DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Stag Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með hringlaga berustykki og hreindýramynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-24
DROPS Design: Mynstur nr u-740
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
500-550-600-650-700-800 gr litur nr 21, milligrár
100-150-150-150-150-200 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS SILFURTALA, NR 534: 8 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1- A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við hliðar og ermar):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og 1 l sl þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út alls 4 l á prjóni.
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 90-98-106-122-130-138 l á hringprjóna nr 4 með litnum milligrár. Prjónið 1. umf þannig (= rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 266-290-314-362-386-410 l á prjóni. Haldið áfram með 3-5-9-5-7-11 umf sléttprjón (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið) með litnum milligrár.
Næsta umf frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-41-47-53-59-65 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 74-80-92-104-116-128 l (= framstykki), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 38-41-47-53-59-65 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 170-182-206-230-254-278 l fyrir fram- og bakstykki. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.2 (= 12 l) þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni með litnum milligrár. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2 cm millibili 2 sinum til viðbótar = 158-170-194-218-242-266 l. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 170-182-206-230-254-278 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og aukið út um 22-26-26-30-30-34 l jafnt yfir = 192-208-232-260-284-312 . Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, 2 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið hefur verið prjónað í 4 cm.

ERMI:
Setjið til baka l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 4. Nú eru 58-64-64-76-76-76 l fyrir ermi. Prjónið 1 umf sléttprjón. Fitjið síðan upp 10 l undir ermum = 68-74-74-86-86-86 l. Setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l. Prjónið síðan ermina hringinn. Prjónið nú A.2. ATH: Passið uppá að 2 miðju-l í mynstri (sjá ör) eru 2 miðju-l á ermi! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með A.3. ATH: Stillið mynstur af þannig að miðju l í mynstri (sjá ör) sé ein af 2 miðju-l á ermi, JAFNFRAMT í 1. umf í A.3 byrjar úrtaka undir ermi – Munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-2½-2½-2½-2½-2½ cm millibili 9-12-12-12-12-12 sinnum til viðbótar = 48-48-48-60-60-60 l. Þegar ermin mælist 38 cm er A.4 prjónað. ATH: Stillið mynstrið af þannig að miðju-l í mynstri (sjá ör) sé ein af 2 miðju l á ermi. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og aukið út um 4-8-8-0-4-4 l jafnt yfir = 52-56-56-60-64-64 l. Prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kanturinn að framan er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 3. Prjónið upp ca 144 til 168 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri kanti að framan með milligrár. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l br og 1 l garðaprjón. Frá réttu byrjar og endar stroff með 2 l sl og 1 l garðaprjón. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur en eftir 1 cm er fellt af fyrir 7 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í br mynstureiningu séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = Prjónið 2 l br saman og sláið uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 6-7 cm ofan frá (það einnig að vera 1 hnappagat í hálsmáli) og neðsta ca 5-6 cm frá kanti að neðan.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 96-100-104-108-112-116 l yfir kant að framan og uppfitjunarkantinn á hringprjóna nr 3 með litnum milligrár. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir á prjóni, 2 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar hálsmálið mælist 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri kant að framan með því að prjóna 2 l slétt saman og slá 1 sinni uppá prjóninn. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2016
BERUSTYKKI:..Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 266-290-314-362-386-410 l á prjóni. Haldið áfram með 3-5-9-5-7-11 umf sléttprjón (með 1 kantlykkju með garðaprjóni á hvorri hlið) með milligráum.

Mynstur

symbols = milligrár
symbols = natur
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf).
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Vittoria wrote:

Buongiorno. Potrei sapere, cortesemente mella taglia s quante renne ci sono sullo sperone?

20.11.2023 - 17:33

DROPS Design answered:

Buonasera Vittoria, sono 11 renne per la taglia S. Buon lavoro!

22.11.2023 - 18:08

country flag Ina wrote:

Hej, diagrammet må være forkert. Jeg ender ikke op med de 362 masker efter jeg har strikket diagram A1. Snare 341 masker. Gør jeg noget galt, og hvordan kan det være at der er lige mange udtag om du strikker S eller XL?

06.09.2023 - 09:59

country flag Dagmar wrote:

Hallo, ich moechte den Rumpfteil der Jacke ohne abnahmen stricken. Ist das moeglich oder komme ich da mit dem muster nicht klar? Vielen Dank im Vorraus fuer die Antwort.

