DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Magic Autumn

Prjónuð peysa úr DROPS Delight í garðaprjóni með sjalkraga, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-15
DROPS Design: Mynstur nr de-144
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
450-500-500-550-600-700 gr litur nr 18, haustskógur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf garðaprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA BOGALAGA (hvít) NR 522: 5 stk í allar stærðir.

ATH! Áríðandi er að prjónfestan haldi sér á flíkum sem eru prjónaðar frá hlið að hlið.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Garðaprjón er mjög teygjalegt. Flíkin kemur þar af leiðandi til með að teygjast töluvert (bæði á breiddina og á lengdina) miðað við mál í mynsturteikningu.

RENDUR:
Svo að flíkin verði mjög röndótt er prjónað til skiptis með 2 dokkum. * Prjónið 2 umf með fyrri dokkunni, prjónið 2 umf með seinni dokkunni *, endurtakið frá *-*. Skiptið um þráð í byrjun á umf frá röngu.
Þræðirnir fylgja með uppúr (í neðri brún á stykkinu/ hlið á ermi).

FELLING:
1 felling er prjónuð með stuttum umf þannig (1. umf = ranga):
prjónið 75 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 68 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 62 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 55 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 49 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 42 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 36 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 29 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 23 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 16 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið yfir allar l á prjóni, snúið við og prjónið til baka,
prjónið yfir allar l á prjóni, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 16 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 23 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 29 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 36 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 42 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 49 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 55 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 62 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 68 l, snúið við og prjónið til baka,
prjónið 75 l, snúið við og prjónið til baka.

MÆLING:
Mælt er frá uppfitjunarkanti. Mælið þar sem fellingin er minnst.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fram og til baka á hringprjóna. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, þ.e.a.s. prjónið sl í hverri umf. Byrjað er að prjóna frá hlið. LESIÐ LEIÐBEININGAR!

BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 l á hringprjóna nr 3,5. Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 5-11-13-15-19-21 v (1. umf = rétta). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í lok næstu umf (frá röngu) fitjið upp 3 nýjar l fyrir handveg. Fitjið síðan upp nýjar l í lok 6. hverrar umf (= frá röngu): 3 l 0-0-1-2-4-5 sinnum = 105-107-112-118-126-131 l. Í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 38-41-40-39-35-35 l = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 9-10-11-12-14-16 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu). Prjónið 1 umf sl frá réttu. Prjónið síðan FELLING – sjá útskýringu að ofan. Þegar fellingin hefur verið prjónuð til loka, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 17-19-21-23-26-28 cm – LESIÐ MÆLING. Fellið af 5 l í byrjun umf (frá réttu) fyrir hálsmáli = 138-143-147-152-156-161 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-27-29-31-36-38 cm. Fitjið nú upp 5 l í lok umf (frá röngu) = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 32-35-38-41-47-49 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu). Prjónið 1 umf slétt frá réttu. Prjónið nú fellingu. Þegar fellingin hefur verið prjónuð er prjónuð 1 umf yfir allar l. Prjónið þar til stykkið mælist ca 40-43-45-47-52-54 cm. Fellið af 38-41-40-39-35-35 l í byrjun umf (frá réttu) fyrir handveg = 105-107-112-118-126-131 l. Í næstu umf (frá réttu) eru felldar af 3 l í byrjun umf. Fellið síðan af í byrjun á 6. hverri umf: 3 l 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 l. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist 42-46-50-54-62-66 cm. Fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið frá hlið að miðju að framan. Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið síðan rendur og fitjið upp nýjar l fyrir handveg eins og á bakstykki = 143-148-152-157-161-166 l. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm prjónið fellingu. Þegar fellingin hefur verið prjónuð til loka, er prjónuð 1 umf yfir allar l (frá röngu). Haldið áfram fram og til baka yfir allar l. Þegar stykkið mælist 13-15-17-17-19-21 cm – LESIÐ MÆLING – prjónið fellingu. Þegar fellingin hefur verið prjónuð, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið þar til stykkið mælist 3-3-3-5-6-6 cm eftir síðustu fellingu (stykkið mælist nú alls ca 17-19-21-23-26-28 cm). Fitjið nú upp 23-23-23-23-28-28 nýjar l í lok umf frá röngu = 166-171-175-180-189-194 l. Prjónið fram og til baka yfir allar l í 6-6-6-6-8-8 cm. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið frá miðju að framan og að hlið. Fitjið laust upp 166-171-175-180-189-194 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið rendur fram og til baka yfir allar l í 3 cm. Fellið nú af fyrir hnappagötum í einni umf frá röngu þannig: Prjónið 24 l, * prjónið 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, prjónið 20-20-20-22-22-22 l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, prjónið út umf (= 4 hnappagöt). Haldið áfram með garðaprjón og rendur yfir allar l þar til stykkið mælist 6-6-6-6-8-8 cm. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 23-23-23-23-28-28 l = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist ca 9-9-9-11-12-13 cm. Fellið af fyrir fellingu. Þegar fellingin hefur verið prjónuð til loka, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist ca 17-18-19-20-20-21 cm (stillið af að næsta umf er frá röngu). Prjónið nú fellingu. Þegar fellingin hefur verið prjónuð til loka, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-3-2-2-2 cm eftir síðustu fellingu eru felldar af fyrstu 38-41-40-39-35-35 l (frá réttu) fyrir handveg. Í næstu umf (frá réttu) fellið af 3 l í byrjun umf. Fellið af í byrjun á 6. hverri umf: 3 l 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm eftir síðustu fellingu. Fellið laust af.

