Paola Tarantino skrifaði:
Modello molto bello il colore verde e' molto particolare
06.06.2015 - 19:49
Kody Doisy skrifaði:
Bonjour meme commentaire j'adore ce modele mais j'ai peur de me lancer difficultee a comprendre les explications . Dommage
03.06.2015 - 18:50
Christine Barholt skrifaði:
Sød cardigan. Elsker cardigans
02.06.2015 - 20:27
Schwarzböck Edith skrifaði:
Anschmiegsame Weste für den kalten Sommer, toll.
02.06.2015 - 18:14
Viviane skrifaði:
Très jolie couleur, forme classique, le chic du modèle vient des manches ajourées.
31.05.2015 - 17:52
Geneviève skrifaði:
La couleur et la simplicité de ce modèle en font tout le charme et le chic
29.05.2015 - 17:37
Isabel skrifaði:
Diese Jacke gefällt mir gut. Sie ist schlicht und dadurch für mich wunderschön. Zudem ist die Farbe grün sowieso meine Lieblingsfarbe.
29.05.2015 - 10:30
Christien skrifaði:
Mijn favoriete model !
28.05.2015 - 19:32
Päivi skrifaði:
Practical material and pattern - looks fine
28.05.2015 - 19:05
Jacques skrifaði:
Tres classe et chic,belle couleur automnale
28.05.2015 - 11:22
Green Forest Cardigan#greenforestcardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 11, 17, 23, 30, 37, 44 og 51 cm. STÆRÐ M: 11, 18, 25, 32, 39, 46 og 53 cm. STÆRÐ L: 11, 18, 25, 32, 39, 47 og 55 cm. STÆRÐ XL: 11, 18, 26, 34, 42, 50 og 57 cm. STÆRÐ XXL: 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm. STÆRÐ XXXL: 11, 20, 29, 37, 45, 53 og 61 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 203-219-251-267-299-331 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merion eða Belle. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuðu þannig – frá réttu: 5 l garðaprjón, A.1 yfir næstu 192-208-240-256-288-320 l, 1 l sléttprjón, 5 l garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 179-193-221-235-263-291 l á prjóni. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 46-50-58-62-70-77 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 87-93-105-111-123-137 l). Haldið áfram í sléttprjóni og 5 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l færri), endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 159-173-201-215-243-271 l. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægra framstykki – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 26 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu með 4-4½-4½-5-5-5½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 175-189-217-231-259-287 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 77-83-95-101-113-127 l á bakstykki og 41-45-53-57-65-72 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 45-47-49-51-53-55 l á sokkaprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan þannig: 15-16-17-18-19-20 l sl, A.2 (= 15 l), 15-16-17-18-19-20 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 3½-3-3-2½-2-2 cm millibili 11-12-13-14-16-17 sinnum til viðbótar = 69-73-77-81-87-91 l. Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 51-50-50-49-49-48 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri laskalínu og breiðari hálsmáls) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerki = 61-65-69-73-79-83 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 281-303-339-361-401-437 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir l á fram- og bakstykki og mynstri og sléttprjón eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNU- sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 20-22-23-23-23-24 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umf 0-0-1-3-6-7 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu eru 113-119-139-145-161-181 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 12-14-30-31-43-59 l jafnt yfir = 101-105-109-114-118-122 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenforestcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.