DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Juliana

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk eða DROPS ♥ You #7 með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 161-22
DROPS Design: Mynstur nr bs-079
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 8112, ísblár

eða notið:
DROPS ♥ You #7 frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 g litur nr 06, ljós blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Passið uppá að mynstrið komið yfir hvert annað eins og í A.1.

ÚTAUKNING:
Prjónið fram þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn að framan) til að koma í veg fyrir göt.

LASKALÍNA:
Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki.
FÆKKIÐ LYKKJUM Í 4. HVERRI UMFERÐ ÞANNIG:
Einungis er lykkjum fækkað í 1. umf en til þess að gatamynstrið haldi áfram þá eru útskýrðar allar 4 umferðirnar.
UMFERÐ 1: Byrjið á 5 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 3 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2: Prjónið br yfir allar l, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 3: Byrjið 4 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 ls l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman.
UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2.
FELLIÐ AF Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ ÞANNIG:
UMFERÐ 1: Byrjið 5 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 3 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2: Prjónið br yfir allar l, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt.

MYNSTUR-1:
UMFERÐ 1: Prjónið br.
UMFERÐ 2: Prjónið sl.
UMFERÐ 3: Prjónið sl.
UMFERÐ 4: Prjónið * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 5: Prjónið eins og umf 3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 224-252-266-294-322-350 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Prjónið A.1 (= 14 l) alls 16-18-19-21-23-25 sinnum á breiddina.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 192-216-228-252-276-300 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf er fækkað um 16-16-12-12-12-12 jafnt yfir = 176-200-216-240-264-288 l. Stykkið mælist nú ca 21-21-21-21-24-24 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf, síðan 1 prjónamerki eftir 88-100-108-120-132-144 l. Nú eru 88-100-108-120-132-144 l á framstykki og bakstykki. Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-28-28 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 1-2-1-1-1-1 cm millibili 4-2-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 196-212-236-260-284-308 l. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 6 l, prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki á hlið, fellið af næstu 12 l, prjónið þar til 6 l eru eftir, fellið af síðustu 6 l. Klippið frá og festið enda.
Nú eru 86-94-106-118-130-142 l á bakstykki og framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-46-50-52-56-58 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað sl og aukið út um 2-2-6-4-4-2 l jafnt yfir = 48-48-56-56-60-60 l. Prjónið nú A.4 (= 12-12-14-14-12-12 l) alls 4-4-4-4-5-5 sinnum á breiddina. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 7-6-8-8-8-7 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= miðja undir ermi). Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili 13-16-14-17-17-19 sinnum til viðbótar = 76-82-86-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-47-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 12 l undir ermi = 64-70-74-80-84-88 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 300-328-360-396-428-460 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykki og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan þannig: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 7-5-3-0-0-0 sinnum, síðan í annarri hverri umf 8-14-20-27-29-30 sinnum. Eftir úrtöku fyrir laskalínu eru 180-176-176-180-196-220 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br, 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 36-32-28-32-44-68 l jafnt yfir = 144-144-148-148-152-152 l. Prjónið nú MYNSTUR -1 – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið síðan laust af allar l.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

161-22 Juliana

larsouillebricole, France

Sweater for M.

skasia, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (79)

country flag Quynh wrote:

For the first round of increase, is this the correct way? - [BOR marker] knit 1, yo, knit to 1 stitch before marker, yo, knit 2, yo, knit to 1 stitch before marker, yo, knit 1.

03.11.2023 - 07:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Quanh, that's correct. Happy knitting!

