DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 157-45
DROPS Design: Mynstur nr ks-095
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175-200-200-225 gr litur nr 22, öskugrár
50-75-75-75-75-100 gr litur nr 09, perlugrár
50-50-75-75-75-100 gr litur nr 06, ljós grágrænn
50-50-75-75-75-75 gr litur nr 07, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LITIR Á RÖNDUM (á við um fram- og bakstykki):
1 þráður öskugrár er prjónaður saman með litum í röndum.
Rönd 1: Ljós gráblár þar til stykkið mælist: 24-24-25-25-26-27 cm.
Rönd 2: Ljós grágrænn þar til stykkið mælist: 47-48-49-51-52-53 cm.
Rönd 3: Perlugrár til loka.

LITIR Á RÖNDUM (á við um ermi):
1 þráður öskugrár er prjónaður saman með litum í röndum.
Rönd 1: Ljós gráblár þar til stykkið mælist 19 cm.
Rönd 2: Ljós grágrænn þar til stykkið mælist 38 cm.
Rönd 3: Perlugrár til loka.

KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN:
Frá réttu: * 2 l br, 2 l sl, 26 l br, 2 l sl, 2 l br *
Frá röngu: * 2 l sl, 2 l br, 26 l sl, 2 l br, 2 l sl *

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í stykkjum fram og til baka á hringprjóna og saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 107-119-125-137-149-155 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði í litnum öskugrár + 1 þráður LITIR Á RÖNDUM – sjá útskýringu að ofan (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 1 umf sl frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 17-21-21-25-27-25 l jafnt yfir = 90-98-104-112-122-130 l. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 4-4-4-4½-4½-4½ cm millibili alls 7-7-7-6-6-6 sinnum = 76-84-90-100-110-118 l. Þegar stykkið mælist 40 m er aukið út um 11-12-12-14-16-17 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 87-96-102-114-126-135 l. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 3 l 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 l 1-3-4-4-5-6 sinnum og 1 l 3-3-3-4-4-5 sinnum = 71-72-74-78-80-83 l. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 17-18-18-20-22-23 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 26-26-27-28-28-29 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 75-81-87-93-99-105 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 34 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði í litnum öskugrár + 1 þræði LITIR Á RÖNDUM – sjá útskýringu að ofan (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-9-11-12-14 l jafnt yfir = 71-75-78-82-87-91 l.
Prjónið nú sléttprjón með 34 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan – fyrir miðju að framan og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki = 64-68-71-76-81-85 l. Þegar stykkið mælist 40 cm er aukið út um 6-5-5-6-7-9 l jafnt yfir = 70-73-76-82-88-94 l. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá röngu eins og á bakstykki = 62-61-62-64-65-68 l. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm eru felldar af fyrstu 26-26-27-28-28-29 l frá röngu = 36-35-35-36-37-39 l eftir á prjóni. Prjónið út umf. Prjónið síðan kraga í garðaprjóni þannig (1. umf = rétta): * prjónið fram og til baka yfir allar l, prjónið fram og til baka yfir fyrstu 18-18-18-18-18-18 l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 11-11-11-12-12-13 cm frá öxl (mælt þar sem stykkið er minnst). Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 50-50-50-56-56-56 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði í litnum öskugrár + 1 LITIR Á RÖNDUM – sjá útskýringu að ofan (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-6-12-10-10 l jafnt yfir = 42-42-44-44-46-46 l. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 9-7-9-8-6-8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 11-14-15-18-19-22 sinnum = 64-70-74-80-84-90 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 48-48-47-46-44-44 cm - ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla – fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 4 l 1 sinni, síðan eru felldar af 2 l 7-8-9-10-11 sinnum, 1 l 2 sinnum, fellið síðan af allar l. Stykkið mælist nú ca 57-58-58-58-58-58 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman kraga við miðju að aftan – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið kraga við hálsmál aftan við hnakka með smáu spori.

VASI:
Fitjið upp 31-31-34-34-38-38 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði í litnum öskugrár + 1 þræði af í litnum ljós gráblár (= 2 þræðir) og prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist ca 16-16-18-18-20-20 cm. Prjónið 4 umf garðaprjón, fellið laust af.
Prjónið annan vasa á sama hátt.
Staðsetjið vasa á hvort framstykki ca mitt á milli hliðar og kants að framan með neðrikant á vasa ca 7 cm yfir kanti í garðaprjóni (mátið peysuna og stillið af eftir eigin ósk). Saumið vasana niður með lykkjuspori.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Elisabeth wrote:

Hei, ønsker å bytte 2 tråder med kid silk med 1 trå kid silk og en trå drops sky. Hvor mange gram av hvert garn trenger jeg i str L?

23.01.2024 - 13:05

DROPS Design answered:

Hei Elisabeth, Drops Kid Silk tilhører garngruppe A. Drops Sky tilhører garngruppe B som er litt tykkere. Du må derfor justere pinne størrelse (med en større størrelse) for å få riktig strikkefasthet. Da kan du bytte ut halvparten av garnmengdene med Drops Sky. Lykke til og god fornøyelse!

24.01.2024 - 06:56

country flag Signe wrote:

Hvorfor strikke ermene fram og tilbake, istedenfor på rundpinne?

