Bente Tøttrup skrifaði:
I har glemt at lægge målskitsen af trøjen ud den der angiver brystvidde o.s.v
14.07.2014 - 13:46DROPS Design svaraði:
Hej Bente. Vi har tilføjet skitsen nu, så mønstret er komplet. Tak for beskeden.
14.07.2014 - 16:30
Véronique skrifaði:
Superbement beau! Et ma fille a bien sûr craqué !!! Merci pour ces beaux modèles. Un nom..... Ruddolf !
11.07.2014 - 12:53
Grace Lynn skrifaði:
My possibe appellation for ths fine winter sweater is Snowy Hooves or Winter Prance.
05.07.2014 - 04:28
Janina skrifaði:
Ohhh ich habe mich verliebt und ein Projekt für meine Sommersemesterferien entdeckt 😍
27.06.2014 - 15:29
Martina Herold skrifaði:
Norweger dürfen nicht fehlen. Deshalb: Bitte einstellen !!!
15.06.2014 - 21:02
Miiru skrifaði:
Beautiful winter knit
13.06.2014 - 07:59
Mady skrifaði:
Très beau jacquard du Nord. On en redemande !
09.06.2014 - 17:28
Felicitas Bach skrifaði:
Da freut man sich ja schon wieder auf den Winter :)
08.06.2014 - 20:55
Funy skrifaði:
Très joli modèle
08.06.2014 - 16:05
Daniela Massari skrifaði:
Divertente questo modello mi piace
04.06.2014 - 17:58
Silver Stag#silverstagsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa úr DROPS Karisma með hringlaga berustykki og hreindýramynstri, prjónið ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-23 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1- A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við hliðar og ermar): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og 1 l sl þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING (á við um hliðar): Aukið út alls 4 l á prjóninn. Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 á hringprjóna nr 3 með litnum milligrár. Prjónið stroff þannig (2 l br, 2 l sl) þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 0-4-8-20-24-28 l jafnt yfir = 88-96-104-120-128-136 l. Prjónið nú þannig: A.1 (= 8 l) 11-12-13-15-16-17 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 264-288-312-360-384-408 l í umf. Haldið áfram með 3-5-9-5-7-11 umf sléttprjón með litnum milligrár. ATH: Í stærð S, L, XL, XXXL er endað á 24 l (= 1 mynstureining) áður en síðasta umf er prjónuð til loka! Þetta er nú byrjun á umf! Mynstrið verður nú staðsett strax á eftir l skiptast fyrir ermar og fram- og bakstykki. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 37-40-46-52-58-64 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 74-80-92-104-116-128 l (= framstykki), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 37-40-46-52-58-64 l (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 168-180-204-228-252-276 l fyrir fram- og bakstykki. Prjónið nú A.2 (= 12 l) yfir allar l í umf. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni með litnum milligrár. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku annan hvern cm 2 sinum til viðbótar = 156-168-192-216-240-264 l. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 cm hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 2 sinnum til viðbótar = 168-180-204-228-252-276 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og aukið út um 20-24-24-28-28-32 l jafnt yfir = 188-204-228-256-280-308. Prjónið síðan stroff þannig: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar prjónaðir hafa verið 4 cm með stroffi er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Prjónið fyrst mynstur, síðan heldur ermin áfram með litnum milligrár. Setjið til baka l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 4. Nú eru 58-64-64-76-76-76 l fyrir ermi. Prjónið 1 umf sléttprjón. Fitjið síðan upp 10 l undir ermum = 68-74-74-86-86-86 l. Setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l. Prjónið síðan ermina hringinn. Prjónið nú A.2. ATH: Passið uppá að 2 miðju-l í mynstri (sjá ör) eru 2 miðju-l á ermi! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með A.3. ATH: Stillið mynstur af þannig að miðju l í mynstri (sjá ör) er ein af 2 miðju-l á ermi, JAFNFRAMT byrjar úrtaka undir ermi – Munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-2½-2½-2½-2½-2½ cm millibili 9-12-12-12-12-12 sinnum til viðbótar = 48-48-48-60-60-60 l. Þegar ermin mælist 38 cm er A.4 prjónað. ATH: Stillið mynstrið af þannig að miðju-l í mynstri (sjá ör) er ein af 2 miðju l á ermi. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og aukið út um 4-8-8-0-4-4 l jafnt yfir = 52-56-56-60-64-64 l. Prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverstagsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.