03.11.2023 - 13:57

country flag MississippiLead wrote:

Similar

10.10.2022 - 00:39

country flag CodeiherbLEasp wrote:

Iherb promo code june

06.10.2022 - 23:24

country flag Evelyne Bachofer wrote:

Guten Tag Wenn ich bei der 5. Reihe des Diagramms starte, geht es nicht auf. Ich stricke das überzogene Abnehmen und müsste nachher 3 M sticken 1 U 3 re 1U 3 re. Das funktioniert nicht. 1 überz. Abn. 2 re, statt 3, damit zwischen den U 3 M sind. Was ist nocht richtig? Besten Dank für Ihre Hilfe. Gruss E. bachofer

13.02.2021 - 19:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bachofer, meinen Sie am Anfang A.1? die erste Abnahme in A.1 wird mit der letzte Masche von der vorrigen Runde angefangen, und dann immer die letzte Masche vom Diagram mit den 2 ersten Maschen vom nächsten Diagram stricken, so nehmen Sie 2 Maschen in jedem Diagram ab. Kann es Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!

15.02.2021 - 08:36

country flag Sztupovszki Lászlóné wrote:

Üdvözlöm, ezt a mintát csak körben lehet kötni? Oda-vissza nem? Köszönöm

02.12.2020 - 08:15

DROPS Design answered:

Üdvözlöm, inkább igen. Át lehet alakítani a körkötőtűre írt kötésmintákat. Happy knitting!

02.12.2020 - 10:44

country flag Małgorzata Urban wrote:

Dziękuję za odpowiedź, właśnie wzór się kształtuje prawidłowo, pozdrawiam

27.07.2020 - 21:21

country flag Małgorzata wrote:

Witam jeszcze raz, w schemacie w co drugim rzędzie zaznaczone sa tylko oczka prawe, rozumiem, że po przerobieniu rzędu w którym formuje się wzor, nastepny same oczka prawe i tak przez cały schemat , nie rozumiem tego oznaczenia, pozdrawiam

25.07.2020 - 22:54

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu! Dokładnie tak, sweterek jest przerabiany na drutach z żyłką na okrągło, więc jest przerabiany cały czas na prawej stronie robótki. Okrążenia parzyste są przerabiane oczkami prawymi (wtedy narzuty z poprzedniego okrążenia staną się dziurkami i uzyskasz piękny ażurowy wzór). Pozdrawiamy!

27.07.2020 - 09:33

country flag Małgorzata Urban wrote:

Witam, zrobiłam diagram A 1 dla rozmiaru S i nie zgadza mi się długość według wyjaśnienia wzoru, mój wyszedł dużo za długi, rzędy parzyste przerabiamy na prawo, proszę o pomoc

21.07.2020 - 18:19

DROPS Design answered:

Witaj Malgosiu! Jeśli nie wykonywałeś próbki na początku to tak może być, sama to przerobiłam kilka razy:) Jak nie chcesz pruć, to wykonaj krótszą część dżersejem. Problem pojawi się jednak na wysokości reglanu. Jak przerabiać poszczególne okrążenia znajdziesz w części ŚCIEG FANTAZYJNY-1. Pozdrawiamy!

22.07.2020 - 09:19

country flag Kalinda wrote:

Hallo, ich möchte das Muster gerne von oben nach unten stricken. Geht das auch? Wie muss ich das Diagramm vom Muster dann lesen?

08.06.2020 - 12:32

DROPS Design answered:

Liebe Kalinda, wahrscheinlich können Sie das Modell so anpassen, die Diagramme sollten Sie auch so anpassen (Maschenprobe stricken wäre eine gute Idee), am besten wenden Sie sich an Ihrem DROPS Laden, sicher kann man Ihnen dort weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

08.06.2020 - 16:00

country flag Laura wrote:

Buongiorno! Vi ho scritto una domanda un paio di settimane fa ma penso non l’abbiate letta.. aspetto una risposta..

16.12.2019 - 09:50

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura. Per un corretto allineamento, al terzo giro di A1, passa la 1a maglia, lavora le due m successive insieme e accavalla la m passata. Dal giro 5, la m che deve passare è l'ultima del giro precedente. Inoltre, dal giro 25, l'inizio del giro viene spostato di una m a sinistra e ai giri 65 e 71 (nelle 2 taglie più grandi) di 2 maglie a sinistra. Buon lavoro!

16.12.2019 - 10:48