DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Alice

Prjónaður kjóll með gatamynstri og slaufu í hárið í garðaprjóni úr DROPS Cotton Merino. Fyrir börn 1 mánaða – 6 ára

DROPS Children 26-4
DROPS Design: Mynstur nr cm-007-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92 - 98/104 - 110/116

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
150-150-150 (200-200-250) gr litur nr 06, rauður

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – fyrir stroff

SLAUFA Í HÁR:
Mál: Lítil ca 5 x 8 cm. Stór ca 9 x 12 cm.

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
50 gr litur nr 06, rauður (lítil slaufa er ca 6 gr og stór ca 10 gr).

DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 45 umf með garðaprjón verði 10 x 10 cm.
FYLGIHLUTIR: Silkiband eða hárspenna til að festa slaufuna á.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3784.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 eða A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir óskaða stærð:
STÆRÐ 1/3 og 6/9 mán: Prjónið A.1
STÆRÐ 12/18 mán og 2 ára: Prjónið A.2
STÆRÐ 3/4 og 5/6 ára: Prjónið A.3

ÚRTAKA:
Fækkið um lykkjur á eftir 1.-2.-4. og 5. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um lykkjur á undan 3.-4.-6. og 1. prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um lykkjur á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um lykkjur á undan 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 l á undan 4 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

KJÓLL:
Fitjið upp 152-160-176 (188-204-212) l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Setjið síðan 6 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett í byrjun umf (= hlið), 2. prjónamerki er sett eftir 23-25-27 (29-31-33) l, 3. prjónamerki er sett eftir 30-30-34 (36-40-40) l, 4. prjónamerki er sett eftir 23-25-27 (29-31-33) l (= hlið), 5. prjónamerki er sett eftir 23-25-27 (29-31-33) l, 6. prjónamerki er sett eftir 30-30-34 (36-40-40) l (nú eru 23-25-27 (29-31-33) l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki, fækkið um 1 l á eftir 2. og 5. prjónamerki og 1 l á undan 3. og 6. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku með 2½-3-3 (3-3-3½) cm millibili alls 7-7-8 (8-9-9) sinnum = 96-104-112 (124-132-140) l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 19-22-25 (25-28-32) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3, prjónið síðan stroff hringinn þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stroffið mælist 1½-1½-1½-2-2-2 cm prjónið gatakant þannig: 1 l sl, * 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið á 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir að þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 48-52-56 (62-66-70) l (= framstykki), fellið af næstu 48-52-56 (62-66-70) l LAUST af með sl yfir sl og br yfir br (= bakstykki).

FRAMSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fyrstu umf frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 12-14-15 (18-19-21) l sléttprjón, prjónið mynsturteikningu A.1, A.2 EÐA A.3 (Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð = 16-16-18 (18-20-20) l), 12-14-15 (18-19-21) l sléttprjón og 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, JAFNFRAMT eftir 1 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 1-1-1½ (1½-1½-1½) cm millibili alls 9-9-9 (10-10-10) sinnum = 30-34-38 (42-46-50) l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (15-16-17) cm frá prjónamerki – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu, prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 l sl og setjið þessar l á þráð fyrir axlaband, fellið af næstu 14-18-22 (26-30-34) l og prjónið sl yfir síðustu 8 l (= axlaband).

AXLABAND:
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til bandið mælist ca 18-25 c (eða að óskaðri lengd). Fellið af og endurtakið á hinni hliðinni. Saumið bandið niður að stroffi á kjól.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði af Cotton Merino ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið við miðju að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á stroffi við mitti.

-------------------------------------------------------

SLAUFA Í HÁRIÐ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Talan í ( ) á við um stóra slaufu. Stykkið er prjónað fram og til baka.

SLAUFA Í HÁRIÐ:
Fitjið upp 10 (20) l á prjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist 8 (12) cm, fellið af.

MIÐJUBAND:
Fitjið upp 10 (15) l á prjóna nr 3,5 og prjónið 8 (10) umf garðaprjón. Fellið af. Saumið saman skammhliðar svo að það myndist hringur.

Dragið sjálfa slaufuna í gegnum hringinn og saumið niður í bæði stykkin saman með nokkrum smáum sporum. Festið slaufuna á silkiband eða hárspennu með nokkrum sporum.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Chiara wrote:

Potrei realizzare questo vestitino per una bimba di 8 anni, semplicemente aumentando lo spessore di filato e ferri? Rimarrebbe un lavoro proporzionato? Grazie!