ERMI:
Öll ermin er prjónuð fram og til baka í garðaprjóni. Fitjið laust upp 55-57-60-62-62-66 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið rendur. Þegar stykkið mælist 5-5-5-7-9-7 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið 5-4-3½-2½-2-2 cm millibili alls 9-11-12-15-17-18 sinnum = 73-79-84-92-96-102 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-45-44 cm fellið af 3 l í hvorri hlið fyrir ermakúpu. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla. Fækkið síðan lykkjum fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: 2 l 2-2-2-2-1-0 sinnum og 1 l 10-12-14-15-24-28 sinnum. Fækkið síðan um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-57 cm. Fækkið um 3 l í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-56-56-57-57-58 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman sjalkraga fyrir miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2016
Leiðrétting: 4 hnappagöt, ekki 5.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (84)

country flag MTL wrote:

Bonjour Je n ai pas suffisamment de laine Réf. Drop you 8 Lilas 16 pour finir ce modèle Elle est en rupture de stock dans tous vos magasins Par quelle référence est elle remplacée ? Cordialement

23.02.2024 - 15:33

DROPS Design answered:

Bonjour MTL, vous pouvez utiliser un autre fil du groupe de fils C, comme Paris par ex; ou bien 2 fils du groupe de fils A (2 x Safran par ex). Votre magasin saura vous conseiller la couleur idéale. Notez toutefois que ce modèle se tricote en Delight, une laine qui appartenait au groupe de fils A, la DROPS Loves You 8 ne serait ici pas une alternative. Bon tricot!

23.02.2024 - 15:55

country flag Ann Drissel wrote:

When measuring across the back, pattern Magic Autumn, are all the measurements taken from the cast on edge? Ie in xl sizes, the first measurement is 5 1/2 inches. The next is 10 1/4 inches. Does that mean 10 1/4 inches from the cast on edge?

01.01.2022 - 19:37

DROPS Design answered:

Hi Ann, Yes, unless otherwise stated, you measure from the cast-on edge. Happy knitting!

03.01.2022 - 07:51

country flag Agneta wrote:

Der Halsausschnitt am Rückenteil beträgt je nach Größe 8-10 cm. So, wie ich es verstehe, wird an beide Vorderteile ein Band für den Schalkragen in 10 cm Länge gestrickt. Wie wird dieses denn in den Halsausschnitt eingenäht? Mir kommt der Halsausschnit sehr klein vor. Kann man ihn vergrößern? Wie lang muss man dann das Band an den Vorderteilen stricken?

