Claus skrifaði:
Hvor meget garn skal man bruge???
20.01.2015 - 21:19DROPS Design svaraði:
Hej Claus. Det staar överst i mönstret: DROPS ALPACA fra Garnstudio 150-200-200-200-200-250-250 g f.nr 100, natur 250-250-300-300-350-400 g f.nr 3112, støvrosa. Saa skal du f.eks. lave str. 0/1 skal du bestille 150 gr natur og 250 gr støvrosa. 1 nögle Alpaca vejer 50 gr.
21.01.2015 - 15:40
Elisabeth skrifaði:
Når man øverst på benet skal lukke for 3 masker på de næste 2 pinde, er det så i begge sider? Når benene samles skal det være med indtagningerne mod hinanden - men der er jo indtagninger i begge sider?
18.11.2014 - 06:21DROPS Design svaraði:
Hej Elisabeth. Du skal lukke 3 m af i begyndelsen af de naeste 2 pinde. Du strikker frem og tilbage, saa det bliver 3 masker i begge sider (6 masker mindre i alt).
19.11.2014 - 14:57
Lone Pedersen skrifaði:
Hej. Kan man bruge big merino i stedet for alpaca?
04.11.2014 - 11:23DROPS Design svaraði:
Hej Lone. Ja, det kan du godt, og saa bare med en enkelt traad i stedet for dobbelt. Husk at strikke en pröve!
04.11.2014 - 12:06
Vivi skrifaði:
Det vil også da si to masker samtidig? Hvis ikke vil man jo doble antall masker per runde..
24.10.2014 - 12:26DROPS Design svaraði:
Hej Vivi, Nej du lægger dem bare sammen til en tråd, og strikker hver maske som da også består af 2 tråde men som er lagt sammen til en tråd. Din nærmeste DROPS butik viser dig gerne hvordan du gør. God fornøjelse!
28.10.2014 - 11:21
Vivi skrifaði:
Hva menes med å strikke med to tråder? Betyr det to tråder samtidig samt da to masker samtidig? Eller betyr det en maske en tråd og så en maske med den andre tråden?
23.10.2014 - 20:19DROPS Design svaraði:
Hej Vivi. Du skal hekle den her med 2 traader samtidig.
24.10.2014 - 12:08
Roxanne skrifaði:
Dear, I'm stuck in the "Playdate" pattern with the suit, it says.. When piece measures 35-42-50-57 (67-75) cm, divide piece at the 2 markers and finish front and back piece separately. Do I need to knit between the markers untill the peace measures 50 cm? (50 cm is included legs?) you can also add the markers when the piece is 50 cm right? They move up anyways.
12.10.2014 - 14:23DROPS Design svaraði:
No, you insert the markers earlier and they mark the sides. At 50 cm for your size, you remove the markers and split the work there into fronts and back and continue working on these pieces seperately.
12.10.2014 - 17:53
Playdate#playdateoverall |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn með hettu, prjónaður í garðaprjóni og 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð 0-4 ára
DROPS Baby 25-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: * 4 cm í garðaprjóni með 2 þráðum í litnum natur, 4 cm í garðaprjóni með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum dauf bleikur, 4 cm í garðaprjóni með 2 þráðum í litnum dauf bleikur *, endurtakið frá *-* til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar hvor fyrir sig fram og til baka á hringprjóna, síðan eru skámarnar settar saman og gallinn prjónaður fram og til baka á hringprjóna. SKÁLM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið LAUST upp 38-42-46-50 (54-58) l (metalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, haldið áfram með stroff 2 l sl, 2 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-6-8 (8-8) l jafnt yfir = 32-36-40-42 (46-50) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 3.-5.-6.-6. (8.-9.) umf alls 7-7-7-9 (9-10) sinnum = 46-50-54-60 (64-70) l. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf = 40-44-48-54 (58-64) l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. Passið uppá að skálmarnar hafi jafn margar rendur. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón nr 5 með affellinguna á móti hvorri annarri = 80-88-96-108 (116-128) l. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan (1. umf = rétta og rendur halda áfram þar sem þeim þeim lauk) þannig: Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka. Í byrjun á 2 næstu umf eru felldar af 3 l = 74-82-90-102 (110-122) l eftir á prjóni. Setjið 1 prjónamerki 17-19-21-24 (26-29) l inn frá hvorri hlið (= 40-44-48-54 (58-64) l á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan GARÐAPRJÓN og RENDUR. Þegar stykkið mælist 35-42-50-57 (67-75) cm skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki eru prjónuð til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 40-44-48-54 (58-64) l. Haldið áfram í garðaprjóni og rendur – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf í hvorri hlið fyrir ermar: 3 l 2-1-2-3 (1-2) sinnum, 5 l 1-1-1-1 (2-2) sinnum, 7 l 0-1-1-1 (2-2) sinnum og síðan 6-7-7-8 (9-12) l 1 sinni = 74-88-98-112 (130-148) l á prjóni. Þegar stykkið mælist 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-16-18-18 (20-20) l af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið 2 umf til viðbótar yfir 29-36-40-47 (55-64) l sem eftir eru í hvorri hlið – fellið LAUST af, stykkið mælist ca 45-53-62-70 (81-90) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 17-19-21-24 (26-29) l. Haldið áfram í garðaprjón og rendur – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf frá hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 34-41-46-53 (62-71) l. Þegar stykkið mælist 41-49-58-65 (76-85) cm fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: 2 l 2 sinnum í öllum stærðum og síðan 1 l alls 1-1-2-2 (3-3) sinnum = 29-36-40-47 (55-64) l eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm, fellið LAUST af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið yfirermasauma með lykkjuspori frá réttu. Saumið saum undir ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman skálmar innan við 1 kantlykkju og saumið síðan frá opi við miðju fram að opi. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp, ca 46-90 l, frá réttu innan við 1 kantlykkju, meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið jafnt út til 64-72-88-96 (108-116) l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hálsmáli og niður) 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3½-4 cm (stillið af eftir opi neðst niðri) og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur, en eftir 1½ cm fellið af fyrir 5-5-6-6 (6-7) hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = prjónið 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að prjóna 2 l br saman í einingu sem er brugðin). Efsta hnappagatið á að vera að hámarki 1 cm frá kanti í hálsmáli og neðsta ca 2-3 cm frá opi. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið niður kant að framan með hægri yfir vinstri neðst niðri í opi. HETTA: Prjónið upp ca 50 til 60 l, í kringum hálsmál frá réttu, á hringprjóna nr 5 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur (prjónið einnig upp yfir kant að framan). Prjónið síðan garðaprjón – JAFNFRAMT í 2. umf (= frá réttu) er aukið út jafnt yfir til 72-76-80-84 (88-92) l. (Ef þið viljið ekki hafa hettu þá er fellt af eftir 4 umf garðaprjón). Þegar hettan mælist 19-21-23-25 (27-28) cm fellið af. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið hana saman að ofan með lykkjuspori. KANTUR Á ERMI: Prjónið upp 32-32-36-36 (40-40) l, frá réttu á sokkaprjóna 4 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur neðst niðri á annarri erminni. Prjónið = 2 l sl, 2 l br þar til stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið á sama hátt neðst á hinni erminni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #playdateoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.