Linda Fleig skrifaði:
Where can I find the pattern for the cardigan/jacket displayed with hat and scarf
20.03.2019 - 17:25DROPS Design svaraði:
Dear Linda, you can find the pattern for the cardigan here Happy Crafting!
20.03.2019 - 18:15
Anne skrifaði:
Je débute au crochet et j'aimerais savoir s'il est possible de réaliser ce modèle (écharpe Loch Ness) avec la laine Drops MELODY que je trouve très jolie.
07.01.2019 - 10:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, ce modèle se crochète avec une laine du groupe E ou 2 fils d'une laine du groupe C - or, DROPS Melody appartient au groupe D de nos fils, et n'apparaît pas ici comme une alternative - Vous trouverez ici quelques informations complémentaires sur les alternatives et les groupes de fils. Bon crochet!
07.01.2019 - 12:18
Bossone skrifaði:
Bonjour, quel crochet utiliser pour une laine de 100 gr et crochet 4, 5 avec en échantillon 23 rangs et 17 mailles, et combien de mailles monter svp pour donner le même rendu que la photo pour le bonnet et l\'écharpe ? pour le modèle Loch Ness Set Modèle n° co-029. Merci
10.11.2018 - 11:46
Susanne Skøtt skrifaði:
Hej, jeg vil gerne hækle denne hue og tørklæde, men er itvivl om hvilket garn jeg skal vælge da det ikke må fnugge på min uldfrakke men gerne må være dejlig blød og varm :):)
06.01.2018 - 20:57DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Det vil alltid være litt overskuddsfibre på ullkvaliteter, men disse forsvinner etter bruk. F.eks er Air veldig mykt og deilig, men kan ha mer overskuddsfibre enn f.eks Nepal. mvh Drops design
10.01.2018 - 11:56
Natalia skrifaði:
Ya, ya me di cuenta de que es la talla...jeje
30.10.2015 - 16:23
Natalia skrifaði:
Qué quiere decir con" 1 p.b. en cada uno de los sig 1-3-5 p.de cad", que se hace un punto bajo en la primera, tercera y quinta cadeneta? En la primera ya habíamos hecho un punto, no?
27.10.2015 - 01:43
ALART Fabienne skrifaði:
Bonjour, existe-t-il un tuto de la veste sur la photo ? Cordialement
19.07.2015 - 20:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Alart, cliquez ici pour les explications de la veste. Bon crochet!
27.07.2015 - 15:43
Loch Ness Set#lochnesssetscarf |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Heklaðri húfu og hálsklút með tvíbrugðnum stuðlum og fastalykkjum úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air.
DROPS 166-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umf með fl er hekluð 1 ll. ll kemur ekki í stað fl. Í byrjun hverrar umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 fl saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni = 1 fl færri. MYNSTUR: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Heklið 1 fl í fremri lykkjubogann á hverjum tbst frá fyrri umf. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í aftari lykkjubogann á hverri fl frá fyrri umf. Endurtakið umf 1 og 2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HÚFA: Heklið 51-53-55 ll með heklunál nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air og tengið saman í hring með 1 kl. Heklið 1 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININAR, heklið síðan 1 fl í fyrstu ll á ll-hring, 1 fl í hverja af næstu 1-3-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar = 44-46-48 fl í umf. Heklið síðan 1 fl í aftari lykkjubogann á hverri fl frá fyrri umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf, heklið 8-7-8 fl, setjið eitt prjónamerki, síðan eru sett 4 prjónamerki með 7-8-8 fl á milli, það eru 8-7-8 fl eftir í umf. Í næstu umf er fækkað um 1 fl á eftir hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 6 fl færri) = 38-40-42 fl. Endurtakið úrtöku til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf 3 sinnum til viðbótar = 20-22-24 fl. Í næstu umf eru heklaðar 2 og 2 fl saman alla umf hringinn = 10-11-12 fl. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25-26-27 cm á hæðina. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með Cloud ca 11 cm að þvermáli. Saumið niður á toppinn á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Heklið 25 lausar ll með heklunál nr 9 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 ll til að snúa við með – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 fl í hverja af 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar = 22 fl. Snúið við og heklið frá umf 2 í MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 180 cm – stillið af að síðasta umf er umf 1 í mynstri, klippið frá og festið enda. KÖGUR: Klippið 3 þræði ca 44 cm. Leggið þá saman tvöfalda og dragið bogann í gegnum síðustu l í enda á hálsklútnum. Dragið síðan þræðina inn í bogann og herðið að. Setjið eitt kögur í aðra hverja l og meðfram enda á hálsklút. Endurakið á hinum endanum. Klippið kögrið til þannig að það verði ca 17 cm langt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lochnesssetscarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.