Betina Kock skrifaði:
Hælindtagning, sidste række, man skal strikke til der er en maske mindre på pinden, hvordan skal jeg kunne ende på 12 masker når jeg starter med 8 masker???
10.11.2014 - 17:25DROPS Design svaraði:
Hej Bettina. Du strikker saa haelen over 24 m. Du starter med at tage ind til haelen og strikker til der er 7-7-8 m tilbage paa pinden, tager ind og vender. Dvs, du starter altsaa med 24 m og ender med 12.
14.11.2014 - 16:47
Ina skrifaði:
Seriøst for en dårlig oppskrift!! Unødvendig tungvint beskrevet med a.1 meg her og a.e meg der! "Strikk litt her, SAMTIDIG som du strikker der, MENS du leser FELLETIPS på første side, og husk for all del: 1, 2, (0), 6, (x)...." Disse blir IKKE strikket igjen sier jeg bare!
26.10.2014 - 08:59
Anita Ales skrifaði:
Ik krijg het niet voor elkaar op de manier zoals aangegeven. Het wordt bij mij niet mooi. Misschien doe ik iets verkeerd maar als ik het doe zoals ik heb aangegeven krijg ik wel mooie kabels.
24.10.2014 - 10:19DROPS Design svaraði:
Wij kunnen vanaf hier niet beoordelen wat u dan verkeerd doet, maar onze tekening en de uitleg komt overeen met de foto. Wel fijn om te horen dat u er op uw manier goed uitkomt, succes met breien verder.
24.10.2014 - 11:50
Anita skrifaði:
Er zit een foutje in A1. Het kabelen gaat niet goed als je breid zoals aangegeven. Wat voorlangs gekabeld staat moet achter langs gekabeld worden en omgekeerd.
19.10.2014 - 16:36DROPS Design svaraði:
We hebben het patroon gecontroleerd en het is correct. De kabels gaan zo de goede kant op.
21.10.2014 - 11:21
Annette skrifaði:
Sorry, but that's the point. For example, explain row 3 to me? Do I pearl or knit? I am unable to tell! Maybe this seems obvious and I'm dumb, but it doesn't make sense to me. Especially since the pattern is in the round.
18.09.2014 - 16:44DROPS Design svaraði:
Dear Annette, on row 3 in A.1, you will K the st to both cables. When both cables go back towards middle of diagram, you will have to P the st (1 P st more each side). Happy knitting!
19.09.2014 - 09:05
Annette skrifaði:
I do not understand one part of the pattern. In the chart, part A1, it states 'slip 1 st on cable behind piece, K2, ***P/K1*** from cable needle.' I don't understand the part between the *'s. How do I know when it's knit and when it's pearl?
17.09.2014 - 21:56DROPS Design svaraði:
Dear Anette, when you are working the cables in A.1 (3rd and 4th text in diagram), you will have either to P or to K the st from cable needle or the next st following the pattern. Happy knitting!
18.09.2014 - 08:37
Anja Løvaas skrifaði:
Får ikke diagram a1 til å stemme med resten av mønstrene
25.08.2014 - 18:10
Ilva skrifaði:
Bellissimi ma complicati, meghlio toglire qualche motivo.
17.06.2014 - 08:29Gisele Richer skrifaði:
Je suis du Canada. Encore ici, le confort pour ces journées froides d'hiver.
08.06.2014 - 00:21
Walk With Me#walkwithmesocks |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með köðlum úr DROPS Nepal. Stærð 35-43.
