Carré Isabelle skrifaði:
Bonjour. Lorsque qu'on relie la partie col( en rangs raccourcis) à l'épaule, il est indiqué de tricoter sur 4 motifs A4 de hauteur et EN MÊME TEMPS , tricoter les rangs raccourcis. Faut-il poursuivre ces rangs raccourcis sur le point mousse du col pendant toute cette hauteur de 4 motifs A4? Merci de me répondre et bonne journée.
01.09.2016 - 15:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Carré, les rangs raccourcis se tricotent sur la bordure du devant tout le long du devant, c'est-à-dire pendant que l'on tricote A.4, et on les continue ensuite jusqu'à la fin du col (en même temps que A.2 (devant gauche) et A.1 (devant droit)). Bon tricot!
01.09.2016 - 15:34
Béatrice Roy skrifaði:
Je veux savoir ,comment faire le collet et le mettre sur le devant gauche
08.05.2015 - 00:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Roy, quand les rangs raccourcis du col sont terminés, au rang suivant sur l'endroit, tricotez les mailles du col/bordure devant (au point mousse) et reprenez les mailles du devant gauche en attente. Continuez ensuite le devant gauche de haut en bas comme indiqué. Bon tricot!
08.05.2015 - 10:05Ellis skrifaði:
Dit lijkt me een erg fijne omslag om bij de voordeur te hangen voor als je snel even iets moet doen of om bijv.om te slaan als de hond er even uit moet daarom de naam Koosje ( is de naam van mijn hond;-)). Deze ga ik maken.
22.06.2014 - 13:58
Antje skrifaði:
Ganz toll. Wirkt sehr edel. Muss ich dringend nachstricken.Hier sind wieder Modelle dabei, da hat man wieder die Quwal der Wahl!!!Wunderbare Modelle habt ihr euch wieder einfallen lassen. Ganz großes Kompliment. Macht bitte weiter so :))
16.06.2014 - 17:09
Bina skrifaði:
Kuschelfaktor!
11.06.2014 - 10:32
Frisoline skrifaði:
Facile à enfiler pour faire un tour dehors quand l'hiver est à la porte.
06.06.2014 - 13:03
Kathleen skrifaði:
It looks so cozy I just want to snuggle up in it.
02.06.2014 - 21:20
Coffee Break#coffeebreakcardigan |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cloud eða DROPS Snow með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-46 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Vegna þyngdar á garninu kemur peysan til með að teygja sig við notkun. Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt! GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR: Í 10. hverri umf eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kantlykkjur að framan þannig: Prjónið vinstra framstykki þannig (með byrjun frá réttu): Prjónið yfir 11 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Prjónið hægra framstykki þannig (með byrjun frá röngu): Prjónið yfir 11 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er neðst á bakstykki, lykkjur fitjaðar upp fyrir ermar og prjónað er yfir öxl. Síðan er fellt af fyrir hálsmáli og hvor öxl / framstykki er prjónað til loka fyrir sig og fellt er af fyrir erum. Síðan er haldið áfram með framstykki. Mál í mynsturteikningu og útskýring á við um þegar stykkið liggur flatt – LESIÐ MÆLING! BAKSTYKKI: Fitjið upp 97-111-125-133 l á hringprjóna nr 8 með Cloud eða Snow. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan MYNSTUR í næstu umf þannig (rétta): STÆRÐ S: A.1 (= 7 l), * A.4 (= 11 l, A.3 (= 7) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, A.4, A.2 (= 7 l). STÆRÐ M/L: A.1 (= 7 l), * A.4 (= 11 l), A.3 (= 7 l) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.3, A.4, A.3, * A.3, A.4 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.2 (= 7 l). STÆRÐ XL/XXL: A.1 (= 7 l), A.3 (= 7 l), * A.4 (= 11 l), A.3 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.3, A.4, A.3, * A.3, A.4 