Catia skrifaði:
Molto particolare. modello adatto sia per giorno che per la sera. mi piace molto
12.06.2014 - 15:11
Mimi55 skrifaði:
Modèle convenant pour toutes les tailles....simple et très joli rendu, impression de légèreté par le petit jour comme un pointillé...à adopter
11.06.2014 - 13:19
Larrodé Regine skrifaði:
J'adore
10.06.2014 - 20:49
Allis Aresdatter skrifaði:
Nice!
10.06.2014 - 16:15
Tina skrifaði:
Den må jeg bare igang med. Den vil være hyggelig at putte i på kølige dage
10.06.2014 - 11:57
Kitty67 skrifaði:
Toll!
08.06.2014 - 17:31Jutta Poetz skrifaði:
The perfect cuddly piece to wear with a pair of jeans
07.06.2014 - 07:01Jutta skrifaði:
A very beautiful piece, and perfect choice of material and colour :)
07.06.2014 - 06:41
Marleen skrifaði:
Ik blijf vallen voor dit soort modellen, heb er zeker al 5, maar er kan er nog altijd eetje bij.
03.06.2014 - 19:38Nita Bailey-sands skrifaði:
You have a lot of really great pieces but my daughter wants me go pass on this"is so awesome" and it really is
03.06.2014 - 05:48
First in Line#firstinlinecardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 156-25 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mysnturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Mynsturteikning passar ekki á hæðina þegar hún er endurtekin, en gataumferðin heldur áfram beint upp, eins og áður, JAFNFRAMT er byrjað á nýrri gataumferð í 20. hverri umf í hvorri hlið á stykki. Þ.e.a.s í 1. gataumferð í A.1 byrjar 4 umf á undan hinum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. PEYSA: Fitjið upp 228-228-252-276-300-300 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri gerð (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 10 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað er þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, MYNSTUR A.1B (= 12 l) – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 108-108-120-132-144-144 l (= 9-9-10-11-12-12 mynstureiningar á breiddina), A.1A (= 12 l) yfir næstu 108-108-120-132-144-144 l (= 9-9-10-11-12-12 mynstureiningar á breiddina), endið á 6 l garðaprjón. Mynstur A.1 færist til um 1 l við miðju að aftan í hverri umf frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 40-41-42-42-43-44 cm. Stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Næsta umf er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 6 l garðaprjón, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 72-72-78-90-96-96 l, garðaprjón yfir næstu 11 l, mynstur eins og áður yfir næstu 50-50-62-62-74-74 l, garðaprjón yfir næstu 11 l, mynstur eins og áður yfir næstu 72-72-78-90-96-96 l, endið á 6 l garðaprjón. Prjónið svona í 3 umf JAFNFRAMT í síðustu umf er felld af miðju l í hverri 11 lykkju í garðaprjóni = 226-226-250-274-298-298 l. Nú skiptist stykkið og prjónað er op fyrir handveg. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið síðustu143-143-161-173-191-191 l á þráð, nú er bara prjónað yfir fyrstu 83-83-89-101-107-107 l. Haldið svona áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónað er frá réttu þannig: 6 l garðaprjón, A.1B eins og áður, endið á 5 l garðaprjón. Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þeim stað þar sem stykkinu var skipt upp. ATH: Stillið af að síðasta umf er frá röngu. Setjið l á þráð og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 83-83-89-101-107-107 l á prjóninn, prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, prjónið A.1A í stað A.1B. ATH: Stillið af að síðasta umf er frá röngu. Setjið l á þráð og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: Setjið til baka þær 60-60-72-72-84-84 l sem eftir eru á prjóninn. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar bakstykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, stillið af að síðasta umf sé frá röngu og stillið af eftir framstykki, setjið öll stykkin tilbaka á sama hringprjón nr 5. Nú er prjónað áfram þannig: Prjónið garðaprjón og mynstur eins og áður yfir framstykki að 5 l garðaprjóni, prjónið 5 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 5 l garðaprjón, mynstur yfir bakstykki eins og áður að 5 l garðaprjón, prjónið 5 l garðaprjón, fitjið upp 1 nýja l, 5 l garðaprjón, mynstur og garðaprjón yfir framstykki eins og áður = 228-228-252-276-300-300 l á prjóni. Prjónið alls 4 umf garðaprjón yfir 11 l á milli framstykkja og bakstykkis. Prjónið nú mynstur með 6 kantlykkjum með garðaprjóni á hvorri hlið þar til stykkið mælist alls 75-77-79-81-83-85 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist 85-87-89-91-93-95 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-35-37-38-39-41 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 8 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 3-3-3-2½-2½-2½ cm millibili 13-13-14-15-16-17 sinnum til viðbótar = 60-63-67-70-73-77 l á prjóni. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm. Fellið af kantlykkjur í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf = 58-61-65-68-71-75 l eftir á prjóni. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í byrjun á hverri umf þannig: Fellið af 4 l alls 5 sinnum = 18-21-25-28-31-35 l eftir á prjóni. Fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 57-58-59-60-61-62 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firstinlinecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.