Penny Balding skrifaði:
I would like to ask when doing the measurements for the jacket, ie for the button holes on the band, plus measuring for the length up to the armholes, from where is the measurement taken from? On the same row the length of the band done in garter st is different from the length taken in the panel of cable stitches, and is different again when measurement is taken over the stocking stitch panel. For the size 5/6 year old, there is as much as 5cm difference.
07.02.2019 - 17:34DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Balding, there shouldn't be noticeable difference in height between stocking stitch and cable patterns, and there should be no difference in height with the band stitches thanks to the short rows. The height should be then the same measured anywhere in the jacket. Happy knitting!
11.02.2019 - 11:00
Vienne skrifaði:
Bonjour, J'ai bien réussi le corps du gilet et je commence maintenant les manches. J'ai une interrogation au niveau du diagramme A2. Pouvez vous me confirmez que la première ligne de 18m du diagramme A2 est à l'envers. C'est à dire que les 6 mailles en croix du début de A2 doivent être tricoté à l'endroit puisqu'on est en jersey envers? Merci pour votre retour. Cordialement Elisabeth VIENNE
17.01.2019 - 15:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vienne, les manches se tricotent en rond sur les aiguilles doubles pointes, tous les rangs du diagramme seront ainsi lus sur l'endroit de droite à gauche jusqu'à l'arrondi de la manche. On tricote ensuite les rangs sur l'envers en les lisant de gauche à droite - au moment de rabattre les mailles pour l'arrondi, ajustez bien pour que les rangs avec torsades soient toujours sur l'endroit. Les mailles avec des croix = jersey envers et les mailles blanches = jersey endroit (vu sur l'endroit). Bon tricot!
17.01.2019 - 16:12
Vienne skrifaði:
Bonjour, Dans les explications sur la veste je ne vois pas de mention du point fantaisie A2. Merci de me préciser à quel moment il faut faire le point A2. Cordialement
10.04.2018 - 22:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vienne, le diagramme A.2 se fait au milieu de chaque manche. Bon tricot!
11.04.2018 - 09:32Amanda skrifaði:
Thank you for such a beautiful pattern = I am looking at making the Jacket - for a 3 year old- the size 98/104cm - what does this relate to - is it the height of the child please? Many thanks
24.11.2017 - 09:09DROPS Design svaraði:
Dear Amanda, that's right 98/104 cm is the height of the child - you will find all measurements of the jacket in the chart at the bottom of the page, they are in cm taken flat from side to side. Compare these to a similar jacket that fits him to find out the matching size. Read more about the size here. Happy knitting!
24.11.2017 - 11:10
Agnès skrifaði:
Bonjour, j'ai un problème avec le diagramme; quand je tricote les cases en croix sur l'endroit de mon tricot , je tricote les mailles à l'envers et quand je tricote mon tricot à l'envers je tricote donc ces mailles qui sont à l'endroit, en mailles envers ? donc sur l'endroit cela donne visuellement des variations endroit et envers. merci de me répondre
01.06.2017 - 08:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Agnès, les croix dans les diagrammes sont des mailles en jersey envers (= à l'envers sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers) et les cases blanches se tricotent en jersey endroit (= à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers). Bon tricot!
01.06.2017 - 09:03
Rigault skrifaði:
Je souhaite faire ce gilet en 13-14 ans. Pourriez vous m'indiquer le nombre de maille à ajouter ou m'indiquer le calcul à effectuer. Merci de votre aide, je n'ai pas trouvé de gilet aussi beau que celui-ci .
26.02.2017 - 21:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Rigault, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, mais vous pouvez vous recalculer sur la base de votre échantillon, de vos mesures finales avec les explications. Votre magasin DROPS saura vous aider si besoin. Bon tricot!
27.02.2017 - 11:24Franca Vassiliou skrifaði:
Je ne comprends pas la note " toutes les 8 cotes mousses....aller retour..... Pouvez vous m expliquer? Merci
14.02.2016 - 20:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vassiliou, toutes les 8 côtes mousse, on va tricoter des rangs raccourcis sur les mailles des bordures devant seulement pour éviter que les bordures ne resserrent la veste (il faut plus de rangs au point mousse qu'en point fantaisie pour la même hauteur): tricotez 2 rangs sur les 18-24 premières m, 1 rang sur toutes les m, 2 rangs sur les 18-24 premières m (= de l'autre côté). Bon tricot!