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.3, A.2 (= 7 l). STÆRÐ XXXL: A.1 (= 7 l), * A.4 (= 11 l), A.3 (= 7 l) *, endurtakið frá *-* 5 sinum til viðbótar, A.4, A.2 (= 7 l). Haldið svona áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6-6-7-7 heilar mynstureiningar á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist nú ca 45-45-52-52 cm. Í næstu umf frá réttu er prjónað A.3 yfir A.1 og A.2 í hvorri hlið, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 9 l í lok næstu 2 umf fyrir ermar = 115-129-143-151 l. Nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og garðaprjón yfir síðustu 9 l í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 4 mynstureiningar (A.4 og A.3) á hæðina frá þeim stað þar sem nýjar l voru fitjaðar upp fyrir ermi (= alls 10-10-11-11 mynstureiningar). ATH! Í stærð XXXL heldur áfram og að auki 6 umf með mynstri eftir 4. mynstureiningar á hæðina. Prjónið nú yfir fyrstu 52-59-66-70 l. Setjið prjónuðu l á þráð (= hægri öxl/framst). Fellið síðan af næstu 11 l í A.4 fyrir hálsmáli = 52-59-66-70 l eftir fyrir vinstri öxl/framst. Klippið frá og geymið stykkið. Stykkið mælist nú 73-73-80-84 cm. Setjið prjónamerki hér! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú vinstri kraga áður en haldið er áfram á vinstri öxl/framst. VINSTRI ÖXL/FRAMSTYKKI: Fitjið upp 11 l á hringprjóna nr 8 með Cloud eða Snow. Prjónið garðaprjón fram og til baka, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir frá réttu: * 2 umf yfir allar l, 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 6 l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 8 cm frá því þar sem er styst – stillið af að næsta umf er umf frá réttu! Prjónið nú 1 umf í garðaprjóni yfir þessar 11 l, prjónið inn l frá vinstra framstykki á sama prjón = 63-70-77-81 l. Haldið áfram með mynstur og garðaprjón eins og áður þar til prjónaðar hafa verið alls 4 mynstureiningar af A.4 á hæðina frá prjónamerki á öxl (ATH! Í stærð XXXL eru prjónaðar 4 mynstureiningar + 4 umf), JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Í byrjun á næstu umf frá röngu, fellið af síðust 9 l garðaprjón = 54-61-68-72 l fyrir framstykki. Í næstu umf frá réttu er prjónað eins og áður þar til 7 l eru eftir, prjónið A.2 yfir þær 7 l sem eftir eru. Haldið áfram með mynstur og stuttar umferðir yfir kant að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 6-6-7-7 mynstureiningar á hæðina eftir að felldar voru af l fyrir ermi (= alls 10-10-11-11 mynstureiningar + 4 umf í XXXL frá prjónamerki á öxl) prjónið nú 6 umf í garðaprjóni yfir allar l. Fellið laust af. HÆGRI ÖXL/FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstri öxl/framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fitjið upp l fyrir sjalkraga og prjónið stuttar umf með byrjun frá röngu. Þegar sjalkraginn mælist 8 cm þar sem hann er stystur – stillið af að síðasta umf sé frá röngu – prjónið l af þræði (hægri öxl/framstykki) frá röngu = 63-70-77-81 l á prjóni. Haldið síðan áfram eins og á vinstra framstykki með mynstri – Munið eftir STUTTAR UMFERÐIR! Þegar allar mynstureiningar fyrir ermi hafa verið prjónaðar, fellið af síðustu 9 l fyrir ermi frá réttu. Prjónið nú A.1 yfir síðustu 7 l í hlið (þ.e.a.s. yfir A.3). Haldið svona áfram þar til allar mynstureiningarnar hafa verið prjónaðar. Prjónið 6 umf garðaprjón og fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Brjótið peysuna saman við prjónamerki á öxl og saumið sauma undir ermum fallega saman með því að sauma 1 og 1 l saman (sjá mynsturteikningu: Saumið A við A og B við B). Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coffeebreakcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.