Elena Somma skrifaði:
Is there any fe de errata on this pattern? After all decreases on the yoke the total number of stitches does not much. Thanks
27.09.2024 - 22:59DROPS Design svaraði:
Dear Elena, could you please indicate which size you are working and which section of the yoke doesn't match in numbers? Happy knitting!
29.09.2024 - 20:26
Leah Forgo skrifaði:
On the sleeve one part doesn't show the number of inches for each section. AT THE SAME TIME dec 12 sts evenly on 1st round = 38-38-40-40-42 sts. When piece measures 6-7-7-8-10 cm / 4'', inc 2 sts mid under sleeve. I can measure in cm, but I just wanted to point this out.
10.09.2023 - 22:09
Marie skrifaði:
Hur ska jag göra nät jag gör avmaskning 2 för halsbanden? Ska det avmaskning 2 maskor på varje sida om mittmaskan?
10.03.2023 - 10:43DROPS Design svaraði:
Hei Marie. Nei, det felles 2 masker midt foran. Strikk til det gjenstår 1 maske før rett-masken midt foran, ta 2 masker løs av pinnen som om de skulle strikkes rett sammen ( = masken før midt masken + midt masken), strikk 1 rett og løft de 2 løse masken over. Da får du en pen midt maske i vrangborden i V-halsen. mvh DROPS Design
13.03.2023 - 10:47
Marianna Zacharska skrifaði:
Jak zamknąć dwa oczka przękręcone i przerobione na lewo? To co ja robię brzydko wychodzi.
17.12.2022 - 12:54
Bente Flückiger skrifaði:
Ich habe diese Pullover fertig, Öffnung ist zu eng für mein Enkel. Kann ich die Halsblende wieder aufmachen und mit mehre Maschen stricken als die 92 die angegeben ist? Auf jeder V- Ausschnittseite habe ich 16 M aufgenommen, wie viel mehr Maschen geht ohne dass der Ausschnitt Welle machen. Danke für eure Antwort und lieber Gruss Bente
02.12.2022 - 11:24DROPS Design svaraði:
Liebe Bente, ja gerne können Sie mehr Maschen auffassen - beachten Sie auch, daß die abgekettenen Maschen nicht zu eng werden. Viel Spaß beim stricken!
02.12.2022 - 11:55
Meike skrifaði:
Ich möchte dieses Modell gerne noch für einen Herren, in Größe L, fertigen. Gibt es da eine Möglichkeit, die Anleitung umzurechnen?
08.12.2021 - 13:57DROPS Design svaraði:
Liebe Meike, dieses ist aber leider nur für Kinder; hier finden Sie unsere Pullover für Herren mit V-Ausschnitt - und vielleicht können Sie sich sonnst von einem Pullover für Damen (hier mit V-Auschnitt und Raglan) inspirieren lassen (dieses Tipp könnte mal helfen. Viel Spaß beim stricken!
08.12.2021 - 14:02
Véronique skrifaði:
Je ne comprends pas le modèle pour le dos et devants où l'on doit faire les diminution. jersey jusqu'à ce qu'il reste 5 m avant le marqueur EN MÊME TEMPS, répartir 10-10-12-12-12 diminutions au-dessus de ces m, tricoter ensuite 1 m env, 1 m end, 2 m env, 2 m end (le marqueur se trouve entre ces 2 m), 2 m env, 1 m end, 1 m env, Je doit faire les diminutions entre chaque maille quand il me reste 5 mailles? Merci
19.02.2021 - 12:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Véronique, après les côtes, on continue les 10 mailles des côtés en côtes comme avant et celles du devant/dos (entre les mailles en côtes) en jersey mais on doit diminuer 10 ou 12 mailles dans ces mailles à tricoter en jersey. Autrement dit, vous diminuez de 10 le nombre de mailles entre les côtes sur le devant et sur le dos (= 20-24 diminutions au total) et tricotez les 10 mailles des côtés en côtes comme avant. Bon tricot!
19.02.2021 - 15:06
Dussossoy skrifaði:
Bonjour est-ce qu''on peut tricoter ce modèle avec du DROPS Cotton Light? sinon je cherche des modèles pull enfant 2 3 ans pour l'été donc en coton Merci de votre aide sylvie
31.01.2021 - 10:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dussossoy, bien sur, il faut env. 286g DROPS Cotton Light, cela veut dire 6 pelotes). Bon tricot!