13.01.2024 - 22:31

DROPS Design answered:

Hej Signe, det gør du som du vil :)

16.01.2024 - 12:19

country flag Heck Theresia wrote:

Ich brauche ihre Hilfe \r\nIch möchte das Modell „ everything after“ stricken!\r\nDa gibt es etwas Verwirrung bei den Farben!\r\n\r\nFarbe 22 ist klar!\r\nFarbe 06 :Anleitung hell graugrün im Shop blauer Nebel \r\nFarbe 07 : Anleitung hell grau blau im Shop hell himmelblau \r\nFarbe 09 Anleitung perlgrau im Shop hell Lavendel \r\n\r\nWelche Farbe ist denn jetzt die Richtige???\r\n\r\nÜber eine aufklärende Antwort würde ich mich sehr freuen!\r\n\r\nTh. Heck

15.10.2023 - 14:02

DROPS Design answered:

Liebe Theresia, es kommt allein auf die Farbnummern an. Die Anleitung ist schon etwas älteren Datum, die Farbbezeichnungen können sich manchmal ändern, die Farbnummern bleiben aber immer gleich, wenn der Farbton grundsätzlich gleich bleibt (er kann auch über die Jahre etwas abweichen). Achten Sie also einfach auf die Nummer. Viel Spaß beim Stricken!

16.10.2023 - 09:20

country flag Jude Crawshaw wrote:

Just to be clear, towards the end of right front piece, between the asterisk’s (* *) does this mean knit 1 ridge back and forth then l ridge of just 18 stitches back and forth and then repeat these 2 ridges till given measurements arrived at?

18.11.2022 - 13:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Crawshaw, you will work 1 ridge over all stitches, 1 ridge over the first outermost 18 stitches (towards mid front) and repeat these 4 rows/2 ridges until the shortest side measures ca 11-12-13 cm from shoulder (the outermost side towards mid front will be double so long). Happy knitting!

18.11.2022 - 15:39

country flag Beatriz wrote:

Bonjour! J'aime beaucoup ce modèle, mais comme beaucoup d'autres tricoteuses le disent, je ne vois pas les rayures, est-possible d'avoir une autre photo? Et puis, le coloris 9 n'existe plus, le 6 et le 7 me semblent ne plus correspondre aux couleurs d'origine, quels coloris dois-je prendre pour les remplacer? Merci!

29.10.2022 - 20:31

DROPS Design answered:

Bonjour Beatriz, nous n'avons malheureusement pas d'autres photos de ce modèle et nous n'avons plus la veste; pour toute assistance au choix des couleurs (pour celle qui est désormais épuisée- sinon référez-vous au numéro de la couleur, les noms peuvent être ajustés avec le temps), n'hésitez pas à contacter votre magasin, il saura vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

31.10.2022 - 08:46

country flag Jude Crawshaw wrote:

Hi there, for the pattern “Everything After” /ks 095. I just wish to knit this pattern in one colour from yarn group c as suggested, specifically Drops Air, how many balls will l need please? Thanking you in advance of your welcome response.

10.09.2022 - 14:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Crawshaw, use the amount of yarn in colour no 22 as a basis, and double this amount of yarn (you work with 2 strands), then use our yarn converter - make sure to choose "2 threads" for Kid-Silk. Happy knitting!

12.09.2022 - 09:34

country flag Birgit Müller wrote:

Hallo, meine Frage bezieht sich auf den Kragen. Da steht über alle Maschen stricken aber auch "über die ersten 18 Maschen". Was mache ich also/verstehe ich falsch? Vielen Dank im Voraus Nun den Kragen kraus re wie folgt stricken (1. R = Hin-R): * hin und zurück über alle M, hin und zurück über die ersten 18-18-18-18-18-18 M *, von *-* wdh, bis der Kragen eine Länge von ca. 11-11-11-12-12-13 cm ab der Schulter hat (gemessen an der kurzen Seite). Abketten.

09.10.2021 - 19:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, für den Kragen stricken Sie verkürzten Reihen, damit die Außenseite länger als die Innenseite wird. Beim rechten Vorderteil beginnen Sie mit einer Hinreihe: *2 Reihen (= 1 Krausrippe) über alle Maschen stricken, 2 Reihen (= 1 krausrippe) über die ersten 18 Maschen stricken*, und diese 4 Reihen wiederholen bis der Kragen ca 11-12-13 cm (siehe Größe) ab Schulter misst. Viel Spaß beim stricken!

11.10.2021 - 07:30

country flag Nina wrote:

Hallo Drops Team, werden die Taschen tatsächlich mit Ndl. Nr. 4,5 gestrickt anstatt mit Ndl. Nr. 5 wie der glatt rechte Teil der Jacke auf die die Tasche aufgenäht wird? Falls die Taschen mit Ndl. Nr. 4,5 gestrickt werden, wird dann beim Aufnähen trotzdem der Maschenstich verwendet und ein Stich der Tasche an einen (größeren) Stich der Jacke angenäht? Vielen Dank schon Mal für eure Antwort!

14.03.2021 - 23:03

DROPS Design answered:

Liebe Nina, die Taschen werden mit den Nadeln 4,5 gestrickt - die glatt rechte Seite ist außenseite - aber gerne können Sie die linke Seite außen nähen. Beim Aufnähen benutzen Sie den Maschenstich, anpassen Sie nur, so daß es nicht zu eng/stram wird. Viel Spaß beim stricken!

15.03.2021 - 09:07

country flag Anna Maria Vitulano wrote:

Buongiorno. Mi appresto ad iniziare questo lavoro con questo bellissimo filato. Dovrebbe però risultare meno lungo, cioè 73 cm in totale. Come fare? Grazie mille per l'aiuto.

02.03.2021 - 07:31

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, potrebbe lavorare la parte centrale più corta; per un'aiuto più preciso può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

03.03.2021 - 22:56

country flag Monika Vonier wrote:

Ich vermisse im Diagramm die cm Angabe für die untere Breite des Vorderteiles. Größe S

15.04.2019 - 06:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Vonier, diese Masse wird nich angegeben, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann bekommen Sie die genauen Maßen. Viel Spaß beim stricken!

23.04.2019 - 10:06