28.10.2019 - 15:34

DROPS Design answered:

Liebe Dagmar, wenn Sie keine Ab- nor Zunahmen beim Rumpfteil möchten, dann beachten Sie, die Maschenanzahl beim Bündchen unten richtig anzupassen, damit es mit 2 M re anfängt und endet. Viel Spaß beim stricken!

04.11.2019 - 13:05

country flag Angela wrote:

Hi, I’m knitting the m size, on row 5, after all the pattern repeats are completed, do I work a YO before the final garter stitch edge stitch?

05.07.2019 - 16:58

DROPS Design answered:

Dear Angela, no, there is no need to make YO - YO is only at the beggining od pattern repeat. Happy knitting!

07.07.2019 - 09:00

country flag Tania Berardi wrote:

Buon pomeriggio. Sto per iniziare questa giacca e se non sbaglio devo iniziare dall'alto verso il basso non in tondo ma avanti e indietro. Il mio campione e' di 19 maglie per 27 ferri corrispondenti a cm 10 x 10. La taglia che devo fare e' la L. Quante maglie devo avviare per iniziare dallo sprone ? Grazie

22.01.2016 - 16:05

DROPS Design answered:

Buongiorno Tania, per poter seguire le istruzioni indicate deve ottenere lo stesso campione: provi a utilizzare un ferro di mezza misura in meno e rifaccia il campione per vedere se corrisponde. E' corretto, il cardigan è lavorato avanti e indietro sui ferri a partire dallo sprone. Buon lavoro!

23.01.2016 - 12:51

country flag Åse Nymann wrote:

Hei skal strikke denne cardigan men lurer på hvordan det gjørs i begynnelsen uten at det ruller seg. kan man strikke denne nedenfra og opp?

06.11.2015 - 14:16

DROPS Design answered:

Hej Åse, hvis kanten ruller kan den dampes let bagefter. Man kan strikke den nedenfra og op, men vi kan ikke hjælpe dig med at lave opskriften om og vi kan ikke svare hvis du kører fast. God fornøjelse!

20.11.2015 - 15:04

country flag Maja wrote:

Hallo, ich arbeite den Cardigan in Größe S. Wenn ich über die 68 Maschen des Ärmel das Muster A1 arbeiten soll, bleiben 8 Maschen übrig. Was mache ich mit diesen? Schon einmal vielen Dank!

03.10.2015 - 15:03

DROPS Design answered:

Die Antwort finden Sie unten beim Eintrag vom 20.09.

04.10.2015 - 22:09

country flag Maja wrote:

Hallo, ich arbeite den Cardigan in Größe S. Wenn ich über die 68 Maschen des Ärmel das Muster A1 arbeiten soll, bleiben 8 Maschen übrig. Was mache ich mit diesen? Schon einmal vielen Dank!

03.10.2015 - 14:27

DROPS Design answered:

Antwort siehe unten! :-)

04.10.2015 - 22:13

country flag Maja wrote:

Hallo, ich arbeite den Cardigan in Größe S. Wenn ich über die 68 Maschen des Ärmel das Muster A1 arbeiten soll, bleiben 8 Maschen übrig. Was mache ich mit diesen? Schon einmal vielen Dank!

20.09.2015 - 13:36

DROPS Design answered:

Antwort siehe unten! :-)

20.09.2015 - 14:12

country flag Maja wrote:

Hallo, ich arbeite den Cardigan in Größe S. Wenn ich über die 68 Maschen des Ärmel das Muster A1 arbeiten soll, bleiben 8 Maschen übrig. Was mache ich mit diesen? Schon einmal vielen Dank!

20.09.2015 - 03:40

DROPS Design answered:

Diese M stricken Sie auch im Muster A.2 (nicht A.1), auch wenn es nicht aufgeht. Sie müssen das Muster von der oberen Ärmelmitte aus ausrechnen, so wie es in der Anleitung beschrieben ist, dann können Sie nach rechts und links zur unteren Ärmelmitte hin die M abzählen und ausrechnen, welche M Sie dann noch an der unteren Ärmelmitte stricken müssen. Es fällt nicht so auf, dass das Muster nicht aufgeht, da es ja unter dem Ärmel ist. Außerdem machen Sie dann ja auch Ärmelabnahmen, sodass an der unteren Ärmelmitte weitere Maschen verschwinden.

20.09.2015 - 12:56