DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Clever Clark Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino með laskalínu og áferðamynstri. Stærð 1 - 10 ára.

DROPS Extra 0-1143
DROPS Design: Mynstur nr cm-004-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: (12/18) mán 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: (80/86) 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
(200) 250-250-250-300-350 gr litur nr 15, sinnepsgulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS TALA, BOGALAGA (hvít) NR 521: 8 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellt er af með hnappagati í vinstri kanti að framan. 1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn þegar 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 næstu l slétt saman og endið á 2 l sl. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:

STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 6, 10, 14, 18, 22, 26 og 29 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 6, 10, 14, 18, 22, 26 og 31 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 7, 12, 17, 22, 27, 31 og 35 cm.
STÆRÐ 5/6 ÁRA: 2, 7, 12, 17, 22, 27, 33 og 39 cm.
STÆRÐ 7/8 ÁRA: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 37 og 42 cm.
STÆRÐ 9/10 ÁRA: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 39 og 46 cm.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið áfram nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
FRÁ RÉTTU:
Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
FRÁ RÖNGU:
Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l snúnar br saman og síðan 2 l br saman (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp (135) 143-151-159-167-179 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (16) 17-19-22-24-27 cm prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (kantur að framan heldur áfram eins og áður).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka og mynstur eftir A.2 (kantur að framan er prjónaður eins og áður. Þegar stykkið mælist (20) 22-25-28-31-34 cm prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið (33) 35-37-39-41-44 l (= vinstra framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið (57) 61-65-69-73-79 l (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handveg og prjónið síðustu (33) 35-37-39-41-44 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp (34) 36-38-38-40-40 l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist (6) 6-7-6-7-7 cm aukið út um 2 l undir ermi - sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með (1½) 2-2-2-2-2 cm millibili alls (9) 9-10-13-14-16 sinnum = (52) 54-58-64-68-72 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (17) 20-23-27-29-33 cm prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynstrið prjónað í hring eftir A.2. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca (21) 25-29-33-36-40 cm
(stillið af að endað sé í sömu umf í mynstri eins og fram- og bakstykki) fellið af miðju 6 l undir ermi = (46) 48-52-58-62-66 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = (215) 227-243-263-279-299 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

LASKALÍNA: Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar l með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls (13) 14-16-15-17-17 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls (3) 3-3-7-7-9 sinnum.

HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (29) 31-35-39-42-46 cm setjið síðustu (13) 13-12-11-9-10 l í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l (1) 1-1-1-2-2 sinnum og 1 l (0) 1-2-2-2-2 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru (57) 59-59-57-57-59 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca (33) 36-40-44-48-52 l upp að öxl.

HÁLSMÁL:Prjónið upp frá réttu ca 86 til 96 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til (70) 76-82-86-90-90 l (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan). Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1143

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Edda Gramaticopolo wrote:

Non riesco proprio a fare correttamente 2 m a rovescio ritorto, mi viene sempre la catenella.. Non capisco dove sbaglio e passo ore a riguardare al rallentatore il video...invierei la foto se riuscissi...

20.03.2024 - 11:47

DROPS Design answered:

Buonasera Edda, può mandare una mail a italian@garnstudio.com. Buon lavoro!

20.03.2024 - 18:37

country flag Judit Boeszormenyi wrote:

Guten Tag! Ich stricke Clever Clark Cardigan fur 5-6 Jährigen. Wie mach ich nach allen Raglanabnahmen und den Halsausschnittabnahmen weiter? Es liegen ja 57 Maschen am Nadel. Sogar mit den atillgelegten 2x11 Maschen werden nur 79 Maschen darauf und zwei Löcher dazwischen... Bitte um Hilfe! ♥️ Judit Boszormenyi

02.06.2023 - 19:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Boeszormenyi, also ja genau nach allen Raglanzunahmen sind es nur noch 57 Maschen übrig, dann stricken Sie die stillgelegten Maschen vom Vorderteil, fassen Sie neuen Maschen in den abgekettenen Maschen für den Halsausschnitt bis Maschen auf der Nadel auf, stricken Sie die 57 Maschen der Passe, fassen Sie neuen Maschen in den abgekettenen Maschen für den Halsausschnitt bis die stillgegelten Maschen auf und stricken Sie die stillgelegten Maschen für die Halsblende. Viel Spaß beim stricken!

05.06.2023 - 09:25

country flag Clare Rees wrote:

This pattern have been a nightmare! I am now at the neck edge. I have two lots of 13 stitches sitting on a stitch holder. What do I do? Where is the next row - I presume past the stitch holder but that is not where my yarn end is! I presume I rejoin the yarn to work the stitches either side of the holder? and I cast off 2 stitches at the beginning of the row and one stitch twice. but what then? I am so confused!

