to knit the skirt on the given needles, as at the waist part and teh smaller needles, you will have to pull the line between the needles less, and later the larger number of stitches will fit more comfortably on the longerones. You can knit the skirt onone needles too, in this case I suggest to get the longer ones as it is less hassle to have to pull the needles, than trying to fit a large number of stitches on a short needle. Happy Knitting!

22.03.2020 - 11:36

country flag Marianne N wrote:

Enligt beskrivningen stickas 2 v slätstickning efter A1 men på bilden ser det ut som om det är betydligt fler (åtm. fyra varv) innan A2 börjar. Hur kommer det sig?

04.01.2020 - 17:09

country flag Glenis McLaren wrote:

I am having trouble with the 5th row on the pattern of A3 A4 and A5 I understand that we do A3 and 4 all the way around and then A5 with the 4 remaining sts. But when you get to row 5 of that it is not working out to be 9 sts. I saw that someone else posted about it but its in German and I don't understand the answer. Please advise.

07.06.2018 - 21:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs McLaren, on 5th row in A.3-A.5 work the last st in A.3 together with the first 2 sts in A.4 ie the first YO is now the last st in A.3 and work the last st in A.4 together with the first 2 sts next A.4/A.5 - the first YO is now the last st A.4. Make sure there are always the correct number of sts in each repeat: 3 sts in A.3, 6 sts in each A.4 and 4 sts in A.5. Happy knitting!

08.06.2018 - 08:20

country flag Rebecca wrote:

HI, I love this skirt but I see that the yarn is a cotton/wool blend, is there a reason for this as to drape or durability ? Will a wool alpaca work as well or will it effect the drape of the skirt? Also I have noticed a few comments about size is this pattern running big or true to size . Thank you, Rebecca

12.12.2017 - 05:04

DROPS Design answered:

Dear Rebecca, yarn is designer choice, feel free to use any alternative yarn, but remember yarn will different texture will have different look (read more here. You will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all measures for each size taken flat from side to side, compare these to a similar garment you have to find out the matching size, and remember to check and keep correct tension to get these finished measurements. Happy knitting!

12.12.2017 - 08:13

country flag Rebecca wrote:

Liebes Drops- Team. Bitte helft mir Ich liebe das Bild von diesem Rock, doch auch ich komme bei A3- A5 nicht weiter. Ich stricke in Größe M und habe daher grade 271 M auf der Nadel. Bei dieser Maschenanzahl können aber am Ende nicht 4 M für A5 übrig bleiben. Und warum A5 nur am Ende der Reihe? So kann das Muster doch gar nicht entstehen. Wäre sehr dankbar für eine Antwort. Liebe Grüße!! Rebecca

28.04.2017 - 16:03

DROPS Design answered:

Liebe Rebecca, so sollen Sie die 271 M stricken: A.3 über die ersten 3 M), die 6 Maschen in A.4 insgesamt 44 Mal wiederholen, dann 4 M sind in der Rd noch übrig mit A.5 (= 4 M) beenden. Viel Spaß beim stricken!

02.05.2017 - 08:52

country flag Louise wrote:

I am 5'7" tall and will need to knit the skirt longer without making it wider. Where should I add the rows, of which pattern, and how many? For size XL, how many more 50g balls will be needed? Thank you for answering my question online, as there is no store available to me.

02.02.2017 - 06:53

DROPS Design answered:

Dear Louise, we are unfortunately not able to adjust each pattern to each individual request, but feel free to contact your DROPS store in/to US (see list and telephone/email here for any individual assistance. Happy crocheting!

02.02.2017 - 10:13

country flag Wieke Hoogland wrote:

Ik heb het idee dat teltekening A3,A4,A5 niet klopt. Moet erbij zeggen dat ik niet rondbrei maar met twee rondbreinaalden, dan krijg je één naad. Volgens beschrijving moet je eerst A3 en A4 breien en op het einde A5. Maar ik denk dat je gewoon A3,A4,A5 achter elkaar moet breien. De laatste patroonpen klopt ook niet. De twee tezamen aan het begin van het patroon en de overhaling aan het einde moeten samengebreid worden. (één afhalen, twee tezamen, afgehaalde steek over de twee tezamen)

28.11.2016 - 15:40

DROPS Design answered:

Hoi Wieke. Ja, dat is ook wat er staat; Brei nu in patroon als volgt: A.3 (= 3 st), A.4 (= 6 st) tot er 4 st over zijn op de nld, A.5 (= 4 st). Let op dat in nld 5 zal de overgang tussen A.3/A.4 aan begin en van A.4/A.5 aan het eind overlappen. Ik zie ook niet dat de laatste nld verkeerd zou moeten zijn. Je hebt 2 r samen aan het begin en je moet eindigen met 1 r afh, 1 r overhalen.

28.11.2016 - 16:52

Sophia wrote:

I start skirt again with 63st less.do you think it will be ok or now it will be small?

29.12.2015 - 10:36

DROPS Design answered:

Dear Sophia, for any individual assistance, you are welcome to contact the store where you bought your yarn. They will help you with tips & advices. Happy knitting!

02.01.2016 - 15:13