20.12.2021 - 09:56

DROPS Design answered:

Liebe Agneta, die Seite vom Kragen beim rechten Vorderteil zusammen mit der Seite vom Kragen beim linken Vorderteil und dann die Länge entlang Halsausschnitt am Rückenteil annähen. Viel Spaß beim stricken!

20.12.2021 - 14:33

country flag Rose wrote:

Is it possible to shorten the garment with casting on less stitches? Thank you

23.06.2021 - 16:58

DROPS Design answered:

Dear Rosa, Please understand we cannot modify our patterns for each individual request. To shorten the garment, you would have to take off stitches from above the shortrows, and from the shortrows as well as recalculate them, to have a nicely balanced piece. Happy Stitching!

23.06.2021 - 20:38

country flag Katarina wrote:

I made left front side and now I'm working on the right side, but I got confused. The left side said after the 2nd pleat the piece measures 17 cm, then I castted on 23 sts and worked another 6 cm... The right side says when the piece measures 17 cm, work the 2nd pleat. Then work another 4 cm and cast off 38... Is the right side the same width as the left one?

11.03.2021 - 20:42

DROPS Design answered:

Dear Katarina, the right front piece is the same but is started from the mid front while the left front piece started from the side towards mid front, that's the reason why measurements look a bit different since they are not take from the same first row. Right front piece is the mirrored image as the left front piec; Happy knitting!

12.03.2021 - 08:29

country flag Teji wrote:

I have knitted this pattern and love it. Thanks. Could I do this in a cotton or other yarn for use in spring for a similar drape? If so , which yarn would you recommend? Many thanks.

28.01.2021 - 15:02

DROPS Design answered:

Dear Teiji, you can use any other yarn from yarn group A - try out our yarn converter to find other alternatives. Happy knitting!

28.01.2021 - 16:31

country flag Karen Cantor wrote:

Thank you for such a quick response, after I read your response-I hit myself in the head (kempie), makes sense, but one more sillyquestion. It says to make the button holes after an inch of knitting and then I continue on making the right side, isn\'t that a big overlap, shouldn\'t the button holes be closer to the edge when I finish the side? Sorry for these ridiculous questions.\r\nKaren

01.12.2020 - 13:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cantor, pattern has been written like this, ie with 3 cm = approx. 1 inch front edge before buttons - you can adjust placement for the buttons afterwards. Happy knitting!

02.12.2020 - 08:08

country flag Karen wrote:

I hope all is well and safe with you and your family, in this crazy uncertain world. Back to my brain, not working I am knitting a DROPS Design pattern called Magic Autumn-pattern number 164-15 and I just don't understand the right front piece and now I hope I even did the left side correctly. Cast on 171 stitches(medium) from mid front to the side???? Not at all sure what that even means, while the left side I casted on 104from the bottom up. Please help Thank you, Karen Cantor

01.12.2020 - 01:53

DROPS Design answered:

Dear Karen, the left front piece was worked from the side (towards back piece) towards the mid front (neck/opening of jacket) - you ended with 171 sts in size M. The right front piece will be worked reversed, ie you start from mid front (neck/opening of jacket) and end at the side (towards back piece) with 171 sts. Hope this will help. Happy knitting!

01.12.2020 - 09:38

country flag Kirsten Petersen wrote:

Venstre forstykke, skal man starte med 15 pinde, inden man begynder på ærmegab?

28.09.2020 - 11:12

DROPS Design answered:

Hei Kristen. Ja, det strikkes som på bakstykket. Og på slutten av neste pinne (fra vrangen) legges det opp 3 nye masker til ermhull. God Fornøyelse!

28.09.2020 - 17:05

country flag Gabriela Solarova wrote:

Good morning, please is there a pattern instruction for a pleat-like garment for crocheting as well ? thanks

21.03.2020 - 11:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Solarova, there isn't any similar crocheted pattern, but you could find inspiration in our crocheted jackets. Happy crocheting!

23.03.2020 - 09:19