15.03.2023 - 21:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rees, you have slipped the first 13 sts on both front piece aside, and then cast off stitfches for neck on each side. Finish all raglan and cast off for neck until they are all done. Now knit up the 13 sts on right front piece, pick up sts along neck + shoulder, work the remaining sts on yoke, pick up sts along shoulder + neck and knit up the 13 sts on left front piece. Happy knitting!

16.03.2023 - 09:02

country flag Lelletta wrote:

Buonasera, mi piacerebbe che lo scollo fosse un po' meno aperto...posso fare qualche giro di ferri in più diminuendo ancora qualche maglia? Grazie per la risposta e buon lavoro!

03.10.2022 - 18:35

DROPS Design answered:

Buonasera Lelletta, può apportare le modifiche che preferisce al modello. Buon lavoro!

03.10.2022 - 18:39

country flag Clare Rees wrote:

Please could you tell me which 6 stitches to cast off on the sleeve as this has been knitted as a tube and doesn't have a seam. Thank you.

26.02.2022 - 19:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rees, you will sew together the 6 sts cast off mid under sleeve to the 6 sts cast off for armhole at the end of body - see also this video. Happy knitting!

28.02.2022 - 10:54

country flag Mrs Clare Rees wrote:

Hello Please can you tell me how to work the A1 and A2 pattern for the Clever Cardigan when using double pointed needles for the sleeves as the usual knit stitches only produce stocking stitch (as I found out to my cost!!!) Thank you. Clare Rees

24.01.2022 - 23:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rees, when working in the round, you are always working the stitches from the right side, ie either K or P from RS just as shown in diagram and explained in the diagram key (ex; A.1: K1 round, P1 round, K1 round, P1 round, K 3 round, P1 round, K1 round, P1 round, K1 round). Happy knitting!

25.01.2022 - 09:56

country flag Clare Rees wrote:

I am knitting the sleeve for the clever clark cardigan but please could you explain the way to increase. What does under sleeve mean? Am I increasing at each end of the knitting or in the middle? Thank you.

29.11.2021 - 18:37

DROPS Design answered:

Hello Clare Rees! The beginning of the round is in the middle of under sleeve, meaning closest to the body. Work until there is 1 stitch left before the marker at the beginning of the round, make 1 yarn over, knit 2 (the marker sits in the middle of these 2 stitches), 1 yarn over. On the next round knit the yarn overs twisted to avoid holes. Then work the new stitches in stocking stitch (= 2 stitches increased). Hope it helps! Happy knitting!

29.11.2021 - 20:26

country flag Gunilla wrote:

Stickar stl 2år. Har 59 m kvar på stickan+13 maskor i varje kant på framstyckena. På halskanten står det att jag ska sticka upp 86-96 maskor runt halsen men jag har ju maskorna kvar på stickan. Fattar ingenting.

09.11.2021 - 18:14

DROPS Design answered:

Hej Gunilla. Du sätter tillbaka de första 13 maskorna på ena sidan (ena kanten) på stickan, stickar upp några maskor mellan dessa och resterande maskor, stickar maskorna du har kvar (59 m), stickar upp några maskor på andra sidan mellan dessa och de sista 13 m, sedan stickar du de sista 13 m (andra kanten). Du ska nu ha ca 86-96 m totalt på stickan. På nästa varv minskar du jämnt fördelat till 76 m totalt. Mvh DROPS Design

10.11.2021 - 08:59

country flag Anna Maria Vitulano wrote:

Buongiorno. Mi piacerebbe realizzare questo modello, ma nella taglia 9 mesi. È possibile avere 8ndicazioni in merito? Grazie mille e complimenti.

07.09.2021 - 07:47

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Maria, questo modello non è disponibile per la taglia 9 mesi: ci sono tanti altri modelli per la taglia che desidera e altri in arrivo nei prossimi giorni. Continui a monitorare il nostro sito. Buon lavoro!

08.09.2021 - 00:00

country flag Clare Rees wrote:

T hi ani’s for the reply to my earlier question - I’m sorry to trouble you with another but I want to be sure! So to make the buttonhole I work to the last 4 stitches on a wrong side and then what is the order? Is it k1 k2 together Yarn over K1? Thank you!

23.06.2021 - 11:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rees, the buttonholes are worked on the left front band edge, ie work from right side until 4 sts remain at the end of the row, make 1 yarn over, knit the next 2 stitches together and knit the last 2 sts. On next row, knit all front band stitches as before. Hope it will helps. Happy knitting!

23.06.2021 - 14:01