Yarnia skrifaði:
Thank you so much for answering me. Your explanation makes up for 2 stitches. I am still 2 stitches short, because for the S size the pattern says I need to decrease 13 times, not 14. Also: how fast can one ask a second question? If I am actually working on a project...like I am now...getting more explanations could be very important. Thank you
09.11.2023 - 19:52DROPS Design svaraði:
Dear Yarnia, under sleeve pattern (UK-English), you can read: Repeat inc every 3-2½-2½-2-2-2 cm 13-16-14-17-17-19 more times = 76-... sts, this means you increase the first time when piece measures 7-6-8-8-8-7 cm then 13 more times (in size S) this makes a total of 14 times. Happy knitting!
10.11.2023 - 09:14
Yarnia skrifaði:
My question concerns the numbers for the sleeves, size S: so we start increasing from 46 st, 2 st per row, 13 times; this gives us 26 st extra, which added to the 46 we started with, should take us to 72, not 76. Am I missing something? Thank you!
08.11.2023 - 18:58DROPS Design svaraði:
Dear Yarnia, you start with 46 sts but on the first row after the 2 ridges, you will increase 2 sts = 48 sts. You then increase 2 sts a total of 14 times (the first increase as explained + 13 more times) = 48+28= 76 sts. Happy knitting!
09.11.2023 - 08:16
Katarzyna Górska skrifaði:
We wzorze jest błąd. Przy przerabianie rękawów jest "Dalej przer. w sumie 4-4-4-4-5-5 razy schemat A.2 (= 12-12-14-14-12-12 o.) na szerokość", a powinno być schemat A.4.
20.02.2023 - 21:29DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu, masz rację, bardzo dziękuję za zwrócenie uwagi. Poprawka została już naniesiona. Pozdrawiamy!
21.02.2023 - 08:27
Ingelise Hansen skrifaði:
Jakke. str XXXl 363 masker inklusiv 12 masker kantm. Hvordan kan man strikke mønster A1 og A2 24 gange i bredden
27.03.2019 - 11:01DROPS Design svaraði:
Hei Ingelise. A.1 og A.3 strikkes i hver sin side av A.2, rett før/etter stolpen. A.2 gjentas rundt resten av jakken. Altså du strikker slik: 6 stolpemasker, A.1, så gjentar du A.2 totalt 24 ganger, så strikker du A.3 og avslutter med 6 stolpemasker. Det er kun A.2 som gjentas 24 ganger, de andre diagrammet strikkes 1 gang hver (i hver ende). God fornøyelse
02.04.2019 - 13:30
Laura skrifaði:
Grazie mille, mi sono persa in un bicchier d’acqua. Ringraziandovi per la disponibilità approfitto per complimentarmi dei modelli che dei filati che sono bellissimi. Buon lavoro
28.12.2018 - 12:19
Laura skrifaði:
Grazie per la risposta così celere Ma se seguo la descrizione del ferro 1 in ogni ferro vengono calati 16 punti e non 8, non riesco a capire questo. Grazie
28.12.2018 - 08:47DROPS Design svaraði:
Buongiorno Laura. Da ciascun lato del segno, lavora 3 m insieme a diritto (quindi diminuisce 2 m), ma inserisce anche una maglia gettata, recuperando così una maglia. Quindi diminuisce una maglia prima e una dopo ogni segno (2 m in tutto ad ogni segno; in tutto 8 sul ferro). Buon lavoro!
28.12.2018 - 09:59
Laura skrifaði:
Buonasera, non riesco a capire la spiegazione del reglan, sto seguendo lo schema in taglia M, per diminuire ogni 4 Ferri devo sempre seguire spiegazione di ferro 1 e ripetere per 5 volte - poi per diminuire ogni 2 Ferri devo sempre seguire spiegazione ferro 1 e ferro 2 ripetendo per 14 volte?Se proseguo così avrò meno maglie, gentilmente potrei avere un aiuto? Ringrazio anticipatamente
28.12.2018 - 00:33DROPS Design svaraði:
Buongiorno Laura. Sui ferri deve avere 340 m prima di iniziare a diminuire. Per diminuire ogni 4 ferri, ripete i ferri 1-4 per 5 volte, ma diminuisce solo al ferro 1. Diminuisce 8 maglie ad ogni ferro 1. Quindi 8x5= 40 m diminuite. Poi diminuisce ogni 2 ferri per 14 volte, lavorando i ferri 1 e 2, diminuendo 8 m ogni volta che lavora il ferro 1. Quindi 8x14 =112 m. In tutto 152 m diminuite. Rimangono 340-152= 188 m. Buon lavoro!