15.02.2016 - 11:24
Charming Cooper#charmingcoopercardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu með köðlum og sjalkraga, húfu með dúsk og prjónuð slaufa úr DROPS Karisma. Stærð börn 3–12 ára
DROPS Children 26-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Sjá teikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Peysan er tvíhneppt og fellt er af fyrir 6-6-6-8-8 hnappagötum í vinstri kanti að framan. Fellt er af fyrir hnappagötum í lok umf frá réttu 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu l á kanti að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í sömu umf eru einnig prjónaðar fjórða og fimmta SÍÐASTA l á kanti að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir 2 hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 3/4 ára: 10, 18 og 26 cm. STÆRÐ 5/6 ára: 14, 22 og 30 cm. STÆRÐ 7/8 ára: 16, 25 og 34 cm. STÆRÐ 9/10 ára: 11, 20, 29 og 38 cm. STÆRÐ 11/12 ára: 15, 24, 33 og 42 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 186-198-206-214-226 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið þannig: 18-20-20-22-24 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l sl og 18-20-20-22-24 l garðaprjón ( = kantur að framan). Prjónið stroff þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið síðan 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni), JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 184-196-202-214-224 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu – þannig: 18-20-20-22-24 l garðaprjón, A.1 (= 28-28-28-32-32 l – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð), 32-36-39-37-40 l sléttprjón, A.1, 32-36-39-37-40 l sléttprjón, A.1, endið á 18-20-20-22-24 l garðaprjón. ATH! Í 16. hverri umf í garðaprjóni eru prjónaðar stuttar umf yfir kant að framan þannig: Í 16. hverri umf í garðaprjóni eru prjónaðar stuttar umf yfir kant að framan þannig: prjónið 18-20-20-22-24 l sl, snúið við og prjónið sl til baka yfir 18-20-20-22-24 l, prjónið 1 umf yfir allar l. Snúið við og prjónið sl yfir 18-20-20-22-24 l, snúið við og prjónið sl til baka yfir 18-20-20-22-24 l. Prjónið 1 umf eins og áður yfir allar l. Haldið áfram með mynstur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 31-34-37-40-43 cm prjónið frá réttu – þannig (mynstrið heldur áfram eins og áður): Prjónið 50-54-55-59-62 l (= hægra framstykki), fellið af næstu 6 l fyrir handveg, prjónið 72-76-80-84-88 l ( = bakstykki), fellið af næstu 6 l fyrir handveg, prjónið síðustu 50-54-55-59-62 l (= vinstra framstykki). Prjónið síðan hvert stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 72-76-80-84-88 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umf þannig: 2 l 1-2-2-2-2 sinnum og 1 l 2-2-3-1-2 sinnum = 64-64-66-74-76 l. Þegar stykkið mælist 42-46-50-54-58 cm fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir í A.1, í næstu umf eru felldar af miðju 16-16-18-18-20 l fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af að auki 1 l við hálsmál = 18-18-18-22-22 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 44-48-52-56-60 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 50-54-55-59-62 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 46-48-48-54-56 l. Þegar stykkið mælist 43-47-51-55-59 cm fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir í A.1. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 18-18-18-22-22 l = 18-20-20-22-24 l eftir á prjóni (= kantur að framan). Haldið áfram með garðaprjón yfir l í kanti að framan og prjónið stuttar umf með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið yfir fyrstu 9-10-10-11-12 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir allar l, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til kantur að framan mælist 7-8-9-10-11 cm frá öxl (mælt þar sem er minnst). Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 50-54-55-59-62 l. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-44-48-48-52 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru felldar af 0-0-2-2-4 l jafnt yfir = 44-44-46-46-48 l. Prjónið síðan þannig: 13-13-14-14-15 l sléttprjón, A.2 (= 18 l), 13-13-14-14-15 l sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 6-6-5-5-5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4½-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 6-8-9-11-12 sinnum = 56-60-64-68-72 l. Þegar stykkið mælist 30-34-39-42-46 cm fellið af 6 l fyrir miðju undir ermi. Prjónið síðan ermina fram og til baka og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 34-39-44-47-52 cm. Fellið af 3 l í hvorri hlið, síðan eru þær l felldar af sem eftir eru. Stykkið mælist ca 35-40-45-48-53 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saman kant við miðju að aftan og saumið hann við hálsmál aftan við hnakka. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 85-90-95-100-105 l á hringprjóna 3,5 með litnum natur Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og litinn rauður. Prjónið síðan sléttprjón til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm eru sett 5 prjónamerki í stykkið með 17-18-19-20-21 l á milli prjónamerkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman = 5 l færri í hverri umf. Endurtakið úrtöku í 3. hverri umf 14-15-16-17-18 sinnum til viðbótar = 15 l eftir á sokkaprjóni. Eftir síðustu úrtöku eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist 27-28-30-31-32 cm. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst í oddinn á húfunni. ------------------------------------------------------- SLAUFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. SLAUFA: Fitjið upp 10 l á prjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm, fellið af. MIÐJUBAND: Fitjið upp 10 l á prjóna nr 3,5 og prjónið 8 umf garðaprjón. Fellið af. Saumið saman skammhliðar svo að það myndist hringur. Dragið slaufuna í gegnum hringinn og saumið bæði stykkin niður saman með smáu spori. Festið silkiborða eða teygju í gegnum hringinn á bakhlið á slaufunni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #charmingcoopercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.