Lisa Wanja Vig skrifaði:
Hvad betyder det at strikke mønster 11 gange i bredden?
08.04.2025 - 11:24DROPS Design svaraði:
Hej Lisa, du strikker pinden således: A.2 en gang, A.3 11 ganger i bredden (efter hinanden), A.4 en gang. :)
09.04.2025 - 14:25
Solveig skrifaði:
Kan man sticka hela boleron i samma mönster som ärmarna utan att ändra något annat? Mvh Solveig Eriksson
31.08.2023 - 14:42DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, ja det kan du :)
08.09.2023 - 15:28
Francoise Calandriello skrifaði:
Puis-je remplacer ce point fantaisie par le point de blé ?
17.09.2022 - 08:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Calandriello, vous pouvez probablement remplacer les différents points ajourés par un point de blé, veillez bien à bien respecter les indications pour conserver la bonne hauteur en cm (il vous faudra peut-être ajuster si besoin) - et naturellement aussi la bonne tension en largeur. Bon tricot!
19.09.2022 - 09:18
Laila Gunthel skrifaði:
Hej igen Jeg strikker med baby alpaca silk og er ikke typen der strikker særligt stramt. Jeg har valgt at strikke A5 + A2/A3/A4 + A1 og lukket af. Valgt at kører videre i small og slået 88 masker op til ærme. Det fungere fint på den måde. Jeg bemærker at der er flere som har skrevet lign. Ift. målene før mig. God aften Vh Laila
19.05.2022 - 17:06
Laila skrifaði:
Hej Jeg har strikket alt det anviste i den rigtige rækkefølge i m. Det skulle måle 42 cm. Jeg har kigget dobbelttjekket og andre har set med. Det færdige arbejde fra opslåningskanten måler kun 32 cm. Målene passer ikke🤔 Vh Laila
17.05.2022 - 16:38DROPS Design svaraði:
Hej Laila, for at få målene til at stemme er det vigtigt at du har 24 masker på 10 cm i bredden OG 32 pinde glatstrik på 10 cm i højden, det lyder til at du har flere pinde på 10 cm end de 32... Hvilket garn strikker du i?
18.05.2022 - 11:53
Jennie skrifaði:
Hei! Ja jeg har strikket alle diagrammer slik de skal være. Har gått gjennom flere ganger og har også fått andre til å sjekke sammen med meg. Stemmer fortsatt ikke. Ja det trekker seg sammen litt, men man ska vel ikke dra i strikketøyet når man måler? Har aldri vært borti det før at det skal gjøres
18.01.2022 - 10:59
Jennie skrifaði:
Har strikket bakstykket men får ikke lengden til å stemme med det som står i oppskriften. Jeg har 28 cm og det står at det skal være 36. Kan dette stemme? Har sjekket strikkefastheten min og den stemmer. Bredden stemmer..
14.01.2022 - 14:36DROPS Design svaraði:
Hei Jennie. Har du fått med deg alle diagrammene i høyden? Om du strikker str. S/M skal du strikker A.1+A.2/A.3/A.4+A.5+A.6+A.1+A.7+2 riller + A.2/A.3/A.4+A.5 = 124 pinner i høyden. Rillene mellom A.7 og A.2/A.3/A.4 og i diagram A.1 og A.5 vil trekker litt sammen, men da ser du på strikkefastheten i høyden at det vil det stemme med ca 36 cm. mvh DROPS Design
18.01.2022 - 09:23
Sandra Wever skrifaði:
Ik wil beginnen met het opzetten van 87 steken. Maar als ik dan A1 wil breien en ik trek daar de 2 kantsteken vanaf dan houd ik 85 steken over en A1 is 2 steken breed dan kom ik toch niet uit? 85 is toch niet deelbaar door 2? Alvast bedankt. Groetjes Sandra
14.08.2020 - 21:48DROPS Design svaraði:
Dag Sandra,
A.1 bestaat inderdaad uit een herhaling van 2 steken, maar in de 7e naald brei je de laatste steek voor de kantsteek recht. De overige naalden brei je steeds in zijn geheel recht of averecht.