28.12.2018 - 08:29
Anne-Marie Silven skrifaði:
Hej, en fråga om raglandelen. \"Det minskas på vårt 4:e varv så här: Det minskas endast på 1:a varvet men för att hålmönstret ska fortsätt förklaras alla 4 varv. Vad gör Jag på tredje varvet? Bara slätstickning?? \r\nMvh Anne-Marie
04.11.2018 - 18:24
Marion Klarenbeek skrifaði:
Dank u wel, ik heb tussen de patroondelen markeerringen geplaatst. Dus ik heb alleen de steken van A3 geteld 😶. Sorry en dank u wel voor de informatie. Met vriendelijke groet, Marion Klarenbeek
28.10.2016 - 18:23DROPS Design svaraði:
Hoi Marion. Mooi dat je verder kan!
31.10.2016 - 15:36
Marion Klarenbeek skrifaði:
Goedendag, Sorry dat ik terug kom op de vorige opmerking. Volgens de tekening van patroon A.3 wordt er in de oneven naalden 1 r afh, 2 r samen, afgeh st overh. Verder op in deze naalden wordt er 1 omslag gebreid. Dus ik kom bij elke oneven naald 1 steek tekort. Met vriendelijke groet, Marion Klarenbeek
27.10.2016 - 17:39DROPS Design svaraði:
Hoi Marion. Ja, maar je hebt bij A.1 een omslag (meerdering), dus aan het einde van de nld na A.3 (mindering) zou je een gelijk aantal st weer moeten hebben.
28.10.2016 - 18:05
Juliana Cardigan#julianacardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-23 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Prjónið fram þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. LASKALÍNA: Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki. FÆKKIÐ LYKKJUM Í 4. HVERRI UMFERÐ ÞANNIG: Einungis er lykkjum fækkað í 1. umf en til þess að gatamynstrið haldi áfram þá eru útskýrðar allar 4 umferðirnar. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið á 5 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 3 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l snúnar slétt saman. UMFERÐ 2: Prjónið br yfir allar l, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 3 (= rétta): Byrjið 4 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 ls l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman. UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2. FÆKKIÐ LYKKJUM Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið 5 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 3 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l snúnar slétt saman. UMFERÐ 2: Prjónið br yfir allar l, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt. MYNSTUR-1: UMFERÐ 1 (= ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sl þar til 6 l eru eftir, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sl þar til 6 l eru eftir, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 3: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, br þar til 6 l eru eftir, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 4: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, 1 l sl, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 5: Prjónið eins og umf 3. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 11, 18, 25, 32, 39 og 46 cm. STÆRÐ M: 13, 20, 27, 34, 41 og 48 cm. STÆRÐ L: 12, 20, 28, 36, 43 og 50 cm. STÆRÐ XL: 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm. STÆRÐ XXL: 12, 19, 26, 33, 40, 47 og 54 cm. STÆRÐ XXXL: 14, 21, 28, 35, 42, 49 og 56 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 237-265-279-307-335-363 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Prjónið nú frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 5 l), A.2 (= 14 l) alls 15-17-18-20-22-24 sinnum á breiddina, A.3 (= 10 l), endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 205-229-241-265-289-313 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu er fækkað um 17-17-13-13-13-13 l jafnt yfir (ATH: Lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 188-212-228-252-276-300 l. Stykkið mælist nú ca 21-21-21-21-24-24 cm. Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki 50-56-60-66-72-78 l inn frá hvorri hlið (= 88-100-108-120-132-144 l á bakstykki og 50-56-60-66-72-78 l á hvoru framstykki). Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-28-28 cm aukið út í næstu umf frá réttu 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 1-2-1-1-1-1 cm millibili 4-2-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 208-224-248-272-296-320 l. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 6 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 12 l, prjónið þar til 6 l eru eftir á undan seinna prjónamerki, fellið af næstu 12 l og prjónið út umf. Nú eru 86-94-106-118-130-142 l á bakstykki og 49-53-59-65-71-77 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-46-50-52-56-58 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað sl og aukið út um 2-2-6-4-4-2 l jafnt yfir = 48-48-56-56-60-60 l. Prjónið nú A.4 (= 12-12-14-14-12-12 l) alls 4-4-4-4-5-5 sinnum á breiddina. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 7-6-8-8-8-7 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= miðja undir ermi). Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili 13-16-14-17-17-19 sinnum til viðbótar = 76-82-86-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-47-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 12 l undir ermi = 64-70-74-80-84-88 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 312-340-372-408-440-472 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykki og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan þannig: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) 7-5-3-0-0-0 sinnum, síðan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) 8-14-20-27-29-30 sinnum. Eftir að úrtöku fyrir laskalínu er lokið eru 192-188-188-192-208-232 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu, 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 35-31-27-31-43-67 l jafnt yfir (ATH: Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 157-157-161-161-165-165 l. Prjónið nú MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið síðan laust af allar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #julianacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.