23.07.2023 - 22:23

DROPS Design answered:

Buonasera Chiara, per una taglia in più andranno riprogettate maglie e misure: per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

24.07.2023 - 19:17

country flag Martta wrote:

Kun teen mekossa sitä kohtaa mihin tulee naru niin kun ohjeessa sanotaan tee 1o, 2 yhteen nurin ja langankierto niin neulotaanko nurjat silmukat yhteen? Jos näin tekee niin silmukoiden määrä vähenee ja silloin myöhemmässä vaiheessa minulla ei ole niitä 140 silmukkaa jotka tarvitsen, vai menikö minulta jokin ohi :D?

19.05.2023 - 17:18

DROPS Design answered:

Kyllä, nurjat silmukat neulotaan yhteen. Jokaisen kavennuksen jälkeen tehdään kuitenkin langankierto, eli työhön lisätään jokaisen kavennuksen jälkeen 1 silmukka (silmukkaluku pysyy tällöin samana).

24.05.2023 - 12:44

country flag Rasha wrote:

I’ve just finished this dress, it is gorgeous, I wish I could share the dress I knitted with you. Thanks for your amazing patterns

17.03.2023 - 01:52

country flag Dionisio wrote:

Merci pour votre réponse. Est-ce la même chose pour le tour ajouré ?

01.03.2021 - 09:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dionisio, tout à fait, ce tour permettra d'y glisser la cordelette de la taille. Bonne continuation!

01.03.2021 - 10:10

country flag Martine Dionisio wrote:

Bonjour, Je voudrais savoir s’il faut tricoter le jeté par le brin avant ou le brin arrière ? Merci d’avance pour votre réponse

27.02.2021 - 23:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dionisio, les jetés des diagrammes A.1, A.2 et A.3 se tricotent normalement (= dans le brin avant) au tour suivant, ils doivent former des trous pour le point ajouré. Bon tricot!

01.03.2021 - 09:13

country flag Danielle Daoust wrote:

Pour faire un 8 ans comment faire ?

19.07.2018 - 04:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Daoust, ce modèle est uniquement disponible jusqu'au 5/6 ans, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chaque modèle à chaque demande individuelle, n'hésitez pas à contacter votre magasin ou un forum tricot pour toute assistance complémentaire. Bon tricot!

19.07.2018 - 09:34

country flag Hanna wrote:

Beste drops, Ik heb een vraag over het jurkje en over het minderen. Ik brei de maat voor 2 jaar. Ik moet dus iedere 3 cm minderen rondom de markeerders 8x in totaal. Dat is 8x3=24cm + de 4 cm voor de eerste mindering. Dan zit ik in totaal aan 28 cm, dat terwijl het eerste deel 25 cm moet meten. Kunt u dit voor mij ophelderen? Bedankt!

15.10.2016 - 16:00

DROPS Design answered:

Hoi Hanna. Je mindert de eerste keer op 4 cm en herhaalt in totaal 8 keer op elke 3 cm, dus: 1e: 4 cm, 2e: 7 cm, 3e: 10 cm, 4e: 13 cm, 5e: 16 cm, 6e: 19, 7e: 22 cm, 8e: 25 cm

18.10.2016 - 14:52

Katie wrote:

Thanks again for another very speedy reply :) Think I am with you, not sure why I am so confused :) I will use measurements on schematic for chest/waist size, measurements the top of the page is the length/height. I wouldn't mind but I have used a lot of your other patterns with no problems! Anyway, thanks again, love this pattern & can't wait to start (and so many others, just need more time!) K.

05.09.2016 - 16:10

Katie wrote:

Hi, thanks for the reply. I have measured the size I need is 21" / 53.3 (approx. cm). My question is, which size do I use - the "size in cm" or the sizes given in the schematic. For 12-18 months the "size in cm" is 80/86 cm and the size in the schematic is 25cm (x2 =50cm). I am just wondering which of your sizes I would go with to get my desired 53/54 cm. Thanks again.

05.09.2016 - 12:22

DROPS Design answered:

Dear Katie, the size (80/86 cm) is meant stature in cm - the 25 cm ( x 2 = 50 cm) in 3rd size are for the width. There will be some rib at waist, so that you can easily adjust, checking measurement from a similar garment. Happy knitting!

05.09.2016 - 13:33

country flag Katie wrote:

Hi, my daughter measures 21" around the chest approx. 53cm. Going by the "size in cm" that would mean I should make the 1-3 months but if I look at the schematic the chest size for 1-3 months is 22cmx2=44cm so I should go with either 12-18 months - 25cmx2 or the 2 years - 28cmx2. Sorry if this is a bit confused, a steer in the right direction would be appreciated. Thanks so much.

05.09.2016 - 11:38

DROPS Design answered:

Dear Katie, the best is to measure a similar garment she has and compare with the measurement chart - read more here. Happy knitting!

05.09.2016 - 11:46