17.08.2020 - 19:54
Carmen Cueto González skrifaði:
Gracias por compartir tantas cosas hermosas, quisiera seguir recibiendo sus patrones y modelos ,es una gran enseñanza. Gracias
13.06.2020 - 15:24
Ankie skrifaði:
Perfect! This works! I guess I hadn't tried the right combination. Thank you.
25.06.2019 - 17:36
Mette#metteshoulderpiece |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri. Stærð S-XXXL.
DROPS 160-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.8. Mynsturteikning sýnir allar umf séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og 2 l þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fyrst er bakstykkið prjónað. Síðan eru lykkjurnar teknar upp á bakstykki fyrir ermar. BAKSTYKKI: Fitjið upp 79-87-97 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið eftir mynstri A.1 innan við 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið (í 7. umf í A.1 er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju í garðaprjóni), A.1 er prjónað alls 1-1-2 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu í mynstri er aukið út um 2-0-2 l jafnt yfir = 81-87-99 l. ATH: Kantlykkjan er áfram prjónuð í garðaprjóni til loka! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú innan við kantlykkju í hvorri hlið: A.2, A.3 11-12-14 sinnum á breiddina, A.4. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.5 prjónað (í 5. umf er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju slétt). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er næsta umf prjónuð þannig: 3-0-0 l sléttprjón, A.6 6-7-8 sinnum á breiddina, 4-1-1 l í sléttprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.1 (í 7. umf er síðast l prjónuð á undan kantlykkju slétt), JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu í mynstri er fækkað um 2-0-0 l jafnt yfir = 79-87-99 l. Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: 2-2-0 l sléttprjón, A.7 9-10-12 sinnum á breiddina, 3-3-1 l sléttprjón. Þegar A.X hefur verið prjónað til loka á hæðina er endurtekið A.X 0-1-1 sinni áður en haldið er áfram þar til allt A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið nú 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 81-87-99 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið). Prjónið nú þannig: A.2, A.3 11-12-14 sinnum á breiddina, A.4. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með a.5 (í 5. umf er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju slétt). Fellið af þegar allt A.5 hefur verið prjónað 1-1-2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist 36-42-47 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Takið upp frá réttu 88-102-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í annarri hlið á bakstykki með BabyAlpaca Silk á hringprjóna nr 3. Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-1 l sl, A.8 þar til eftir eru 4-1-2 l, 3-0-1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtök með ca 2-1½-1 cm millibili 10-14-18 sinnum til viðbótar = 66-72-76 l. ATH: Þegar ekki eru nægilega margar l fyrir mynstur eru l prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti er sett prjónamerki í hvora hlið (hér endar ermasaumur neðst niðri á ermi). Þegar stykkið mælist 27 cm er aukið út um 6-4-4 l jafnt yfir í næstu umf frá réttu = 72-76-80 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið í garðaprjóni í 2 cm. Fellið laust af. Takið upp lykkjur og prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum neðst niðri þar sem kantur er í garðaprjóni og upp að prjónamerki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR: Prjónið nú kant með stroffi hringinn þannig: * Byrjið frá réttu við sauminn undir ermum (prjónið), prjónið upp 135-145-155 l með BabyAlpaca Silk á hringprjóna 2,5 meðfram ermi, yfir bakstykki og niður meðfram annarri hlið á hinni ermi að saum (prjónamerki) *, endurtakið frá *-* yfir gagnstæða hlið á jakkanum = 270-290-310 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) yfir allar l. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 l í hverri mynstureiningu með br – LESIÐ ÚTAUKNING! Nú eru 324-348-372 l. Haldið síðan áfram með (2 l sl, 4 l br) þar til prjónaðir hafa verið 4 cm frá kanti sem l voru prjónaðar upp. Aukið nú út um 1 l í hverri mynstureiningu með br alveg eins og áður = 378-406-434 l. Haldið áfram með (2 l sl, 5 l br) í 2 cm. Stroffið mælist 6 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #metteshoulderpiece eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.