DROPS 156-51 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki/A.3 þannig: 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki/A.5 þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 7-7-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 7-7-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-12-12 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 60-64-68 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið * 1 umf br, 1 umf sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 8 l jafnt yfir = 52-56-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið nú 5-7-9 l sl, A.3 (= 7 l) – lesið útskýringu að ofan, A.2 (= 6 l), A.1 (= 16 l), A.4 (= 6 l), A.5 (= 7 l), endið á 5-7-9 l sl. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 að A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.a endurtekið að A.d til loka. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.e til loka. Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað – LESIÐ ÚRTAKA að ofan – í mismunandi stærðum: STÆRÐ 35/37: Þegar stykkið mælist 14 og 20 cm er fækkað um 1 l á undan A.3 og 1 l á eftir A.5 = 44 l á eftir öllum úrtökum. ATH: Fækkið um 4 l í mynstri A.1 – sjá mynsturteikningu. STÆRÐ 38/40: Þegar stykkið mælist 7, 16 og 21 cm er fækkað um 1 l á undan A.3 og 1 l á eftir A.5 = 46 l á eftir öllum úrtökum. ATH: Fækkið um 4 l í mynstri A.1 – sjá mynsturteikningu. STÆRÐ 41/43: Þegar stykkið mælist 7-16-21 og 26 cm er fækkað um 1 l á undan A.3 og 1 l á eftir A.5 = 48 l á eftir öllum úrtökum. ATH: Fækkið um 4 l í mynstri A.1 – sjá mynsturteikningu. Prjónið þar til stykkið mælist 26-27-28 cm. Haldið nú eftir fyrstu 10-11-12 l á prjóni (þ.e.a.s. 3-4-5 l sl og A.3), setjið eftirfarandi 24 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-11-12 l á prjóni (þ.e.a.s. A.5 og 3-4-5 l sl) = 20-22-24 l fyrir hæl. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l hvoru megin við stykkið með því að prjóna 2 l í fyrstu og síðustu l = 22-24-26 l. Prjónið 1 l br, A.3, sléttprjón og A.5 og endið á 1 l br fram og til baka yfir hæl-l í 5½ cm. Setjið 1 prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Passið að mynstrið endi fallega. Nú er prjónað sléttprjón yfir allar l og lykkjum fækkað fyrir hæl – LESIÐ HÆLÚRTAKA. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-11 l hvoru megin við hæl og 24 l af þræði eru settar aftur til baka á prjóninn = 54-56-58 l. Prjónið 5-6-6 l sl (= miðja undir fæti) = byrjun á umf. Prjónið nú JAFNFRAMT því að það eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig: 14-15-16 l sl, setjið 1. prjónamerki, 1 l br, A.2, A.e, A.4, 1 l br, setjið 2. prjónamerki, 14-15-16 l sl. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er fækkað um 1 l á undan 1. prjónamerki og 1 l á eftir 2. prjónamerki í hverri umf alls 9 sinnum = 36-38-40 l (= 10-12-14 l sléttprjón undir fæti). Prjónið þar til stykkið mælist 19-21-23 cm frá prjónamerki (= 3 cm eftir). Prjónið nú sléttprjón yfir l í A.e, stillið af að endað er með 1 hálfri mynstureiningu á A.e á hæðina, einnig má prjóna sléttprjón aðeins fyrr. A.2 og A.4 halda áfram til loka. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 5-6-7 l sl, setjið 1. prjónamerki, 1 l br, prjónið A.2 JAFNFRAMT er 2. prjónamerki sett á milli 5. og 6. l, prjónið sl yfir fótinn (= 14 l), A.4 JAFNFRAMT er 3. prjónamerkið sett á milli 1. og 2. l, 1 l br, setjið 4. prjónamerki, endið á 5-6-7 l sl (= 14 l ofan á fæti, 10-12-14 undir fæti og 6 l í hvorri hlið). Fækkið nú lykkjum fyrir tá í næstu umf þannig: Fækkið um 1 l á eftir 2. prjónamerki ofan á fæti og 1 l á undan 3. prjónamerki ofan á fæti, endurtakið úrtöku í hverri umf alls 2-1-0 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 10-12-14 l ofan á fæti og 10-12-14 l undir fæti (= 32-36-40 l alls). Í næstu umf er fellt af þannig: Fellið af 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki og 1 l á eftir 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 úrtökur). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 4-5-6 sinnum JAFNFRAMT í síðustu úrtöku er prjónuð kaðla-l í A.2 og A.4 þannig: Prjónið 2 l snúnar saman, 2 l slétt saman. Eftir alla úrtöku eru 12 l á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walkwithmesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.