31.01.2021 - 19:35
Claudio Uva skrifaði:
Buongiorno Quando metto in sospeso la maglia centrale per lo scollo e inizio a lavorare avanti e indietro devo staccare il filo? Altrimenti non mi trovo con il giro e le diminuzioni...
11.10.2020 - 14:34DROPS Design svaraði:
Buongiorno Claudio, può tagliare il filo e riprendere la lavorazione in piano dopo aver messo in sospeso la maglia centrale. Buon lavoro!
12.10.2020 - 10:13
Hanne Hassan skrifaði:
Tak for hjælpen😀
10.09.2020 - 21:30
Funny Phil#funnyphilsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu og v-hálsmáli úr DROPS Belle. Stærð börn 2-10 ára
DROPS Children 26-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 12 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl). Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við 5 stroff-l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU: Byrjið 2 l á undan 5 stroff-l, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 5 stroff-l, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU: Byrjið 2 l á undan 5 stroff-l, prjónið 2 l snúnar br saman, 5 stroff-l, 2 l br saman (= 2 l færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um kant í hálsmáli): Fækkið um 2 l þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan sl fyrir miðju að framan, takið 2 l óprjónaðar eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 146-154-166-174-182 l á hringprjóna nr 3 með Belle. Prjónið 1 umf slétt í hvorri hlið (= 73-77-83-87-91 l á milli prjónamerkja). Næsta umf er prjónuð þannig: 1 l sl, 2 l br, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 33-35-38-40-42 sinnum (þ.e.a.s. þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 l sl, 2 l br, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 33-35-38-40-42 sinnum og endið á 1 l sl, 2 l br og 1 l sl. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: 1 l sl, 2 l br, 1 l sl, 1 l br, prjónið sléttprjón þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-12-12-12 l jafnt yfir þessar l, prjónið 1 l br, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br, 1 l sl, 1 l br, prjónið sléttprjón þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-12-12-12 l jafnt yfir þessar l og endið á 1 l br, 1 l sl, 2 l br og 1 l sl = 126-134-142-150-158 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og 10 lykkjur í stroffprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFEESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-10-10-12 cm aukið út um 1 l hvoru megin við stroffprjóns einingu í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 l færri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16-16-20-20-24 cm = 134-142-150-158-166 l. Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-34 cm fellið af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 61-65-69-73-77 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 50-50-52-52-54 l á sokkaprjóna nr 3 með Belle. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir í 1. umf. = 38-38-40-40-42 l. Þegar stykkið mælist 6-7-7-8-10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2-2-2½-2-2 cm millibili alls 8-10-10-13-14 sinnum = 54-58-60-66-70 l. Þegar stykkið mælist 23-28-33-36-40 cm fellið af 6 l mitt undir ermi = 48-52-54-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 218-234-246-266-282 l á prjóni. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR: Byrjið við aðra laskalínuna á bakstykki og prjónið sléttprjón hringinn en í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma eru prjónaðar 5 lykkjur í stroffprjóni þannig: 1 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl og 1 l br (þ.e.a.s. 2 lykkjur í stroffprjóni á fram- og bakstykki og 3 lykkjur í stroffprjóni á ermi). LASKALÍNA: JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtölu fyrir laskalínu í annarri hverri umf alls 15-16-16-17-18 sinnum og síðan í hverri umf alls 4-5-6-6-7 sinnum. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 27-31-34-37-41 cm setjið miðjulykkjur að framan á þráð fyrir v-hálsmáli. Prjónið síðan stykkið fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið við miðju að framan þannig – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þar til stykkið mælist ca 34-38-41-45-49 cm upp að hálsmáli á bakstykki og allar l hafa verið felldar af. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og v-hálsmáli eru ca 45-45-49-59-59 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 36-40-44-48-52 cm upp að öxl. Stillið af að næsta umf sé frá röngu. HÁLSMÁL: 1 umferð = rétta. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið slétt út umf. Prjónið nú upp l innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli, prjónið l af þræði, prjónið l upp meðfram hinni hliðinni á hálsmáli og prjónið fram að miðju að framan = ca 62 til 76 l í kringum háls. Prjónið 1 umf sl og aukið jafnt út til 76-80-86-92-92 l. Síðan er prjónað stroff hringinn (= 1 l sl, 1 l br – ATH: l af þræði fyrir miðju að framan eru prjónaðar slétt, stillið stroffið af eftir þeim). JAFNFRAMT í 2. umf er fækkað um 2 l fyrir miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í hverri umf þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #funnyphilsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.