Jo skrifaði:
Kan dit patroon ook op 2 pennen gebreid worden? Hartelijk dank voor patroon
05.10.2015 - 19:09DROPS Design svaraði:
Hoi Jo. Je kan proberen om het patroon aan te passen, maar ik verwacht dat het lastig zal worden om de pas aan te passen. Kijk hier hoe je eventueel kan aanpassen
06.10.2015 - 15:55Helen skrifaði:
There is no diagram dor SmaDROPS 26-14.
07.05.2015 - 11:27DROPS Design svaraði:
Hi Helen. We will add them asap, come back later and it should be all done :-)
07.05.2015 - 12:32
Little Hedda#littleheddadress |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með gatamynsturs kanti og hringlaga berustykki sem og prjónaðri slaufu í hárið í garðaprjóni úr DROPS Cotton Merino. Fyrir börn 1 mánaða – 6 ára
DROPS Children 26-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á eftir 1.-2.-4. og 5. prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 létt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3.-4.-6. og 1. prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. KJÓLL: Fitjið upp 217-231-245 (259-280-287) lykkjur á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er mynstur prjónað í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 186-198-210 (222-240-246) lykkjur á prjóni og stykkið mælist ca 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 2-4-0 (2-4-2) lykkjur jafnt yfir = 184-194-210 (220-236-244) l. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í byrjun á umferð (= hlið), 2. prjónamerki er sett eftir 27-29-32 (33-35-37) lykkjur, 3. prjónamerki er sett eftir 38-39-41 (44-48-48) lykkjur, 4. prjónamerki er sett eftir 27-29-32 (33-35-37) lykkjur (= hlið), 5. prjónamerki er sett eftir 27-29-32 (33-35-37) lykkjur. 6. prjónamerki er sett eftir 38-39-41 (44-48-48) lykkjur (nú eru 27-29-32 (33-35-37) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki, fækkið um 1 lykkju á eftir 2. og 5. prjónamerki og 1 lykkju á undan 3. og 6. prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku með 1½-1½-2 (2-2-2½) cm millibili alls 11-11-12 (12-13-13) sinnum = 96-106-114 (124-132-140) l. Takið frá 6 prjónamerkin og setjið 1 nýtt prjónamerki í byrjun umferð og 1 prjónamerki eftir 48-53-57 (62-66-70) lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 24-25-30 (33-36-40) cm (úrtöku á nú að vera lokið), prjónið nú mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón aftur hringinn. Þegar stykkið mælist 28-29-34 (37-40-44) cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 10-10-12 (12-14-14) lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir 5-5-6 (6-7-7) lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin – ATH: Aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Í næstu umferð eftir 4 umferð garðaprjón eru felldar af miðju 6-6-8 (8-10-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4 (4-5-5) lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 42-47-49 (54-56-60) lykkjur eftir á fram- og bakstykki. Klippið frá. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við miðju að aftan og prjónið slétt yfir lykkjur á hálfu bakstykki, fitjið upp 36-38-44 (46-50-56) lykkjur yfir annan handveginn, prjónið slétt yfir framstykki, fitjið upp 36-38-44 (46-50-56) lykkjur yfir hinn handveginn og prjónið slétt yfir bakstykki fram að miðju að aftan = 156-170-186 (200-212-232) lykkjur. Prjónið síðan stykkið fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan þannig: Prjónið 3 umferðir slétt JAFNFRAMT í 1. umferð (= ranga) er fækkað um 2-2-4 (4-2-8) lykkjur jafnt yfir = 154-168-182 (196-210-224) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.4 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, endið á 3 fyrstu lykkjum í A.4 og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-4-5 (6-7-8) cm frá prjónamerki eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman. Endurtakið úrtöku í hverri brugðinni mynstureiningu þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-9-10) og 6-7-8 (9-10-11) cm = 91-99-107 (115-123-131) lykkjur eftir á prjóni og einungis 1 lykkja brugðið er á milli hverra gataumferða. Þegar stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11-12) cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með götum og prjónað sé A.3 frá réttu yfir allar lykkjur (2 kantlykkjur í garðaprjóni halda áfram eins og áður) = 47-51-55 (59-63-67) l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið síðan LAUST af. FRÁGANGUR: Heklið 2 hneslur meðfram vinstri hlið á opi að aftan. 1 hnesla = heklið með heklunál nr 3,5 með Cotton Merino þannig: 1 fastalykkja í ystur lykkju efst við hálsmál, 4 loftlykkjur og síðan 1 keðjulykkja í sömu lykkju eins og fastalykkjan var hekluð, klippið frá og festið enda. Heklið aðra eins hneslu fyrir miðju með fram opi. Saumið tölur í hægri hlið í opi. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant neðst í kringum um kjólinn með heklunál nr 3,5 þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2-3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferð hringinn og endið á 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda. Heklið annan kant alveg eins neðst í kringum berustykki – þ.e.a.s. heklið í neðstu rönd með garðaprjóni í berustykki og síðan meðfram báðum köntum í handveg. ------------------------------------------------------- SLAUFA Í HÁRIÐ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Talan í ( ) á við um stóra slaufu. Stykkið er prjónað fram og til baka. SLAUFA Í HÁRIÐ: Fitjið upp 10 (20) lykkjur á prjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist 8 (12) cm, fellið af. MIÐJUBAND: Fitjið upp 10 (15) lykkjur á prjóna nr 3,5 og prjónið 8 (10) umferðir garðaprjón. Fellið af. Saumið saman skammhliðar svo að það myndist hringur. Þræðið sjálfa slaufuna í gegnum hringinn og saumið niður í bæði stykkin saman með nokkrum smáum sporum. Festið slaufuna á silkiband eða hárspennu með nokkrum sporum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littleheddadress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.